Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Alltaf forðast textaskrif en gefur nú út ævintýrabók

Karólína Pét­urs­dóttir er les­blind og hefur í gegnum tíð­ina forð­ast það að skrifa texta. En nú hefur hún skrifað bók sem er sér­hönnuð fyrir les­blinda. Hún kom sjálfri sér á óvart þegar hún byrj­aði að skrifa.

Alltaf forðast textaskrif en gefur nú út ævintýrabók
||

Hrauney er fyrsta bók Karólínu Pét­urs­dóttur. Bókin er ævin­týra­bók skrifuð fyrir ung­menni og fjallar um 17 ára stelpu sem kemst yfir í álfa­heim. „Þegar hún kemst í álfa­heim­inn er ekk­ert auð­velt að kom­ast til baka. Bókin ger­ist á Íslandi en í annarri vídd,“ segir Karólína um bók­ina en passar sig að ljóstra engu upp.

Það sem gerir bók­ina ein­staka er að hún er sér­hönnuð fyrir les­blinda. Sjálf er Karólína les­blind og hefur oft átt erfitt með að kom­ast í gegnum bækur vegna þess hvernig þær eru upp­settar.

„Ég er les­blind og fólkið sem hefur unnið með mér að Hrauney er meira og minna allt les­blint líka,“ segir Karólína og hlær. „Sjálf get ég ekki lesið hvaða bækur sem er og gefst oft upp á að lesa. Þannig að mér fannst til­valið að hanna mína bók með les­blinda í huga,“ útskýrir Karólína.

Letur bók­ar­innar er hannað fyrir les­blinda og línu- og orða­bil er meira en gengur og ger­ist. Blað­síður bók­ar­innar eru einnig gul­leitar sem hjálpar les­blindum að sögn Karólínu.

Sjálf get ég ekki lesið hvaða bækur sem er og gefst oft upp.
Letur bók­ar­innar er sér­hannað fyrir lesa­blinda.

„Þetta hjálpar svaka­lega við lest­ur­inn. Þetta letur kost­aði aðeins meira en venju­legt letur og bókin varð aðeins lengri heldur en hún hefði þurft að vera. Þannig að allt ferlið varð aðeins dýr­ara en við gerðum ráð fyrir,“ segir Karólína hlæj­andi.

„En það er algjör­lega þess virði. Það fólk sem við höfum fengið til að prufu­lesa bók­ina fyrir okkur talar um að það hald­ist betur við lest­ur­inn.“

Kom sjálfri sér á óvart

Bókin er skrifuð fyrir ung­linga en Karólína segir sög­una vera skemmti­lega fyrir alla sem hafa áhuga á ævin­týrum.

Karólína segir að fyrir nokkrum árum hefði það aldrei hvarflað að henni að hún myndi skrifa bók. Hún við­ur­kennir að hún hafi alltaf forð­ast það eins og heitan eld­inn að skrifa texta. Hún kom því sjálfri sér á óvart þegar hún byrj­aði að skrifa.

„Mér hefði aldrei dottið í hug að ég myndi skrifa bók. Ég hef alltaf verið með minni­mátt­ar­kennd yfir þeim texta sem ég skrifa, vegna les­blind­unnar. Ég skrifa ekki einu sinni færslur á Facebook. En þegar Elsa Egils­dóttir vin­kona mín stakk upp á að við myndum gefa út ung­linga­bók um álfa og huldu­fólk þá leist mér vel á það. Ég ætl­aði bara að skrifa niður nokkra punkta til að byrja með og fá ein­hvern annan til að skrifa sjálfa bók­ina. En áður enn ég vissi af var ég búin að skrifa alla bók­ina,“ útskýrir Karólína.

Ég hef alltaf verið með minni­mátt­ar­kennd yfir þeim texta sem ég skrifa, vegna les­blind­unnar.

Karólína var að dreifa bók­inni í búðir þegar blaða­maður náði tali af henni. „Til­finn­ingin við að klára bók­ina og vera á loka­metr­unum er rosa­lega góð. Þetta er búin að vera mikil vinna og það að gefa út bók er ekki beint það auð­veldasta sem ég hef gert,“ segir hún og skellir upp úr.

Þess má geta að Karólína teikn­aði meiri­hluta mynd­anna í bók­inni sjálf og Elsa Egils­dóttir var henni innan handar í öllu ferl­inu. Elsa hann­aði for­síðu bók­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi