Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nýr spurningaþáttur á RÚV leysir Útsvar af hólmi

Nýr spurningaþáttur á RÚV leysir Útsvar af hólmi
Bragi Valdimar Skúlason Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Með vor­inu verður spurn­inga­þátt­ur­inn Útsvar að öllum lík­indum kvaddur og í stað­inn hefst þátt­ur­inn Kappsmál sem Bragi Valdimar Skúlason og Björg Magn­ús­dóttir munu leiða ásamt glás af góðu fólki. Við spurðum Braga út í nýja þátt­inn.

„Þetta eru í raun orða­leikir af ýmsum gerðum. Við ætlum eig­in­lega bara að leika okkur að mál­inu með öllum til­tækum ráðum,“ segir Bragi Valdimar sem hefur sann­ar­lega mörg starfs­heiti og er tón­listar-, aug­lýs­inga-, orða­leikja-, þátta- og texta­gerð­ar­maður. „Við ætlum að fá alls­konar fólk til að taka þátt. Héðan og þaðan af öllum mögu­legum stærðum og gerðum. Skil­yrðið er að hafa gaman af mál­inu og vera óhrædd við að takast á við það.“

Er það rétt að Útsvarið sé að hætta og þessi þáttur muni koma í hans stað? „Kappsmál fer ekki í loftið fyrr en næsta vor. En ef vel gengur geri ég ráð fyrir að þessi þáttur taki alfarið yfir dag­skrá RÚV,“ svarar Bragi og við spyrjum hann þá hvort hann ótt­ist ekki að aðdá­endur Úrsvars­ins verði brjál­aðir við tíð­indin. „Það eru hvort eð er allir alltaf brjál­aðir. Hvort sem þeir horfa á Útsvar eða ekki,“ segir hann þá og hlær.

Húmor fyrir tungumálinu mikilvægur

Bragi segir að land­inn hafi gríð­ar­legan áhuga á tungu­mál­inu og sterkar skoð­anir. „Aðallega held ég að það sé vegna þess að við getum notað það til að hugsa á í friði. Flestir vilja passa vel upp á tung­una og fara vel með hana. En það er auð­vitað líka mik­il­vægt að pota aðeins í hana og teygja í ýmsar áttir.“

Aðspurður segir hann mik­il­vægt að fjalla um íslensk­una eins og gert var í þátt­unum Orðbragð og gert verður í Kapps­máli. „Já, tví­mæla­laust. Við Brynja og Konni lögðum alltaf áherslu á að skoða málið á skemmti­legan og opinn hátt, forð­ast predik­anir og vera hæfi­lega for­vitin, helst hnýsin. Brynja verður okkur einmitt til ráð­gjafar í þessum þáttum, en hún er að spreng­mennta sig í útland­inu þessi miss­erin.“

Má gera grín að móð­ur­mál­inu og er það kannski mik­il­vægt til að ná til fólks? „Það er bráð­nauð­syn­legt, þetta er okkar eina móð­ur­mál og það væri verra ef okkur færi að finn­ast það leið­in­legt. Mér hefur reyndar ekki enn þá tek­ist að finna neitt sér­stak­lega fyndið við aft­ur­beygðar sagnir.“

Þessa dag­ana er verið að þróa þátt­inn, finna leiki, prófa þá og finna út hvað virkar en fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Skot vinnur þetta með RÚV. Fram undan er hins vegar jóla­ver­tíðin. „Akkúrat núna er jóla­ver­tíð Baggalúts að bresta á með til­heyr­andi jóla­hoppi og híi á átján tón­leikum í Háskóla­bíói. Og fyrst spurt er, þá ætlum meðal ann­ars að gefa út nýtt æsispenn­andi jóla­lag með Svölu Björg­vins, sem dettur í hús á morgun. Það heitir svo mikið sem SEX,“ segir Bragi Valdimar að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi