Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Örlög Wow air ráðast á föstudag

Í gær voru við­skipti með hluta­bréf í Icelandair stöðvuð í annað skiptið í nóv­em­ber. Rétt fyrir hádegi kom síðan til­kynn­ing frá Icelandair um að ólík­legt væri að öll skil­yrði myndu nást varð­andi kaupi félags­ins á Wow air fyrir hlut­hafa­fund sem haldin verður á föstu­dag, 30. nóv­em­ber. Einnig voru við­skipti með bréf félags­ins stöðvuð þann 5. nóv­em­ber þegar til­kynnt var um kaup Icelandair á Wow air.

Örlög Wow air ráðast á föstudag
||

Um helg­ina bár­ust fréttir af því að dótt­ur­fé­lag Icelandair hygð­ist kaupa 51% hlut í rík­is­fé­lag­inu Cabo Verde Airlines á Græn­höfða­eyjum. Ætlunin væri að nota stað­setn­ingu þess svipað og Keflavík og tengja eyj­arnar fyrir flug­um­ferð um Atl­ants­haf. Reyndar er komið meira en ár síðan Icelandair hóf sam­starf á Græn­höfða­eyjum.

Aðilar á mark­aði höfðu þó ekki trú á að þessi frétt um kaup á félagi á Græn­höfða­eyjum væru ástæður þess að lokað var fyrir við­skipti með bréf Icelandair. Líkt og kom svo í ljós.

Ný tilkynning Icelandair til Kaupahallar í morgun

Í morgun kom svo önnur til­kynn­ing frá Icelandair þar sem það til­kynnti um að við­ræður væru hafnar við skulda­bréfa­út­gef­endur um breyt­ingar á skil­málum skulda­bréfa félags­ins og að mark­miðið sé að styrkja stöðu þess. Icelandair fékk tíma­bundna und­an­þágu frá fjár­hags­legum skil­málum til föstu­dags en þá er hald­inn hlut­hafa­fundur í félag­inu. Umræddir skil­málar tengd­ust lág­marks­af­komu félags­ins.

Alvarlegur lausafjárvandi WOW air

Eins og áður hefur komið fram var lausa­fjár­staða Wow air um síð­ustu mán­aða­mót lík­lega ein helsta ástæða þess að Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi flug­fé­lags­ins ákvað að leita á náðir Icelandair. Lausafé hafi verið nær uppurið þegar búið var að greiða laun og aðra reikn­inga. Nú er útlit fyrir að næst­kom­andi mán­aða­mót verði félag­inu jafn­vel enn erf­ið­ari en þau síð­ustu. Segja má að þetta minni um margt á stöðu íslenskra fjár­mála­fyr­ir­tækja síð­ustu mán­uð­ina fyrir hrun. Þar var það yfir­leitt lausa­fjár­staða sem var að skapa þeim vand­ræði. Í fjár­festa­kynn­ingu sem kynnt var vegna skulda­bréfa­út­boðs Wow air kom fram að hand­bært fé frá rekstri hafi ein­ungis numið sex millj­ónum doll­ara í júní á þessu ári.

Í gær sendi Skúli Mogensen svo tölvu­póst á starfs­menn Wow air þar sem hann full­yrti að fleiri aðilar en Icelandair hefðu sýnt flug­fé­lag­inu áhuga. Wow air væri því í við­ræðum við fleiri en Icelandair um yfir­töku á félag­inu. Morg­un­blaðið sagði svo frá því í morgun að þessi tölvu­póstur Skúla hefði valdið titr­ingi og for­svars­mönnum Icelandair hafi ekki verið kunn­ugt um þær.

Vík­ur­fréttir full­yrtu svo á föstu­dag að veru­lega verði fækkað í flug­þota Wowair. Leggja þurfi átta af tutt­ugu þotum félags­ins. Icelandair og Wow air myndu samnýta leið­ar­kerfi á marga áfanga­staði og þannig væri hægt að fækka vélum Wow air um þriðj­ung.

Hvar liggur vandi Wow air?

Margir sam­hang­andi þættir eru að valda Wow air vanda þetta haustið. Áhugi á skulda­bréfa­út­boði Wow air í haust var minni en von­ast var til. Síhækk­andi olíu­verð. Þá er Skúli Mogensen mik­ill mark­aðs­maður en tölu­vert virð­ist vanta í aðrar deildir eins og td. fjár­stýr­ingu. Þannig gerir Icelandair fram­virka samn­inga á olíu­kaupum sem Wow air gerir ekki. Tíma­setn­ing á að hefja flug til Banda­ríkj­anna árið 2015 hefði lík­lega ekki getað verið betri. Almennt góð­æri vestan og aust­an­hafs og elds­neyt­is­verð lágt. Yfir­bygg­ing Wow air í sam­an­burði við Icelandair er þó enn í dag allt önnur. Það sést vel í úttekt sem hag­fræði­deild Lands­bank­ans gerði á félög­unum tveimur. Þar kom fram að launa­kostn­aður sem hlut­fall af tekjum væri 19% hjá Wow air en 33% hjá Icelandair. Hjá Wow air starfa um 1.500 starfs­menn en 3.500 hjá Icelandair.

Hjá Wow air starfa um 1.500 starfs­menn en 3.500 hjá Icelandair.

Þann 10. nóv­em­ber sagði Morg­un­blaðið svo frá því að vegna for­gangs­rétt­ar­á­kvæðis í samn­ingum Icelandair gætu félags­menn í Félagi íslenskra atvinnu­flug­manna (FÍA) átt for­gang á flug í flug­vélum Wow air. Með þessu móti myndi launa­kostn­aður auð­vitað hækka hjá Wow air. Þannig hafi samn­ingur FÍA komið í veg fyrir að Icelandair Group gæti stofnað lággjalda­flug­fé­lag þar sem önnur launa­kjör myndi gilda en hjá móð­ur­fé­lag­inu. Má i fram­hald­inu velta fyrir sér stöðu á kjara­samn­ingum hjá flug­freyjum.

Siglir Icelandair lygnan sjó?

Segja má að staða Icelandair sé allt önnur en Wow air. Má þar fyrst nefna að í síð­ustu fjár­festa­kynn­ingu félags­ins kom fram að eig­in­fjár­hlut­fall þess var 36% í lok sept­em­ber á þessu ári eða rúmir 70 millj­arðar króna. Til sam­an­burðar nam eig­in­fjár­hlut­fall Wow air ein­ungis 4,5% í júní á þessu ári. Því verður að telj­ast ólík­legt að Icelandair lendi í sam­bæri­legum vand­ræðum og Wow air.

Þegar Icelandair var yfir­tekið vorið 2009 glímdi félagið við allt aðrar aðstæður en í dag. Þá fólst vand­inn einmitt líka í lausa­fjár­vanda eins og hjá Wow air í dag auk þess sem félög helstu hlut­hafa voru komin með nei­kvætt eigið fé vegna mik­illar lækk­unar íslensku krón­unnar. Þá voru helstu eig­endur Icelandair Finnur Ing­ólfs­son, Stein­grímur- og Karl Wernerssynir og Einar Sveins­son svo nokkrir séu nefndir. Þá var Gunn­laugur Sig­munds­son stjórn­ar­for­maður Icelandair.

Ómar Bene­dikts­son.

Í dag eru stærstu hlut­hafar Icelandair íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Flestir þeirra keyptu hluta­bréf sín í flug­fé­lag­inu þegar hluta­bréfin voru mjög lág árið 2010 og hafa fyrir löngu fengið til baka sína fjár­fest­ingu. Þó má segja að það vanti fólk með alþjóð­lega reynslu af flug­rekstri í stjórn Icelandair eftir að Sigurður Helgason, fyrrum for­stjóri Icelandair lét af stjórn­ar­for­mennsku árið 2017. Þó má nefna að Ómar Bene­dikts­son kom inn í stjórn eftir að Sigurður hætti. Hann hefur áður komið að rekstri hjá Íslands­flugi, Air Atlanta og Smart­Lynx air­lines. Þá sat Ómar einnig í stjórn Icelandair og var stór hlut­hafi áður en félagið var yfir­tekið vorið 2009.

Brott­hvarf Björg­ólfs Jóhanns­sonar úr stóli for­stjóra Icelandair í lok ágúst hefur skapað tíma­bundin titr­ing. Við starfi hans tók Bogi Nils Bogason, fjár­mála­stjóri Icelandair sem mun sinna því þar til nýr for­stjóri verður ráðin. Líklega myndi það skapa mesta til­trú ef ráð­inn yrði erlendur for­stjóri með alþjóð­lega reynslu af flug­rekstri. Fyrir slíku er þó lítil hefð á Íslandi.

Áhuga­vert verður að fylgj­ast með fréttum næsta föstu­dag þegar Icelandair heldur hlut­hafa­fund sinn á síð­asta degi mán­að­ar­ins. Verður að telj­ast afar lík­legt að örlög Wow air gætu ráð­ist nú í lok vik­unnar. Ef allt færi á versta veg gæti félagið jafn­vel þurft að óska eftir nauða­samn­ingum. Því liggur mikið undir að far­sæl lausn finn­ist varð­andi fram­tíð Wow air.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi