Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vændismálum á borði lögreglu fækkar þrátt fyrir „sprengingu“

Á sama tíma og fram­boð vænd­is­þjón­ustu á Íslandi hefur aldrei verið meira hafa vændis­kaupa­mál á borði lög­reglu sjaldan verið færri. Augum stjórn­valda hefur fyrst og fremst verið beint gegn man­sali og skipu­lagðri glæp­a­starf­semi en þrátt fyrir það hefur ekki verið ákært fyrir man­sal síðan 2010.

Vændismálum á borði lögreglu fækkar þrátt fyrir „sprengingu“

Samkvæmt mati lög­regl­unnar hefur orðið „spreng­ing í vændi“ á und­an­förnum árum. Ástæða þess er til­tölu­lega borð­leggj­andi, það er stór­auk­inn fjöldi ferða­manna og upp­gangur í íslensku efna­hags­lífi. Ísland er vita­skuld engin und­an­tekn­ing að þessu leyti enda gildir lög­málið um fram­boð og eft­ir­spurn um vændi rétt eins og aðra þjón­ustu. Samhliða aukn­ingu á bæði fram­boði og eft­ir­spurn hafa leiðir til að bjóða og verða sér úti um og hýsa þjón­ust­una orðið fleiri og aðgengi­legri.

Í skýrslu Rík­is­lög­reglu­stjóra um skipu­lagða glæp­a­starf­semi kemur fram að sala vændis á Íslandi fari meðal ann­ars fram innan lok­aðra hópa á sam­fé­lags­miðlum. Hafa miðlar á borð við Facebook, WhatsApp, Instragram og Tinder verið not­aðir til þessa. Einnig hafi fjölgað mjög vænd­is­aug­lýs­ingum á net­síðum og sam­fé­lags­miðlum sem beint er að Íslandi. Ekki þarf mikla net­kunn­áttu til að kom­ast inn á slíkar heima­síður því ein­föld Google-leit vísar á heima­síður sem aug­ljós­lega bjóða vændi undir flaggi fylgd­ar­þjón­ustu. Allar kon­urnar sem boðnar eru til kaups eru af erlendu bergi brotnar en gefin eru upp íslensk síma­númer til að setja sig í sam­band við þær.

„Bann við kaupum á vændi sendir jafn­framt þau skila­boð í sam­fé­lagið að það sé litið alvar­legum augum að kaupa sér aðgang að lík­ama fólks og að ekki sé ásætt­an­legt á Íslandi að nýta sér neyð ann­arra í kyn­ferð­is­legum til­gangi.“

Í skýrsl­unni segir einnig að götu­vændi sé lítt sjá­an­legt á Íslandi en þekkt sé að vænd­is­starf­semi fari fram á næt­ur­klúbbum þar sem boðið er upp á „list­rænan dans“ og að á höf­uð­borg­ar­svæð­inu séu „þrír þekktir næt­ur­klúbbar“ starfar­andi. Í flestum til­fellum fara við­skiptin fram á stöð­unum sjálfum en kaup­endum er síðan vísað á hús­næði ann­ars staðar þar sem vændið fer fram. Er þá einkum um að ræða gisti­heim­ili eða íbúðir sem eru leigðar til starf­sem­innar, en gisti­heim­ilum og íbúðum til útleigu í gegnum for­rit eins og Airbnb hefur stór­fjölgað á Íslandi á und­an­förnum árum. Ekki er langt síðan Mannlíf ræddi við eig­anda íbúðar sem hann leigði út á Airbnb og grun­aði að gestir þar væru viðriðnir vænd­is­starf­semi.

Sænska leiðin ekki haft áhrif á eft­ir­spurn
Sjald­gæft er að vænd­is­mál rati inn á borð lög­reglu, þó með einni stórri und­an­tekn­ingu. Fram til árs­ins 2007 var vændi ólög­legt á Íslandi en það ár sam­þykkti Alþingi lög sem leyfðu vænd­is­starf­semi en bönn­uðu þriðja aðila að hagn­ast á henni. Það var gert til að koma í veg fyrir hór­mang. Árið 2009 sam­þykkti Alþingi að fara hina svoköll­uðu sænsku leið, það er að banna kaup á vændi. Það var með þeim rökum að koma ábyrgð­inni af vændi yfir á þann sem borgar fyrir vændið enda almennt litið svo á að þeir sem neyð­ast út í vændi séu þolendur á meðan kaup­endur séu ger­endur. Eins og segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins: „Bann við kaupum á vændi sendir jafn­framt þau skila­boð í sam­fé­lagið að það sé litið alvar­legum augum að kaupa sér aðgang að lík­ama fólks og að ekki sé ásætt­an­legt á Íslandi að nýta sér neyð ann­arra í kyn­ferð­is­legum til­gangi.“

Skiptar skoð­anir eru um hvort sænska leiðin hafi reynst vel eða illa. Hafi sænsku leið­inni verið ætlað að hefta eft­ir­spurn­ina eftir vændi er ljóst að það hefur mis­tek­ist. Töl­fræðin hnígur í sömu átt. Frá árinu 2009, þegar lögin voru sam­þykkt, hefur fjölda skráðra vænd­is­brota hjá lög­reglu fækkað jafnt og þétt og voru þau ein­ungis 5 tals­ins árið 2017. Und­an­tekn­ingin er árið 2013 þegar 175 mál voru skráð hjá lög­regl­unni en það ár var farið í sér­stakt átak til að sporna við vændis­kaupum. Árið eftir var fjöld­inn kom­inn niður í 13 skráð mál.

Nær ekk­ert hefur verið ákært fyrir vændis­kaup und­an­farin ár en árið 2015 höfðu alls 85 ákærur verið gefnar út. Í þeim málum sem end­uðu með sak­fell­ingu voru við­kom­andi aðilar sektaðir um 100 þús­und krónur þótt refsiramm­inn hljóði upp á allt að eins árs fang­elsi.

Lög­reglan hefur við­ur­kennt að hún hafi ekki bol­magn til að fylgja eftir eft­ir­liti og rann­sókn með „hefð­bund­inni“ vænd­is­starf­semi.

Áherslan á man­sal
Lög­reglan hefur við­ur­kennt að hún hafi ekki bol­magn til að fylgja eftir eft­ir­liti og rann­sókn með „hefð­bund­inni“ vænd­is­starf­semi. Enda spurn­ing hversu mikla áherslu áherslu skuli leggja á mála­flokk­inn þegar við­ur­lögin nema ein­ungis 100 þús­und króna sekt. Þess í stað hefur áhersla lög­gæslu­yf­ir­valda beinst að man­sali sem oft er tengt vændi. Í áður­nefndri skýrslu lög­reglu­stjóra segir að lík­legt sé að sumar þær erlendu kvenna sem stunda vændi á Íslandi, bæði í lengri og skemmri tíma, búi við nauð­ung. Í ein­hverjum til­vikum fylgi erlendir karl­menn kon­unum og hafi hugs­an­lega með þeim eft­ir­lit á meðan þær dvelj­ast hér. Þá njóti ein­hverjar kvenn­anna aðstoðar og milli­göngu fólks sem búsett er á Íslandi.

En rétt eins og í vænd­is­mál­unum er fátt um ákærur þegar kemur að man­sali. Í árlegri skýrslu banda­ríska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um man­sal er Ísland sett í 2. flokk af fjórum eftir að hafa skipað 1. flokk um ára­bil. Gagnrýnt er að ekki hafi verið ákært fyrir man­sal síðan 2010 og að þekk­ingu á mála­flokknum sé ábóta­vant. Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra sagði nið­ur­stöðu skýrsl­unnar byggj­ast á van­þekk­ingu á íslensku rétt­ar­fari en benti um leið á að lög­gæsla hafi verið efld til muna og meiri þungi lagður í fræðslu til handa þeim sem fari með rann­sókn mála af þessu tagi. Þá stóð til að ný aðgerð­ar­á­ætlun gegn man­sali yrði lögð fram í haust en vinna við hana stendur enn yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vændi

InnlentVændi

Brynja stund­aði vændi á Íslandi: „Algjör skyndi­hug­detta“

„Þar sem ég hafði enga virð­ingu fyrir sjálfri mér og lík­ama mínum datt mér í hug að fyrst ég væri að sofa hjá mönnum á djamm­inu gæti ég alveg eins fengið greitt fyrir það. Þetta var ekki eitt­hvað sem ég lagði mikla hugsun í. Þetta var algjör skyndi­hug­detta,“ segir fyrr­ver­andi vænd­is­kona í Helg­ar­við­tali Mannlífs. Konan, sem við köllum Brynju, lýsir...
InnlentVændi

Hvað kostar góð rass­skell­ing? Ég á góða spaða og svipur

Mannlífi lék hugur á að gera óform­lega könn­una á eft­ir­spurn eftir vændi íslenskra kvenna eftir við­tal við Önnu Bentínu Herman­sen hjá Stíga­mótum sem sagði vændi íslenskra kvenna í atvinnu­leysi og Covid hafa stór­auk­ist. Tæplega 40 svör á sól­ar­hring Sett var aug­lýs­ing inn á íslenskan vef­mið­miðil sem margir tengja meðal ann­ars við vænd­is­sölu en ekki ein­vörð­ungu. Aug­lýs­ingin var sett inn fyrir...
InnlentVændi

Neyð rekur íslenskar konur í vændi. Gífurleg eft­ir­spurn í Covid-far­aldri

Stígamót hafi fundið fyrir auknu vændi íslenskra kvenna í Covid far­aldr­inum. ,,Okkar konur segja að áreitið sé tals­vert meira frá kaup­endum vændis í kjöl­far Covid. Margar fá lág­marks­fram­færslu í gegnum örorku, félags­þjón­ustu eða atvinnu­leys­is­bætur. Sú upp­hæð nægir ekki til þess að fram­fleyta þeim og þá verður vændi neyð­ar­úr­ræði” segir Anna Bentína Herman­sen ráð­gjafi hjá Stíga­mótum, ,, Atvinnu­leysi hafi aldrei mælst...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi