Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ísland – án jarðefnaeldsneytis árið 2030

Lofts­lags­breyt­ingar eru stærsta ógn mann­kyns. Þetta sagði aðal­rit­ari Sam­ein­uðu þjóð­anna, António Guerres , í mars á þessu ári á meðan hann velti því upp hversu margar neyð­ar­bjöllur þyrftu að hringja til að heim­ur­inn tæki almenni­lega við sér.

Ísland – án jarðefnaeldsneytis árið 2030
||

Nei, ekki kjarn­orku­stríð, borg­ara­styrj­aldir eða hungur – heldur lofts­lags­breyt­ingar. Og enn heldur jörðin áfram að gefa sterk merki – sem fleiri villi­eldar, felli­byljir og hita­bylgjur á þessu ári bera vott um. Texti Utan­garðs­manna í lag­inu Hírósíma virð­ist ekki svo fjar­lægur veru­leiki þegar spár vís­inda­manna um 3° og 4° hlýnun jarðar eru skoð­aðar.

Hlýnun jarðar er óum­deil­an­leg og hefur verið stað­fest í mörgum athug­unum frá mið­biki síð­ustu aldar. Áhrif þess eru marg­vís­leg, t.d. breyt­ingar á veð­ur­fari – aukið átaka­veður, þurrkar, villi­eldar og breyt­ingar á vinda­fari, súrnun sjávar og hækkun sjáv­ar­máls. Lofts­lags­breyt­ingar munu stofna fæðu­ör­yggi og heilsu í hættu á mörgum svæðum heims­ins. Milli­ríkja­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar sendi út við­vörun í októ­ber enda hafa stjórn­málin tekið hægt við sér. Kallað var eftir taf­ar­lausum aðgerðum til að tak­marka losun ef mark­mið Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins um 1,5°C hlýnun frá árs­með­al­hita frá iðn­bylt­ingu á að standa. Samkvæmt Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu hafa 197 ríki heims, m.a. Ísland, skuld­bundið sig til að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda til að halda hnatt­rænni hlýnun jarðar frá iðn­bylt­ingu undir 2° en und­ir­mark­mið var 1,5°.

Notkun jarðefnaeldsneytis veldur skaðanum

Rann­sóknir hafa leitt í ljós að notkun á jarð­efna­elds­neyti – olíu, kolum og gasi – hefur  valdið mestri losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda af manna­völdum eða 80% af heild­ar­losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í heim­inum á árunum 1970 til 2010. Þessir orku­gjafar losa koltví­sýr­ing út í and­rúms­loftið og auk­inn styrkur hans í and­rúms­loft­inu veldur því að hita­stig jarðar hækkar. Jarð­efna­elds­neyti heldur áfram að vera meg­in­orku­gjaf­inn í heim­inum og þrátt fyrir fjöl­breyttar áætl­anir ríkja til að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda jókst losun vegna jarð­efna­elds­neyta um 1 gígatonn á ári frá 2000-2010. Talið er að aðeins um 100 alþjóða­fyr­ir­tæki séu ábyrg fyrir 71% af losun frá 1988. Þar af er talið að 25 fyr­ir­tæki beri ábyrgð á helm­ingi los­unar, eða 50%. Ljóst er að iðn­aður og fyr­ir­tæki sem nota jarð­efna­elds­neyti bera mikla ábyrgð, en jafn­framt við sem neyt­endur.

Í vik­unni kom út skýrsla á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna þar sem fram kemur að heim­ur­inn þurfi að þre­falda áætl­anir um að draga úr notkun jarð­efna­elds­neytis til að halda sig við mark­mið um 2° hlýnun ella verði afleið­ing­arnar hörmu­legar. Skuld­bind­ingum Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins verði ekki mætt nema komi til við­bót­ar­að­gerða.

Á Íslandi mun áhrifa einna helst gæta af ýmis­konar nátt­úruvá – breyt­ingum á jöklum, vatnaf­ari og sjáv­ar­stöðu. Í skýrslu vís­inda­nefndar um áhrif lofts­lags­breyt­inga hér á landi er bent á aukna flóða- og rign­ing­ar­hættu sem og að rýrnun jökla geti leitt til breyt­inga á jök­ul­hlaupum og aukið kviku­fram­leiðslu undir Íslandi. Taka þurfi til­lit til þess við áhættu­mat vegna eld­gosa. Fyrst og fremst er þörf á auknum rann­sóknum enda áhrif hlýn­andi lofts­lags á veð­ur­far ekki ljós, svo sem á aftaka­veður eða lægða­gang. Súrnun sjávar er þó hrað­ari á okkar haf­svæði en víða ann­ars staðar, sem hlýtur að valda áhyggjum, m.a. vegna áhrifa á sjáv­ar­út­veg.

Áætlun ríkisstjórnarinnar

Rík­is­stjórnin birti aðgerð­ar­á­ætlun í lofts­lags­málum í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Markmið áætl­un­ar­innar er að upp­fylla skuld­bind­ingar Íslands sam­kvæmt Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu árið 2030 og ná kolefna­hlut­leysi árið 2040. Draga á úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda einkum með tveimur verk­efnum, með orku­skiptum í sam­göngum og með end­ur­heimt vot­lendis, bind­ingu kolefnis með land­græðslu og skóg­rækt. Útfösun jarð­efna­elds­neytis er lang­tíma­mark­mið og ekki á að hætta notkun fyrr en eftir 32 ár, eða árið 2050.

Meira og minna allur iðn­aður á Íslandi losar gróð­ur­húsa­loft­teg­undir. Vélar og tæki í bygg­ing­ar­iðn­aði, losun á sér stað við með­ferð úrgangs, í land­bún­aði og frá iðn­að­ar­ferlum vegna stór­iðju. Þá er losun tals­verð í flug­sam­göngum og skipa­flutn­ingum. Innan skipa­flutn­inga hefur losun hins vegar dreg­ist saman með lofts­lagsvænni skipa­starf­semi, losun hefur staðið í stað í land­bún­aði en auk­ist vegna stór­iðju og flug­sam­gangna.

Fossil free Iceland 2030

Á mið­viku­dag­inn stóð Sænsk-íslenska við­skipta­ráðið fyrir ráð­stefnu í Háskóla­bíói undir yfir­skrift­inni: Fossil free Iceland 2030 – Ísland án jarð­efna­elds­neyta. Áhersla var lögð á orku­skipti í vega­sam­göngum og raf­væð­ingu bíla­flot­ans. Efni ráð­stefn­unnar rímar við verk­efni stjórn­valda um að hraða orku­skiptum í vega­sam­göngum, en eins og yfir­skriftin ber með sér er lagt til að gengið sé lengra og mark­miðið sett hærra. Fram­sögu­menn voru frá Íslandi, þar með talið sam­göngu­ráð­herra, og frá Svíþjóð. Svíar eru rísandi stjörnur í raf­bíla­heim­inum, ásamt Noregi, en sam­spil fram­sýnnar stefnu­mót­unar og hag­felldra mark­aðs­skil­yrða hefur unnið þeim þann titil. Mikil áhersla hefur verið á tækni­þróun fyrir raf­rænar vega­sam­göngur og fyr­ir­tæki eins og Scania eru leið­andi í heim­inum með hybrid-stræt­is­vagna og -vöru­bíla. Í þeirri áskorun sem aðlögun vegna lofts­lags­breyt­inga eru fyrir heim­inn fel­ast líka tæki­færi, eins og fram kom á ráð­stefn­unni.

Meðal þeirra sem tóku til máls á ráð­stefn­unni Fossil free Iceland 2030 – Ísland án jarð­efna­elds­neyta var Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu­ráð­herra. Mynd / Hákon Davíð

Í júní á þessu ári sagði umhverf­is­ráð­herra: „Rafbílar gætu orðið næsta stóra bylt­ingin í sam­göngu- og lofts­lags­málum hér á landi“. Á ráð­stefn­unni kom fram að á Íslandi eru góðar for­sendur til raf­bíla­væð­ingar sem og tals­verður efna­hags­legur ávinn­ingur. Í fyrsta lagi er talið að raf­væddur bíla­floti noti aðeins lítið magn af fram­leiddu raf­magni hér á landi. Um 280 þús­und bílar eru skráðir á Íslandi en mögu­lega muni þeir aðeins nota um 3% af fram­leiddu raf­magni. Í öðru lagi getur landið orðið með öllu óháð inn­flutn­ingi á olíu vegna vega­sam­gangna, en það mun skila efna­hags­legum ávinn­ingi í formi gjald­eyr­is­tekna og hafa jákvæð áhrif á vöru­skipta­jöfnuð. Notkun raf­bíla mun enn­fremur auka loft­gæði með því að draga úr mengun. Inn­viða­upp­bygg­ing þarf að eiga sér stað sam­hliða en nú þegar hafa hrað­hleðslu­stöðvar verið settar upp við hring­veg­inn og þá má jafn­framt huga að mörgum nýsköp­un­ar­tæki­færum svo sem varma­skipta­stöðvum sem taka inn á sig heitt vatn og breyta því í raf­magn. Fyrir nokkrum dögum var það svo stað­fest af Evrópsku umhverf­is­stofn­un­inni að m.t.t. líf­tíma og fram­leiðslu eru raf­bílar mun umhverf­is­vænni. Það á ekki ein­ungis við í tengslum við losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda heldur einnig til að draga úr mengun, sem er ekki síður skað­leg umhverf­inu.7

Ísland hefur reynslu af umfangs­miklum orku­skiptum, þegar átak var gert í orku­skiptum við hús­hitun á 20. öld sem var fram­fara­skref í átt að betri lífs­kjörum og sjálf­bær­ara sam­fé­lagi. Af öðrum mögu­legum ávinn­ingi er ímynd Íslands – öll orka í dag­legu lífi Íslend­ings yrði fengin af end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum.

Sala raf­bíla hefur auk­ist tals­vert á Íslandi og hlut­fall end­ur­nýj­an­legrar orku í vega­sam­göngum hér á landi er nú 7,7%. Stjórn­völd hafa stutt við þessa þróun með íviln­unum, þ.e. með afslætti af virð­is­auka­skatti þegar keypt eru slík far­ar­tæki. Markmið íslenskra stjórn­valda er nú að hlut­fall end­ur­nýj­an­legrar orku verði 40% árið 2030 og að nýskrán­ingar bensín- og dísel­bíla verði óheim­ilar það ár. Þetta á að minnka losun frá vega­sam­göngum um 35% árið 2030 sé miðað við árið 2005. Til sam­an­burðar hefur norska þingið sett markið á að allir nýir bílar losi ekk­ert árið 2025. Í Noregi er meiri­hluti keyptra nýrra bíla nú raf­magns­bílar. Í Svíþjóð er gengið enn lengra og miðað við að minnka losun um 70% í vega­sam­göngum miðað við 2030.

Mynd af vef Hagstofu Íslands.

For­sendur fyrir orku­skiptum í sam­göngum hér á landi eru góðar með til­liti til smæðar lands­ins og aðgengi að orku. Stjórn­völd eiga að setja markið hærra hvað varðar hlut­fall end­ur­nýj­an­legrar orku í vega­sam­göngum, ef millj­óna­lönd eins og Noregur og Svíþjóð geta það, getum við það líka. Nýjustu fréttir úr alþjóða­sam­fé­lag­inu styðja það mark­mið og nýlegar tölur Hag­stof­unnar bera jafn­framt vott um að ein­stak­lingar á Íslandi losi mestan koltví­sýr­ing í Evrópu. Í sam­ræmi við yfir­skrift ráð­stef­unnar – skal stefnan sett á Raf­magnað Ísland 2030.

Lofts­lags­breyt­ingar eru eitt umfangs­mesta verk­efni sem heim­ur­inn stendur frammi fyrir í dag og hefur áhrif á alla þætti sam­fé­lags, svo sem lifn­að­ar­hætti, atvinnu­greinar, efna­hag og nátt­úru. Tökum það verk­efni föstum tökum. Í vega­sam­göngum er dauða­færi til að gera enn betur.

Sjá einnig: Ísland jarð­efn­iselds­neyt­is­laust árið 2030

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi