Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Sýni hver vændiskonan raunverulega er“

Guðrún Sigríður Sæmund­sen, við­skipta­fræð­ingur og rit­höf­undur, sendir frá sér skáld­sög­una And­stæður nú fyrir jólin. Bókin fjallar um vændi og Guðrún fór í heil­mikla rann­sókn­ar­vinnu við skrif hennar. Útkoman er raun­sönn mynd af reynslu kvenna í þessum heimi.

„Sýni hver vændiskonan raunverulega er“
||

„Ég fékk hug­mynd­ina að sög­unni árið 2015 eftir að hafa rekið augun í blaða­grein um að Amnesty International, ein stærstu mann­rétt­inda­sam­tök í heim­inum, mæltu fyrir afglæpa­væð­ingu vændis. Þá gerð­ist eitt­hvað. Mér fannst ég þurfa að kafa ofan í efnið og í raun að skrifa gegn afglæpa­væð­ing­unni,“ segir Guðrún þegar hún er spurð um til­urð bók­ar­innar. „Hugmynd að sögu í þessum dúr kemur ekk­ert „af því bara“. Ég hef alltaf haft áhuga á umræð­unni um hvort vændi eigi að vera lög­legt og hvort það sé betra fyrir vænd­is­konur og sam­fé­lagið í heild að hafa vændi meira sýni­legt og uppi á yfir­borð­inu. Ég var mjög hissa þegar ég sá til­lög­una frá Amnesty því sjálfri hefur mér alltaf fund­ist vændi vera ofbeldi.
Bókin er í raun byggð á til­lögu Amnesty. Ég skoð­aði raun­um­hverfið, bjó síðan til per­sónur og gerði úr því fróð­lega og spenn­andi sögu. Fyrir bók­ina skoð­aði ég sér­stak­lega Holland því sagan ger­ist einnig að hluta til þar. Þegar ég svo fór að kafa dýpra komst ég að því að margt hefur farið úrskeiðis með lög­leið­ingu vændis þar í landi. Eftir að banni af vænd­is­húsum var aflétt árið 2000 í Hollandi og lög­unum breytt þannig að vænd­is­konum var gert að greiða skatta og önnur gjöld, hafa aðstæður þess­ara kvenna hríð­versnað. Þrátt fyrir að starf­semin eigi að vera meira uppi á yfir­borð­inu hefur man­sal aldrei verið jafn­mikið og hol­lenska ríkið hefur verið að missa tökin á utan­um­hald­inu. Ofbeldi hefur ekk­ert minnkað og aðstæður þess­ara kvenna ekk­ert batnað. Kyn­lífstúrismi hefur bara auk­ist, mörgum til mik­ils ama, svo mikið að borg­ar­stjór­inn í Amster­dam lét til að mynda minnka umfang svo­kall­aðs „glugga­vændis“ í rauða hverf­inu.
Þessar stað­reyndir, ásamt meira efni, koma fram í bók­inni. En svo má ekki gleyma að þetta er fyrst og fremst skáld­saga, spenn­andi og fróð­leg saga, sem hristir veru­lega upp í les­and­anum.“

„Vændi er ofbeldi“
Guðrún seg­ist hafa valið þessi efn­is­tök af áhuga. Hún velti fyrir sér spurn­ingum eins og hvaða konur stunda vændi? „Þurfa þær að gera það og vilja þær það? Er ofbeldi gegn þeim að mestu útrýmt með því að hafa starf­sem­ina sýni­lega? Er vænd­is­konan að gera sér þetta til gam­ans? Vildi hún alltaf verða vænd­is­kona? Eða dreymdi hana um að gera eitt­hvað allt annað? Ef hún vildi gera eitt­hvað annað, hvað gerð­ist þá á lífs­leið­inni sem gerði það að verkum að hún fór þessa leið?
Boð­skapur bók­ar­innar er að vændi er fárán­legt. Það er hreint og beint ofbeldi gegn konum. Í bók­inni sýni ég hvað knýr vændis­kaup­and­ann áfram í að nota þjón­ustu vænd­is­konu og það sem er enn mik­il­væg­ara, ég sýni hver vænd­is­konan raun­veru­lega er, svo les­and­inn fái jákvæða mynd af henni sem per­sónu, skilji til­finn­ingar hennar og þrár. Svo er þetta líka ást­ar­saga. Ástin er dul­ar­full og dúkkar upp á ólík­leg­ustu tímum og stöðum, kannski meðal þeirra sem hefðu síst grunað það. Það eru nefni­lega líka ljósir punktar í sög­unni,“ segir Guðrún.
Við vinnslu bók­ar­innar tal­aði Guðrún meðal ann­ars við ráð­gjafa hjá Stíga­mótum og fékk sendar greinar frá þeim. Eins skoð­aði hún rann­sóknir og skýrslur, til dæmis frá Evr­ópu­þing­inu. „Mik­il­væg­asta heim­ilda­mann­eskjan mín var Mirjam van Twuijver en hún starf­aði áður sem vænd­is­kona í rauða hverf­inu í Amster­dam. Ég hitti Mirjam fyrst haustið árið 2016 en þá fékk ég leyfi til að heim­sækja hana í fang­elsið á Akureyri. Milli okkar mynd­að­ist strax mikið traust og hún var mjög opin­ská um líf sitt og æsku. Mirjam gaf mér hald­góðar upp­lýs­ingar sem hjálp­uðu mér að móta eina aðal­sögu­per­són­una í bók­inni, hana Jasmijn,“ segir Guðrún.
„Það í raun skiptir ekki máli hvað ég las eða við hvern ég tal­aði fyrir bók­ina, það var þessi rauði þráður gegn­um­gang­andi; að meiri­hluti þeirra sem stunda vændi eru konur, oft í tengslum við fíkni­efna­neyslu en svo hefur meira en helm­ingur þeirra sem stunda vændi orðið fyrir ein­hvers konar áfalli í æsku eða á ung­lings­ár­unum. Vændi er síð­asta val þeirra sem það stunda og er það gert af algerri neyð, fyrir utan þær sem eru þving­aðar til þess. Svo getur verið erfitt fyrir þær konur sem hafa stundað vændi að kom­ast út úr því.“
Hún segir að draum­ur­inn sé að skrifa, hún sé núna að lifa draum­inn og sé hvergi nærri hætt. „Eftir ára­mót ætla ég að byrja á næstu bók og það er aldrei að vita nema það verði fram­hald af And­stæður. Viðbrögð les­enda hafa verið það góð að það verður erfitt að segja skilið við sög­una og sögu­per­són­urnar. Ég get alla vega sagt að það er af nógu að taka og flæði hug­mynda enda­laust, svo fylgist með.“

„Boð­skapur bók­ar­innar er að vændi er fárán­legt. Það er hreint og beint ofbeldi gegn konum. Í bók­inni sýni ég hvað knýr vændis­kaup­and­ann áfram í að nota þjón­ustu vænd­is­konu.“ Mynd/ Íris Sig­urð­ar­dóttir

Skoðar dökkar hliðar sam­fé­lags­ins
Guðrún hefur í gegnum tíð­ina starfað tengt menntun sinni, við­skipta­fræði, en gaf svo út fyrstu skáld­sög­una sína, Hann kallar á mig, jólin 2015. And­stæður er önnur bók hennar. „Í fyrstu tveimur bók­unum mínum hef ég skrifað um dökkar hliðar sam­fé­lags­ins. Til að mynda fjall­aði fyrsta bókin mín um fíkn. Í þeirri bók kafa ég ofan í bak­grunn fíkils­ins, skoða hvernig fíknin þró­ast og sýni fram á að fík­ill­inn hefur alltaf val um aðra leið í líf­inu. Í nýju bók­inni, And­stæður, skoða ég vændi. Les­and­inn fær ann­ars vegar sjón­ar­horn vændis­kaup­and­ans og hins vegar vænd­is­kon­unnar. Í gegnum sög­una set ég fram ljóð­rænar pæl­ingar um þessar and­stæður sem tog­ast á innra með fólki í mis­mun­andi aðstæðum; græðgi og nægju­semi, illska og kær­leikur, ótti og hug­rekki.“
Hún segir að þó að við­skipta­fræði sé mennt­unin hennar hafi það ekki allt að segja um hana sem per­sónu. „Til dæmis hvað ég hugsa frá degi til dags eða hver sé ástríðan í mínu lífi. Sjálfri finnst mér gaman að læra og fræð­ast. Ég elska að lesa og eitt það skemmti­leg­asta sem ég geri er að skrifa. Það hefur fylgt mér frá blautu barns­beini. Við systk­inin erum alin upp við bækur, það var alltaf lesið fyrir okkur á kvöldin og bækur voru alltaf sýni­legar á heim­il­inu. Ef ég var í til­tekt og þurfti að velja hvort setja átti bækur ofan í kassa í geymslu eða skraut­muni, þá fór það síð­ar­nefnda. Bækurnar mínar fengu alltaf sitt pláss,“ segir hún.

Fylgist með fólki úr fjar­lægð
Góð skáld­saga þarf, að mati Guðrúnar, að grípa les­and­ann strax í upp­hafi, hreyfa við til­finn­ingum hans og fræða hann í leið­inni. „Það þarf að gefa allt í skrifin, sem getur verið mjög erfitt, sér­stak­lega ef efn­is­tökin eru þung. Ég get til dæmis verið eftir mig eftir að hafa skrifað um ofbeldi, sorg, svik, reiði eða annað þvíum­líkt. Til að vera rit­höf­undur þarf einnig að hafa áhuga á umhverf­inu og öðru fólki. Þegar ég sit og tala við ein­hvern eða horfi á fólk úr fjar­lægð þá fylgist ég með svip­brigðum og hreyf­ingum. Ég hug­leiði hvað er að ger­ast í kringum mig, til dæmis hvernig mann­eskj­unni við hlið­ina á mér á bið­stof­unni líður eða hvað mað­ur­inn fyrir framan mig í röð­inni í Bónus sé að hugsa. Þegar fólk hagar sér á ákveð­inn hátt, jafn­vel í óþökk ann­arra eða bregst ein­kenni­lega við aðstæðum eða athuga­semdum, velti ég því alveg fyrir mér hvað orsaki hegðun þess. Stundum er ég komin aftur í barn­æsku við­kom­andi og ímynda mér fjöl­skyldu­mynstur og annað til að virki­lega átta mig á hvað er í gangi. Þá er ég bara að búa til sögu í hug­anum, þar sem ég sit eða stend.“

Skrifaði sam­hliða sendi­ráðs­starfi
Guðrún á sextán mán­aða dóttur og það er annað barn á leið­inni. Árið 2006 útskrif­að­ist hún sem við­skipta­fræð­ingur frá Háskól­anum í Reykja­vík og fór síðan í master í alþjóða­við­skiptum í Grenoble Graduate School of Business í Frakk­landi. Á meðan hún var að ljúka við masters­rit­gerð­ina, snemma árs 2009, fór hún til Brussel í starfs­nám hjá EFTA en einmitt þar ger­ist bókin And­stæður að hluta til. „Fyrir mér er mik­il­vægt að hafa klárað námið, verið búsett erlendis, hitt allt þetta fólk og öðl­ast reynslu úr ýmsum áttum, því allt hjálpar það til við skrifin. Þannig mót­ast per­sónur og umhverfi út frá alls konar upp­lifun hjá mér sjálfri. Svo spilar ímynd­un­ar­aflið stórt hlut­verk og þannig hefur mér tek­ist að skrifa og gefa út tvær bækur.
Núna síð­ast starf­aði ég sem menn­ingar- og vís­inda­full­trúi hjá franska sendi­ráð­inu í Reykja­vík. Helstu verk­efni mín hjá sendi­ráð­inu voru meðal ann­ars að vera í sam­skiptum við bæði franska og íslenska lista­menn, skipu­leggja menn­ing­ar­tengda við­burði, eins og frönsku kvik­mynda­há­tíð­ina og taka þátt í ákvörð­un­ar­ferli við úthlutun menn­ingar- og vís­inda­tengdra styrkja. Samhliða starf­inu í sendi­ráð­inu skrif­aði ég nýju bók­ina mína en sagan var þrjú ár í smíðum.“

Guðrún Sigríður Sæmund­sen fjallar um vændi í bók­inni And­stæður.

Gæti hugsað sér að skrifa barna­bók
Anna­samur tími er fram undan við að fylgja bók­inni eftir sem Guðrúnu þykir mjög gaman. „Ég er með upp­lestra, hef verið að gefa við­töl og svo fram­vegis. Ég er í góðu sam­starfi við útgef­and­ann og fæ frelsi til að skipu­leggja mark­aðs­setn­ing­una sjálf. Til að mynda er ég með Facebook-síðu fyrir mig sem rit­höf­und og þar kemur inn allt efni tengt bók­unum mínum.“
Hún segir að þótt fyrstu tvær bæk­urnar fjalli um þessi þungu mál­efni segi það lítið um fram­tíð­ar­skrifin. „Eftir fimm ár gæti ég allt eins tekið upp á því að skrifa barna­bók, hug­ljúfa og fal­lega sögu fyrir börn. Ímynd­un­ar­aflið á sér engin mörk og teygir anga sína víða,“ segir hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi