Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rokkuð og án mikillar dramatíkur

Hljóm­sveitin Dúkkulís­urnar sem hefur starfað í yfir 30 ár sendir nú frá sér jóla­plötu og fylgir henni eftir með tón­leikum. Gréta Jóna Sig­ur­jóns­dóttir gít­ar­leik­ari seg­ist per­sónu­leg í texta­gerð á plöt­unni enda hafi hún verið á erf­iðum stað í líf­inu við gerð hans.

Rokkuð og án mikillar dramatíkur

„Þetta verður vín­yll og diskur, frekar gam­al­dags að stúss­ast í svo­leiðis útgáfu, en platan kemur líka út á Spotify. Í fyrra héldum við nokkra jólatón­leika og tókum upp tvö lög í aðdrag­anda þeirra. Þegar við hitt­umst svo á æfingum á nýju ári kom í ljós að við áttum fleiri jóla­lög í hand­rað­anum og þá var ekki aftur snúið,“ segir Gréta sem býr á Fljóts­dals­hér­aði og rekur Bóka­kaffi Hlöðum í Fellabæ. Jóla­plata Dúkkulísanna ber heitið Jól sko!

„Hug­mynd­ina má rekja til 2008 þegar við sömdum jóla­lag fyrir þýð­ing­ar­fyr­ir­tækið Islingua sem var jóla­kveðja í nafni þess fyr­ir­tækis. Ég held að Gugga trommari hafi á þeim tíma­punkti slegið fram þess­ari hug­mynd sem við hlógum að og grín­uð­umst með en það hefur lík­lega verið til þess að okkur fannst þetta ekki svo fjar­lægt þegar við fórum að ræða þetta í alvöru.“

Á plöt­unni eru sex lög, þrjár ábreiður sem þær settu íslenskan texta við með dyggri aðstoð Krist­jáns Hreins­sonar og Magnúsar Þor­kels­sonar og þrjú frum­samin lög. „Áður­nefnd Jóla­kveðja sem við sömdum við texta eftir Börk Víg­þórs­son, lag eftir Hörpu hljóm­borðs­leik­ara með texta eftir Hörpu, Erlu söng­konu og mig og lag eftir Erlu söng­konu með texta eftir mig. Ég held að lagið hennar Hörpu sé mjög per­sónu­legt fyrir hana og text­inn við Frostnótt er mjög per­sónu­legur fyrir mig en aðal­lega vegna þess að ég var á erf­iðum stað í líf­inu þegar hann varð til,“ segir Gréta og bætir við að mein­ingin hafi samt fyrst og fremst verið að gera dálítið rokk­aða og skemmti­lega plötu án mik­illar drama­tíkur.

Mættust á milli bæja með pakka

Aðspurð seg­ist Gréta ekki mikið jóla­barn hún líti frekar á jólin sem afslöpp­un­ar­tíma með góða bók og konfekt. „Ég tapa mér alls ekki í und­ir­bún­ingi enda fæ ég þann skammt dálítið í vinn­unni. Á ákveðnum tíma­punkti eða við ákveðnar aðstæður hellist yfir mig sökn­uður eftir þeim sem eru farnir en um leið get ég glaðst yfir stjörnu­prýddum himni á köldu vetr­ar­kvöldi, og dáðst að feg­urð nátt­úr­unnar og alheims­ins. Það er lítið um hefðir á mínu heim­ili, ég á 11 ára strák, Sigurjón Torfa, og ég reyni að búa til nota­lega jólastemn­ingu fyrir okkur tvö. Ég vinn mikið þannig að mér finnst tím­inn sem ég á með honum afskap­lega dýr­mætur og reyni að gera hann inni­halds­ríkan og kósí. Oft förum við út á lóð, leikum okkur í snjónum, komum inn, kveikjum í kamín­unni og fáum okkur kakó. Stundum fáum við okkur göngutúr um graf­reit­inn hér í Fellabæ með kerti og ræðum þá jafn­vel hverf­ul­leika lífs­ins. Svo má ekki gleyma að mér finnst bók algjör­lega nauð­syn­leg um jól og þreyt­ist ekki á að ýta bókum að Sig­ur­jóni Torfa.  Ég reikna með að þessi jól verði í sama dúr.“

Á ákveðnum tíma­punkti eða við ákveðnar aðstæður hellist yfir mig sökn­uður eftir þeim sem eru farnir en um leið get ég glaðst yfir stjörnu­prýddum himni á köldu vetr­ar­kvöldi, og dáðst að feg­urð nátt­úr­unnar og alheims­ins.

Áttu ein­hverja eft­ir­minni­lega jóla­hefð úr æsku? „Ein af ljúf­ustu minn­ingum úr bernsk­unni í Jök­ulsár­hlíð­inni var að yfir­leitt á Þor­láks­messu eða dag­inn fyrir Þor­láks­messu fórum við Jóna Torf­hildur, upp­eld­is­systir mín á Skriðu­felli þar sem ég ólst upp, með jóla­pakka í poka áleiðis í Torfa­staði þar sem faðir minn bjó. Um fimm kíló­metrar eru á milli bæj­anna og á móti komu Svandís og Heiða systur mínar líka með pakka. Við mætt­umst á miðri leið og skipt­umst á pökkum við stóran stein sem við köll­uðum alltaf Epla­stein­inn. Ef vont var veður þá var keyrt með jóla­pakk­ana á snjó­sleða og þá misstum við af þessum Epla­steins­hitt­ingi, sem var afleitt en ekk­ert við að gera.“

Pálmi fyrsti kostur

Fram undan er anna­samur tími en það er alltaf eitt­hvað spenn­andi að ger­ast á Bóka­kaffi Hlöðum. Dúkkulís­urnar verða með þrenna tón­leika, þá fyrstu 1. des­em­ber í Vala­skjálf á Egils­stöðum. Næstu verða svo í Bæj­ar­bíói Hafn­ar­firði þann 5. des­em­ber og þeir síð­ustu á Græna hatt­inum Akureyri 6. des­em­ber. „Pálmi Gunn­ars­son var með okkur í fyrra og var alveg til í að koma aftur. Þegar við vorum að velta fyrir okkur í fyrra að fá gest með okkur þá gerðum við óska­lista og þegar við vorum búnar að ræða allt niður í kjöl­inn vorum við allar sam­mála um að hann væri okkar fyrsti kostur. Hann hefur gefið út og sungið svo fal­leg jóla­lög að öllum hlýnar þegar hann syngur þau og fyrir okkur sem hljóð­færa­leik­ara er ómet­an­legt og algjör for­rétt­indi að fá að spila með honum,“ segir Gréta að lokum.

Myndir / Ólöf Erla Ein­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi