Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Málið getur haft margvíslegar pólitískar afleiðingar

Í kjöl­far Klaust­urs­fund­ar­ins marg­um­rædda hafa verið uppi háværar kröfur um opin­bera rann­sókn máls­ins og hugs­an­legar játn­ingar þing­manna á lög­brotum. Eiga þær kröfur við rök að styðj­ast?

Málið getur haft margvíslegar pólitískar afleiðingar
©Kristinn Ingv­ars­son

„Ég sé ekki fyrir mér beinar laga­legar afleið­ingar fyrir störf þings­ins eða þing­menn­ina en hins vegar vekur þetta upp alvar­legar sið­ferði­legar spurn­ingar um við­horf og dóm­greind þeirra sem tóku þátt í umræð­unni. Um leið varpar málið rýrð á Alþingi og grefur undan trausti almenn­ings á stjórn­mála­mönnum almennt. Því getur málið haft marg­vís­legar póli­tískar afleið­ingar,“ segir Björg Thoraren­sen, pró­fessor við laga­deild Háskóla Íslands, spurð út í þetta.

„Þingmenn njóta sér­stöðu um upp­haf og lok starfa. Aðeins kjós­endur taka ákvörðun í þeim efnum. Jafnvel þótt þing­menn hafi fengið dóm fyrir alvar­leg refsi­verð brot þá getur eng­inn vikið þeim úr þing­manns­starf­inu. Háttsemi þess­ara þing­manna er sið­ferð­is­lega ámæl­is­verð en ekki verður séð að nein lög hafi verið brotin. Nú er beðið eftir nið­ur­stöðu siða­nefndar. Hún getur þó ekki ákveðið nein við­ur­lög í starfi þótt siða­reglur hafi verið brotnar. Í fram­hald­inu er það alger­lega komið undir þing­mönn­unum sjálfum hvort þeir telja sér sið­ferð­is­lega stætt á að sitja lengur eða hvort þeir segja af sér. Hins vegar verður að gera þá kröfu til þing­manna að þeir búi yfir góðu sið­gæði og hafi sið­ferði­legan styrk, meiri en ger­ist og gengur.“

Eins og ég sagði eru þing­menn mjög sjálf­stæðir í starfi og ekki háðir fyr­ir­mælum frá neinum yfir­boð­ara.

Er hugs­an­legt að breyta þurfi þing­sköpum til að setja fast­mót­aðri reglur um leyfi þing­manna?

„Eins og ég sagði eru þing­menn mjög sjálf­stæðir í starfi og ekki háðir fyr­ir­mælum frá neinum yfir­boð­ara. Auk þess eru reglur sem tryggja að vara­menn komi inn fyrir þá ef þeir eru for­fall­aðir frá störfum. Þannig á það ekki að koma niður á störfum þings­ins, hvorki mál­efna­lega né heldur í kostn­aði fyrir þingið eða almannafé, ef þeir taka sér launa­laust leyfi af hvaða ástæðum sem er, per­sónu­legum eða öðrum. Ég er ekki viss um að þetta mál eitt eigi að leiða til end­ur­skoð­unar á þeim reglum sem eru til staðar sem veita ákveð­inn sveigj­an­leika í þessum efnum.“

Hafi Gunnar Bragi brotið af sér eru brotin fyrnd

Er hugs­an­legt að einn þing­mann­anna hafi játað á sig brot á hegn­ing­ar­lögum með ummælum um hrossa­kaup í sendi­herra­skip­unum?

„Eins og lýs­ingin er á umræðu um sendi­herra­skip­anir áttu þessir atburðir sér stað í ráð­herra­tíð Gunnars Braga á árinu 2014. Hér er því álita­mál hvort um brot ráð­herra í starfi sé að ræða, einkum 128. grein almennra hegn­ing­ar­laga sem fjallar um hátt­semi sem felur í sér mútur og spill­ingu. Burtséð frá efni ummæl­anna verður að hafa í huga að mál vegna emb­ætt­is­brota ráð­herra falla undir sér­reglur um ráð­herra­á­byrgð og lands­dóm og verða aðeins höfðuð sam­kvæmt ákvörðun Alþingis. Samkvæmt lögum um ráð­herra­á­byrgð frá árinu 1963 verður Alþingi að höfða mál gegn ráð­herra innan þriggja ára frá því brot var framið, eða innan sex mán­aða frá því næstu alþing­is­kosn­ingar eftir brot var framið. Mér sýn­ist því ljóst að meint brot í ráð­herra­tíð Gunnars Braga séu fyrnd. Hitt er svo annað mál að þessi ummæli ein og sér eru ólík­leg til sak­fellis fyrir emb­ætt­is­brot. Þau eru ekki af þeim styrk­leika og sett fram í því sam­hengi að erfitt yrði að sanna ásetn­ing manna til að fremja brot.“

Spurð hvort það sem sagt var á þess­ari sam­komu gefi til­efni til opin­berrar rann­sóknar, svarar Björg að það verði ekki séð að það sem þing­menn sögðu almennt í umræð­unni feli í sér lög­brot.

„Þótt ummælin sem slík séu æru­meið­andi fyrir þá sem fjallað var um verður að hafa í huga að þau komu fram í einka­sam­tölum milli manna sem ekki var ásetn­ingur til að birta eða dreifa opin­ber­lega. Birting ummæl­anna, sem tekin voru upp með leynd og komu fram í einka­sam­tali, er því ótví­rætt inn­grip í frið­helgi einka­lífs þing­mann­anna.

Það er erfitt að líða þjóð­kjörnum full­trúum slíka fram­komu.

Ummælin fela fyrst og fremst í sér áfell­is­dóm yfir þeim mönnum sem eiga í hlut, aðal­lega alvar­legan sið­ferð­is­brest. Það er erfitt að líða þjóð­kjörnum full­trúum slíka fram­komu. En eins og ég sagði áðan þá eru þau tak­mörk sett í lögum, einmitt til að vernda sjálf­stæði þing­manna gagn­vart ólög­mætum afskiptum, að þeim verður ekki vikið úr starfi. Aðeins kjós­endur geta ákveðið að hafna þeim þegar kemur að næstu kosn­ingum.“

Þú átt sem sagt ekki von á því að þessi fundur og þau ummæli sem þar féllu hafi neinar afleið­ingar til lengri tíma litið?

„Ekki beinar laga­legar afleið­ingar eins og ég nefndi fyrr. En von­andi mun þetta hafa á áhrif á að þing­menn átti sig á stöðu sinni og mik­il­vægi þess að per­sónu­leg breytni þeirra skiptir miklu máli fyrir ímynd Alþingis og traust almenn­ings til þess. Það hefur komið fram í umræð­unni að það sé alkunna að þing­menn tali svona sín í milli, sem ég trúi nú ekki að sé rétt. Sé eitt­hvað til í því verður að draga þann lær­dóm af þessu máli að menn þurfa að end­ur­skoða við­horf sín, hátt­semi og ummæli, sýna dóm­greind og veita sjálfum sér aðhald.“

Aðsend mynd/ Kristinn Ingv­ars­son

Sjá einnig: Vand­ræða­legt karla­grobb en kallar ekki á afsagnir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Klausturmálið

FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi