Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk verslar eins og kjarnorkustyrjöld sé í uppsiglingu

Rakel Garð­ars­dóttir hefur und­an­farin fimm ár lagt sig fram um að halda jól á eins umhverf­is­vænan hátt og unnt er. Færri, gjafir, minna prjál, aðhald í mat­ar­inn­kaupum og end­ur­nýt­ing papp­írs er meðal þess sem hún og hennar fjöl­skylda leggja kapp á í jóla­hald­inu.

Fólk verslar eins og kjarnorkustyrjöld sé í uppsiglingu
Rakel leggur sig fram um að halda umhverf­is­væn jól. Mynd / Unnur Magna|

„Umhverf­is­væn jól snú­ast meðal ann­ars um það að kaupa færri gjafir, kaupa ekki óþarfa, gefa gjafir sem nýt­ast við­tak­and­anum og enda ekki bara uppi í skáp,“ segir Rakel spurð hvernig hún geri jóla­hald fjöl­skyld­unnar umhverf­is­vænna. „Það er til dæmis mjög snið­ugt að gefa miða í leik­hús eða á tón­leika og gjafa­kort í nudd eða á eitt­hvert nám­skeið. Eitthvað sem fólk hefur ánægju af.“

Spurð hvað það sé langt síðan hún fór að reyna að gera jólin umhverf­is­væn á sínu heim­ili, dregur Rakel við sig svarið. „Sko, ég er ekk­ert hund­rað pró­sent umhverf­is­væn,“ segir hún. „En við bætum ein­hverju nýju við á hverju ári eftir því sem við verðum með­vit­aðri um umhverf­is­vána. Þetta byrj­aði fyrir svona fimm árum. Þá minnkuðum við gjafir, hættum að borða svína­kjöt og borðum í stað­inn fugla­kjöt eða ein­hverja græn­met­is­rétti. Við erum ekki með jóla­tré og notum brúnan kraft­pappír til að pakka inn gjöf­unum, það er svo erfitt að end­ur­vinna svona glans­pappír, og svo söfnum við líka jóla­pappír utan af þeim gjöfum sem við fáum og end­ur­nýtum til að pakka inn gjöfum næstu jóla. Við notum ekki mikið af skrauti, helst ekki annað en það sem hefur fylgt með öðrum gjöfum eða eitt­hvað sem við eigum.“

„Í mörg ár hafa aðventan og jólin snú­ist um það hjá okkur að gera eitt­hvað saman, hitta vini og njóta. Ég var heldur ekki alin upp við að jólin væru neyslu­há­tíð og það hjálpar auð­vitað líka.“

Fjöl­skylda Rakelar sam­anstendur af henni sjálfri, eig­in­manni og þremur börnum á aldr­inum tveggja til sautján ára. Hvernig hafa þau tekið í þessar breyt­ingar á jóla­hald­inu? Fá þau til dæmis í skó­inn?
„Þau eru voða­lega nægju­söm,“ segir Rakel og brosir. „Ein­hverra hluta vegna hafa þau náð því. Yfir­leitt fá þau eitt­hvað í jóla­gjöf sem þau vantar, eða þá að fjöl­skyldan fær sam­eig­in­lega gjöf. Í fyrra var það Soda str­eam-tæki sem allir í fjöl­skyld­unni nota. Eldri krakk­arnir fengu í skó­inn á tíma­bili en þau eru orðin of gömul fyrir það núna og ég varð mjög glöð þegar það hætti. Ég átti mjög erfitt með það, því mér finnst eins og gæði skógjafa hafi dalað hjá jóla­svein­unum eftir því sem börnum í heim­inum hefur fjölgað og ég er ekki hlynt því einnota dóti sem vill oft dúkka upp í skónum.“

Rakel leggur sig fram um að halda umhverf­is­væn jól. Mynd / Unnur Magna

Rakel segir fjöl­skyld­una reyndar alla þannig stemmda að jólin séu ekk­ert sér­stak mál. Séu eig­in­lega bara eitt gott mat­ar­boð. Neyslu­æðið í des­em­ber fái ekki hljóm­grunn hjá neinum á heim­il­inu. „Í mörg ár hafa aðventan og jólin snú­ist um það hjá okkur að gera eitt­hvað saman, hitta vini og njóta. Ég var heldur ekki alin upp við að jólin væru neyslu­há­tíð og það hjálpar auð­vitað líka. Jólin fyrir mér eru bara að vera saman og kveikja á kerti. Fá sér svo kannski einn Jule Tuborg eftir að maður er kom­inn á þennan aldur. Við stút­fyllum heldur ekki ísskáp­inn fyrir jólin, heldur nýtum alla afganga vel. Flestir kaupa inn eins og þeir séu að und­ir­búa sig undir kjarn­orku­styrj­öld þegar jólin eru að koma. Það hefur aldrei höfðað til mín enda veitir það enga ham­ingju að sitja uppi með feitan Visa-reikn­ing í jan­úar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi