Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Villtist inn í leiklistina

Lára Jóhanna Jóns­dóttir er skyndi­lega á allra vörum eftir frá­bæra frammi­stöðu í hlut­verkum sínum í Lof mér að falla og Flat­eyj­ar­gátu. Hún seg­ist þó aldrei hafa ætlað sér að verða leik­kona, var búin með eitt ár í lækn­is­fræði þegar hún komst inn í Lista­há­skól­ann, enda seg­ist hún hafa verið raun­greinanörd á yngri árum og ekk­ert sér­stak­lega gefin fyrir það að draga að sér athygl­ina.

Villtist inn í leiklistina
|

Þrátt fyrir að hafa verið að leika í Borg­ar­leik­hús­inu og Þjóð­leik­hús­inu nán­ast stöðugt síðan hún útskrif­að­ist frá Lista­há­skóla Íslands árið 2010 er Lára til­tölu­lega óþekkt stærð í augum íslensku þjóð­ar­innar og eftir að við höfum komið okkur þægi­lega fyrir, pantað te og kaffi og við­haft eitt­hvað inni­halds­lítið snakk um dag­inn og veg­inn liggur bein­ast við að að fyrsta spurn­ingin sé ein­fald­lega: Hver er Lára Jóhanna Jóns­dóttir?

Það kemur pínu­lítið á Láru, hún átti greini­lega ekki von á þess­ari spurn­ingu, en hún gerir samt sem áður sitt besta til að svara. „Ég er 34 ára gömul leik­kona og hef verið að stúss­ast í hinu og þessu í gegnum tíð­ina,“ segir hún hugsi.

„Ég ólst upp í Breið­holt­inu nán­ast alla mína bernsku. Alveg frá því að ég var þriggja ára og fram á full­orð­insár. Reyndar fluttum við til London og bjuggum þar í tvö ár þegar ég var níu og tíu ára, en svo bara fórum við aftur í Breið­holtið. Núna bý ég reyndar í Vest­ur­bænum með kærust­unni minni og sex ára dóttur minni og er á föstum samn­ingi við Þjóð­leik­húsið.“

Ég upp­lifi reyndar ekki að ég sé þekkt and­lit.

Þrátt fyrir að hafa verið leika heil­mikið í stóru leik­hús­unum árum saman hefur Lára lítið leikið í kvik­myndum og sjón­varpi fyrr en hún nán­ast hellt­ist yfir þjóð­ina í hlut­verki Magneu í kvik­mynd­inni Lof mér að falla og Jóhönnu í sjón­varps­þátt­unum Flat­eyj­ar­gátu. Hvernig er að vera allt í einu orðin þekkt and­lit?

„Ég upp­lifi reyndar ekki að ég sé þekkt and­lit,“ segir Lára og fer hjá sér. „Mér fannst mjög gaman að vera með í báðum þessum verkum og það er dýr­mæt reynsla. Það var svo­lítið erfitt að leika í Lof mér að falla því hand­ritið er unnið út frá sögum raun­veru­legs fólks, bæði sögum kvenna sem eru eða hafa verið í neyslu og sögu Krist­ínar Gerðar sem svipti sig lífi eftir hrika­lega reynslu sem tengd­ist neyslu hennar. Það gefur mynd­inni meira vægi í mínum huga og það er líka auð­veld­ara fyrir mann sem leik­ara að gera það sem maður þarf alltaf að gera, að trúa sög­unni þegar maður veit að hún er byggð á reynslu raun­veru­legs fólks.“

Lára þekkti ekki fíkni­efna­heim­inn af eigin reynslu áður en hún byrj­aði að vinna við mynd­ina. „Ég hef alveg kynnst fólki sem hefur verið í neyslu, en ekki þannig að það hafi verið nálægt mér per­sónu­lega og ég hafi þurft að takast á við neyslu þess. Ég hef bara horft á þetta úr fjar­lægð.“

Varst þú sem sagt algjör fyr­ir­mynd­ar­ung­lingur í Breið­holt­inu? „Jaaaaá,“ segir Lára og hugsar sig um. „Við í mínum hópi vorum voða róleg. Ég var eng­inn rosa djammari og próf­aði aldrei nein efni eða neitt í þá átt­ina. Ég er senni­lega bara frekar róleg týpa. Var eig­in­lega hálf­gert nörd sem barn og ung­lingur. Alltaf í ein­hverjum pæl­ingum sem flestar tengd­ust raun­greinum sem mér fund­ust skemmti­leg­astar af öllu í skól­anum.“

Ég bara villt­ist ein­hvern veg­inn inn í leik­list­ina þegar ég var í mennta­skóla.

Æsku­draumar hennar tengd­ust því ekki að verða leik­kona. „Nei, nei, nei,“ segir Lára ákveðin.

„Ég bara villt­ist ein­hvern veg­inn inn í leik­list­ina þegar ég var í mennta­skóla. Ég tók alltaf þátt í ein­hverjum leikatriðum með krökk­unum í blokk­inni á vor­há­tíðum, en ég var ekki týpan sem tróð upp í mat­ar­boðum. Áhugi minn á leik­list kvikn­aði eig­in­lega meira út frá félags­skapnum sem var í leik­fé­lag­inu í M.S. Þar byrj­aði ég líka að hafa áhuga á að standa á sviði. Það var alltaf svo gaman í kringum allar leik­sýn­ingar. Krakk­arnir í leik­fé­lag­inu urðu hóp­ur­inn minn og út frá því fór ég að hafa áhuga á að búa eitt­hvað til. Ég hafði alltaf lifað mig rosa­lega inn í það að horfa á leik­hús, en áhug­inn á því að vera með í að búa til leik­sýn­ingu kom eftir á. Þannig að ég slys­að­ist eig­in­lega inn á þessa braut.“

Lára byrj­aði í lækn­is­fræði við Háskóla Íslands en leik­list­ar­bakt­er­ían tog­aði þó alltaf í hana.

Leikarar tala gjarnan um brenn­andi leik­list­ar­bakt­eríu og Lára slapp ekki við hana. „Ég fékk hana alveg eftir að ég datt inn í þennan heim og þá fyrst varð þetta virki­lega æðis­legt,“ segir hún og hlær. „En ekki einu sinni á mennta­skóla­ár­unum ætl­aði ég mér að verða leik­kona. Ég sá mig alltaf fyrir mér sem ein­hvers konar vís­inda­mann. Ég var á eðl­is­fræði­braut í M.S. og var þar alveg í kjörað­stæðum. Hitt var meira svona hlið­ar­á­huga­svið.“

Mér skilst til dæmis að ég hafi þagað í hálft ár eftir að ég byrj­aði í skól­anum þar.

Spurð nánar út í árin sem Lára bjó í London sem barn, hvort það hafi verið erfitt fyrir níu ára gamla stúlku að flytja í fram­andi umhverfi og tala ekki einu sinni tungu­málið segir Lára: „Jú, það var erfitt,“ segir hún hrein­skiln­is­lega.

„Mér skilst til dæmis að ég hafi þagað í hálft ár eftir að ég byrj­aði í skól­anum þar. Ég bara þagði þangað til ég kunni málið og þá fór ég að tala. Ég er samt mjög þakk­lát fyrir að hafa fengið þessa reynslu. Það var dálítið mikið öðru­vísi að vera barn á Englandi en á Íslandi, alla­vega á þessum tíma. Ég fór bara í skól­ann í hverf­inu sem var pínu­lít­ill og krútt­legur, og fíl­aði mig mjög vel þar á end­anum. Var með dásam­legan kenn­ara og and­rúms­loftið var mjög fal­legt.“

Fékk ársfrí frá læknisfræðinni

For­eldrar Láru eru bæði kenn­arar en hún seg­ist aldrei hafa haft áhuga á því að leggja kennslu fyrir sig. Hún er yngst fjög­urra systk­ina en hún seg­ist samt ekki vera neitt dek­ur­barn, enda sé stutt á milli þeirra. Í sam­ræmi við raun­greina­á­hug­ann byrj­aði Lára í lækn­is­fræði við Háskóla Íslands, en leik­list­ar­bakt­er­ían tog­aði þó alltaf í hana og hún fór tvisvar í inn­töku­próf við sviðs­lista­deild Lista­há­skól­ans.

Hún seg­ist heldur ekki hafa orðið fyrir þrýst­ingi frá for­eldrum sínum um það að leggja eitt­hvað sér­stakt starf fyrir sig, það hafi alfarið verið hennar ákvörðun að skrá sig í lækn­is­fræði í Háskól­anum. „Ég var búin með eitt ár þegar ég komst inn í Lista­há­skól­ann og hætti,“ útskýrir hún.

Þegar maður dettur svo inn í leik­list­ar­skól­ann er það alveg hund­rað pró­sent.

„Leik­listin tog­aði meira í mig, en ég var samt alls ekki viss og fékk upp­haf­lega bara árs­leyfi frá lækn­is­fræð­inni til að skoða þetta og kom­ast að nið­ur­stöðu um það hvort námið ég vildi. Þegar maður dettur svo inn í leik­list­ar­skól­ann er það alveg hund­rað pró­sent, það er ekk­ert pláss fyrir neitt annað. Leik­listin er svo ánetj­andi, það er engin leið til baka. Maður var bara allan sól­ar­hring­inn að pæla í leik­list og hugsar ekk­ert um hvort maður vildi kannski gera eitt­hvað annað.“

Hún seg­ist aldrei hafa séð eftir því að velja leik­list­ina fram yfir lækn­is­fræð­ina. „Nei, aldrei,“ segir hún af sann­fær­ingu og hristir höf­uðið ákaft. „Það getur vel verið að ein­hverjar aðrar leiðir hefðu verið praktísk­ari og góðar líka, en ég hugs­aði ekk­ert um það. Hér er ég og það er fínt. Ég myndi ekki vilja vera ann­ars staðar.“

Tveimur árum eftir útskrift úr Lista­há­skól­anum eign­að­ist Lára dóttur sína með þáver­andi kærasta. Þá var hún á samn­ingi hjá Borg­ar­leik­hús­inu og þegar hún komst að því að hún væri ófrísk var hún byrjuð að sýna í hlut­verki Dóróteu í Galdra­karl­inum í Oz.

Hún segir það hafa verið heil­mikið mál að fela óléttu­bumb­una á síð­ustu sýn­ing­unum enda var hún komin sjö mán­uði á leið þegar þar var komið sögu. „Ég get svo svarið það að óléttu­bumban varð ekki áber­andi fyrr en eftir síð­ustu hneig­ingu,“ segir hún og skelli­hlær. „En mér þykir dálítið vænt um að dóttir mín skuli hafa verið með mér á svið­inu heilan vetur.“

Viðtalið við Láru má lesa í heild sinni í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Myndir / Hákon Davíð Björns­son
Förðun / Perla Kristín förð­un­ar­fræð­ingur Urban Decay

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi