Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Svona eru þeir?

Svona eru þeir?
Kári Stef­áns­son Mynd / Íslensk erfða­grein­ing

Kári Stef­áns­son skrifar,

Álags­próf eru meðal tækja lækn­is­fræð­innar sem geta reynst mjög gagn­leg við að leita að veik­leika manns sem finnst ekki við ein­falda skoðun. Áreynslu­prófið er eitt þeirra. Sú sem prófið tekur er látin hjóla eða ganga rösk­lega meðan hún er tengd við alls konar mæla eins og hjarta­línu­rit, önd­un­ar­mæli, mæli sem nemur súr­efn­is­mettun og svo mætti lengi telja. Síðan er fylgst með því hvernig mæl­ing­ar­nið­ur­stöður breyt­ast við það álag á allan lík­amann sem skap­ast við hreyf­ing­una. Ef þær eru af ákveðnum toga geta breyt­ing­arnar meðal ann­ars bent til kransæða­sjúk­dóms.

Syk­ur­þols­prófið er ann­ars konar álags­próf þar sem álagið er ein­göngu lagt á eina frumu­teg­und í einu líf­færi. Þátt­tak­and­anum er gefið mikið magn af sykri sem þröngvar beta-frumur í Langer­hans­eyjum briss­ins til þess að senda frá sér insúlín út í blóðið. Breyt­ingar á styrk glúkósa og insúl­íns í blóði geta gefið vís­bend­ingu um það hvort þátt­tak­and­inn sé með syk­ur­sýki eða sé í hættu á að þróa hana.

Síðan eru auð­vitað til alls konar aðrar teg­undir álags­prófa utan lækn­is­fræð­innar sem segja okkur ýmis­legt um mann­legt eðli. Eitt af þeim heitir fjár­laga­frum­varp sem er sett saman einu sinni á ári og lagt fyrir Alþingi. Hegðun alþing­is­manna við umræður um frum­varpið er álags­próf sem laðar fram ýmis­legt hjá stjórn­mála­mönnum sem finnst ekki við ein­falda skoðun fram­bjóð­anda fyrir kosn­ingar. Sumt af því er ekki bara athygl­is­vert heldur líka ótrú­legt.

Tökum sem dæmi hvernig alþing­is­menn sýna örlæti með því að veita sjálfum sér  sautján (fjöldi jóla­sveina x 2-1) nýja aðstoð­ar­menn á sama tíma og þeir draga til baka stóran hluta hækk­unar á fram­lögum til öryrkja og skera niður víð­ast hvar ann­ars staðar í vel­ferð­ar­kerf­inu. Þessir sautján hjálp­ar­kokkar alþing­is­manna bæt­ast við tutt­ugu og fimm aðstoð­ar­menn ráð­herra. Frá því 2012 hefur kostn­aður skatt­greið­enda af aðstoð­ar­mönnum ráð­herra vaxið um tvö hund­ruð og átta millj­ónir króna og bæt­ast nú við aðrar tvö hund­ruð millj­ónir í nýju aðstoð­ar­menn­ina. Ein skoðun á þessu er að það end­ur­spegli óásætt­an­lega, sjálf­hverfa for­gangs­röðun alþing­is­manna, önnur að sú stað­reynd að þeir haldi að það sé ásætt­an­legt að veita sjálfum sér sautján aðstoð­ar­menn meðan þeir skera niður ann­ars staðar bendi til þess að þeir þurfi á aðstoð að halda og þess vegna aðstoð­ar­mönnum. Sem sagt að eina rétt­læt­ingin fyrir því að þeir fái aðstoð­ar­menn­ina sé sú stað­reynd að það sé órétt­læt­an­legt að þeir veiti sér þá.

Svarið við seinni skoð­un­inni er að það eina sem hlyt­ist af aðstoð sautján­menn­ing­anna væri að alþing­is­menn yrðu afkasta­meiri við að hlúa að sjálfum sér. Einn myndi sjálf­sagt keyra fyrir Ásmund Frið­riks­son af því hann þarf alltaf að ferð­ast svo langt. Að þessu sögðu þá reyn­ist fjár­laga­frum­varpið það álags­próf sem á ári hverju laðar fram smæð­ina í eðli alþing­is­manna sem þeir fela svo vel rétt fyrir kosn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi