Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Oft löng og hlykkjótt leið og miklar tilfinningar

Nýjasta lína Farmers Market leit nýverið dags­ins ljós. Bergþóra Guðna­dóttir, yfir­hönn­uður Farmers Market, segir lín­una vera ívið róm­an­tísk­ari heldur en eldri línur merk­is­ins.

Aðspurð hvaðan inn­blást­ur­inn kom segir Bergþóra: „Eins og ég hef gert hingað til held ég áfram að leika mér að arf­inum og gera til­raunir með efni, form og mynstur. Litirnir eru sóttir í nátt­úr­una, sem fyrr, en að þessu sinni er ég mjög upp­tekin af sterkum litum sem finn­ast á jarð­hita­svæðum eins og í Land­manna­laugum. Dökk­græn­bláir, ryðrauðir og gul­brúnir tónar eru í aðal­hlut­verki í þess­ari línu.“

Dökk­græn­bláir, ryðrauðir og gul­brúnir tónar eru í aðal­hlut­verki í nýj­ustu línu Farmers Market.

Blóma­mynstur er áber­andi í nýju lín­unni. „Ég er mikið fyrir blóm en hef ekki unnið með þau sem mynstur fyrr en núna. Þannig að nýja línan mín sem ber nafnið Blómst­ur­vellir er í dálitlu upp­á­haldi. Þar hef ég látið búa til blóma­mynstur í jarð­hita-lita­tón­unum mínum og prenta á silki og viskós. Þar að auki erum við með nýja spari ull­ar­sokka sem einnig eru blómum prýddir,“ útskýrir Bergþóra.

Dökk­græn­bláir, ryðrauðir og gul­brúnir tónar eru í aðal­hlut­verki í þess­ari línu.

„Ég hef verið að vinna að þess­ari línu í eitt og hálft ár og núna seint í haust var hún loks öll til­búin og komin í versl­anir. Það er oft löng og hlykkj­ótt leið og miklar til­finn­ingar frá hug­mynd að til­bú­inni vöru,“ segir Bergþóra.

Taka ekki óþarfa áhættu

Fyrsta lína Farmers Market kom út árið 2005. Síðan þá hefur merkið fest sig í sessi og flestir fag­ur­kerar lands­ins ættu að kann­ast við fötin frá Farmers Market.

Flestir fag­ur­kerar lands­ins ættu að kann­ast við fötin frá Farmers Market.

Spurð út í hver sé gald­ur­inn að þessum far­sæla rekstri segir Bergþóra: „Við höfum alltaf passað okkur á að sníða okkur stakk eftir vexti. Við erum bara tveir eig­endur og það vill þannig til að við erum líka hjón svo að það er mikið í húfi fyrir okkur að taka ekki óþarfa áhættu. Þar að auki erum við bæði lista­menntuð svo að við­skipta­eðlið er okkur ekki í blóð borið og við höfum orðið að til­einka okkur með tím­anum.“

Við höfum alltaf passað okkur á að sníða okkur stakk eftir vexti.

Á þessum 13 árum hefur fyr­ir­tækið vaxið hægt og rólega. „Fyrir utan hönn­un­ar­stúd­íóið mitt rekum við tvær versl­anir og vef­verslun þannig að gott starfs­fólk er lyk­il­at­riði og þar höfum við verið afar lánsöm bæði hvað varðar starfs­fólk hér heima og sam­starfs­fólk erlendis,“ útskýrir Bergþóra. Hún bætir við að á þessu 13 ára tíma­bili hafi margt breyst í brans­anum.

Myndir af nýju lín­unni tók Ari Magg.

„Það er margt sem hefur breyst frá því að við byrj­uðum tveimur árum fyrir hrun. Það hafa orðið til mörg spenn­andi fyr­ir­tæki og stórir draumar. Sum hafa lifað en önnur ekki svona eins og gengur og ger­ist. Það jákvæða að mínu mati er að íslenska hönn­un­ar­senan virð­ist vera að slíta barns­skónum og ég held að hún geti orðið okkur mik­il­væg­ari en við gerum okkur grein fyrir núna. Mér finnst alltaf gaman að bera hönn­un­ar­sen­una saman við íslensku tón­list­ar­sen­una sem er svona 20 árum á undan og hefur verið okkur afar dýr­mæt.“

Myndir af nýj­ustu línu Farmers Market / Ari Magg

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi