Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Allt í einu var ég ekki lengur ein í þessu öllu“

E ndur­hæf­ingar- og stuðn­ings­mið­stöðin Ljósið var Sólveigu Kolbrúnu Páls­dóttur ómissandi þegar hún greind­ist með krabba­mein árið 2017. Hún hvetur fólk til að mæta á Ljósa­foss félags­ins sem er tákn­rænn við­burður sem hald­inn er til að minna fólk á starf­semi Ljóssins.

„Allt í einu var ég ekki lengur ein í þessu öllu“
||

Hinn árlegi Ljósa­foss niður hlíðar Esjunnar mun eiga sér stað á laug­ar­dag­inn. Þar mun stór hópur göngu­fólks hitt­ast við Esju­stofu klukkan 15:00, halda upp að Steini klukkan 16:00 og ganga svo niður Esjuna með höf­uð­ljós svo úr verður fal­legur „ljósa­foss“. Þetta er í níunda sinn sem Ljósa­foss­inn er hald­inn

Ljósa­foss­inn er gerðir til að minna á starf­semi Ljóssins, end­ur­hæf­ingar- og stuðn­ings­mið­stöðvar fyrir krabba­meins­greinda og aðstand­endur þeirra.

Sólveig Kolbrún Páls­dóttir, mark­aðs- og kynn­ing­ar­stjóri Ljóssins, er spennt fyrir laug­ar­deg­inum. Hún hvetur fólk til að mæta. „Þetta er tákn­rænn við­burður þar sem fólk mun lýsa upp myrkrið með ljósi. Í raun geta allir sem eru til í smá vetr­ar­úti­vist tekið þátt.“

Á laug­ar­dag­inn verður Ljósa­foss Ljóssins hald­inn í níunda sinn.

Kynntist Ljósinu þegar hún greindist með brjóstakrabbamein

Áður en Sólveig tók við starfi mark­aðs- og kynn­ing­ar­stjóra Ljóssins fékk hún að kynn­ast starf­inu sem unnið er í Ljósinu þegar hún greind­ist sjálf með brjóstakrabba­mein í byrjun árs 2017. Hún nýtti sér þá þjón­ustu Ljóssins.

„Ljósið er einn af þessum stöðum sem þú veist ekki hvað býður upp á eða hvað skiptir miklu máli fyrr en þú eða ein­hver sem er þér nákom­inn grein­ist með krabba­mein. Þegar ég greind­ist með brjóstakrabba­mein í byrjun árs 2017 var ég svo upp­tekin að því að hugsa um hvernig ég myndi lifa af. Ég spáði lítið í því hvað lyfja­með­ferð, stór aðgerð, það að vera kippt út úr vinnu og fleira myndi hafa á lík­ama og sál,“ útskýrir Sólveig.

Sólveig segir að fljótt eftir fyrstu lyfja­með­ferð­ina sem hún gekkst undir hafi hún raun­veru­lega áttað sig á hversu stórt verk­efni biði hennar „Þá var staðan orðin þannig að hvorki ég né mað­ur­inn minn vissum hvernig við ættum að tækla van­líð­an­ina sem með­ferðin hafði skapað. Ég sendi því póst í Ljósið.“

Sólveig greind­ist með brjóstakrabba­mein í byrjun árs 2017. Hún nýtti sér þá þjón­ustu Ljóssins.

Sólveig kveðst hafa fengið svar frá Ljósinu nokkrum mín­útum eftir að hún sendi póst­inn. Hún var boðuð á kynn­ing­ar­fund. „Þá allt í einu var ég ekki lengur ein í þessu öllu. Það er nefni­lega svo skrýtið hvernig maður getur ein­angr­ast við að bera þessa byrgði sem krabba­meinið er. Maður reynir að hlífa fólk­inu sínu sem mest en maður þarf stuðn­ing. Og þar kemur Ljósið inn.“

Þegar Sólveig mætti fyrst á fund hjá Ljósinu var skrefið yfir þrösk­uld­inn þungt að hennar sögn. „Það skref fól í sér við­ur­kenn­ingu á hvað væri í gangi. En þegar ég var komin yfir hann þá varð allt létt,“ útskýrir Sólveig.

„Í Ljósinu fékk ég strax iðju­þjálfa, sjúkra­þjálf­ara, sál­fræð­ing og áætlun um hvernig þau ætl­uðu að fylgja mér í gegnum þetta ferli. Og allt þetta án til­kostn­aðar. Þau sáu líka til þess að ég myndi ekki ein­angr­ast og hjálp­uðu mér í öðl­ast nýja og spenn­andi færni. Þannig gat ég í raun notað tím­ann til að skoða hver ég er og hvernig lífi ég vill lifa,“ segir Sólveig.

Maður reynir að hlífa fólk­inu sínu sem mest en maður þarf stuðn­ing.

Hún tekur fram að í gegnum Ljósið hafi fjöl­skylda hennar einnig fengið góða þjón­ustu. „Til dæmis fóru börnin mín þrjú á sér­sniðið nám­skeið fyrir börn þeirra sem grein­ast með krabba­mein. Þannig náðu þau betur áttum. Og svo fórum við mað­ur­inn minn einnig saman á nám­skeið sér­sniðið fyrir pör,“ segir Sólveig. Hún bendir á að það reyni vissu­lega mikið á sam­bönd og hjóna­bönd þegar annar aðil­inn grein­ist með krabba­mein.

Hætti í ferðaþjónustu og fór til Ljóssins

„Ég gæti í raun setið og talað enda­laust um Ljósið og hversu magnað starfið er sem þar er unnið. En það er skemmst frá því að segja að eftir að ég sneri aftur til vinnu tók ég ákvörðun um að breyta til, ég sagði upp starfi mínu í ferða­þjón­ustu og réði mig til Ljóssins.“

Ég gæti í raun setið og talað enda­laust um Ljósið.

Aftur hvetur Sólveig fólk til að mæta á laug­ar­dag­inn og taka þátt í Ljósa­foss­inum. „Við hjá Ljósinu von­umst auð­vitað til að sjá sem flesta á laug­ar­dag­inn. En helst viljum við að fólk muni eftir Ljósinu og öllu því góða sem félagið gerir fyrir krabba­meins­greinda og fjöl­skyldur þeirra, og þannig fyrir íslenskt sam­fé­lag.“

Mynd / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi