Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hættur að láta kvíðann og sjálfsniðurrifið stjórna sér

Ný plata Jónasar Sig­urðs­sonar, Milda hjartað, kemur út í dag. Á henni er hann á hug­ljúfari nótum en oft áður, enda seg­ist hann viss um að tími mildi og mann­gæsku sé að renna upp. Hann hefur þó ekki alltaf verið á þeirri línu, glímdi ártugum saman við afleið­ingar ADHD, Tourette-heil­kennis, van­meta­kenndar og kvíða og hætti á tíma­bili allri tón­list­ar­sköpun. Andleg vakn­ing í dönskum skógi fyrir sextán árum leiddi hann á vit hug­leiðslu og bæna sem hann notar enn í dag til að halda djöfl­inum á öxl­inni í skefjum.

Hættur að láta kvíðann og sjálfsniðurrifið stjórna sér
Jónas Sig Mynd / Hákon Davíð

„Þú fyr­ir­gefur hvað ég er rámur,“ er það fyrsta sem Jónas segir þegar við hitt­umst á kaffi­húsi í mið­bænum á grámyglu­legum morgni í vik­unni. Hann hefur verið á þeysi­reið vítt og breitt um landið und­an­farið að kynna nýju plöt­una þótt flensan herji á hann og fram undan eru hverjir tón­leik­arnir á fætur öðrum, alveg fram á Þor­láks­messu. Það er eng­inn tími til að láta það eftir sér að leggj­ast í rúmið. „Sjóvið verður að halda áfram,“ eins og hann segir hlæj­andi um leið og hann reynir að kæfa hósta. Ég tek undir það og eftir að við höfum bæði fengið okkur kaffi set ég seg­ul­bandið í gang og spyr hinnar hefð­bundnu íslensku spurn­ingar hvaðan hann sé og hvernig hann hafi byrjað í tón­list­inni.

„Ég ólst upp í Þor­láks­höfn þar sem pabbi var útgerð­ar­maður og ég byrj­aði tólf, þrettán ára að vinna í fisk­verkun hjá honum,“ segir Jónas. „Tón­listin var samt rosa­legur drif­kraftur í lífi mínu alveg frá því að ég var pínu­lít­ill strákur. Þegar ég var tólf ára byrj­aði vinur minn að læra á gítar og ég hermdi eftir honum. Svo fór ég í sveit þegar ég var þrettán ára og þar var strákur sem átti trommu­sett sem mér fannst svo flott að ég var alveg frið­laus þangað til ég gat keypt það af honum, vann í salt­fiski, öngl­aði saman pen­ingum og gerði alls kyns víla og díla þangað ég var kom­inn með trommu­settið heim í stofu. Þannig byrj­aði þetta.“

Dæmigerður ADHD-strákur

Jónas segir þessa þrá­hyggju hafa verið mjög lýsandi fyrir hann sem krakka, hann hafi verið dæmi­gerður ADHD-strákur, átt ótrú­lega auð­velt með að læra en verið afskap­lega fljótur að missa áhug­ann á skól­anum.

Jónas ólst upp í Þor­láks­höfn og byrj­aði snemma að vinna í fisk­verkun. Mynd / Hákon Davíð

„Strax á öðru ári í barna­skóla grét ég á hverjum morgni yfir því að þurfa að fara í skól­ann,“ útskýrir hann. „Þá byrj­aði þetta mynstur sem síðan varð sterkasta aflið í lífi mínu ára­tugum saman. Mamma og pabbi þurftu nán­ast að draga mig fram úr rúm­inu og koma mér í skól­ann og það að sitja í skól­anum fannst mér alveg ofboðs­lega leið­in­legt, þótt mér gengi vel, kenn­ar­arnir væru góðir og ekk­ert út á neitt að setja. Skóla­kerfið bara virk­aði ekki fyrir mig. Það var samt eig­in­lega ekki fyrr en ég var sjálfur orð­inn for­eldri og upp­lifði sömu ein­kenni hjá syni mínum sem ég átt­aði mig á sam­heng­inu. Þá bjuggum við í Danmörku og krakk­arnir mínir voru í Waldorf-skóla þar sem þeir fengu miklu meira svig­rúm heldur en í hefð­bundnu skóla­kerfi, fengu að vera úti, klifra í trjám og tálga spýtur í stað­inn fyrir að hanga inni í skóla­stofum allan dag­inn. Þá fór ég að velta því fyrir mér hvernig líf mitt hefði orðið ef ég hefði gengið í þannig skóla, það var bara ekki í boði. Mín útrás var öll í gegnum tón­list­ina. Hún bjarg­aði mér algjör­lega.“

Þegar Jónas var tólf ára bætt­ust ýmis ein­kenni Tourette-heil­kenn­is­ins ofan á ADHD-ið og honum fannst hann verða enn ömur­legri.

„Þá byrj­aði ég að þróa með mér alls konar kæki,“ segir hann. „Var alltaf að blikka aug­unum og geifla mig í framan, alveg klass­ískt Tourette, þótt ég væri auð­vitað aldrei greindur, það tíðk­að­ist ekk­ert í þá daga að senda börn í grein­ing­ar­ferli. Það var svo sem ekki gert neitt veður út af þessu, allir ypptu bara öxlum og litu á það sem sjálf­sagðan hlut að hann Jónas væri nú bara svona. Mér var aldrei strítt á þessu eða neitt en mér fannst þetta auð­vitað óskap­lega leið­in­legt. Mér fannst ég vera alveg rosa­lega mis­heppn­aður, sú til­finn­ing var alltaf sterk í mér. ADHD-inu fylgdi líka mikil hvat­vísi, ég var alltaf að gera ein­hverja hluti sem voru algjör­lega fárán­legir. Eftir á hugs­aði maður oft hvers vegna maður hefði gert þetta, hvort það væri ekki allt í lagi með mig, en ég gat samt ekki hætt þessu. Stundum var ég að meiða aðra krakka eða skemma dótið þeirra og allt eig­in­lega bara óvart, alla­vega í minn­ing­unni. Maður bara hugs­aði aldrei áður en maður fram­kvæmdi. Ég átti alveg rosa­lega góða vini og félaga í skól­anum en innra með mér ríkti alltaf til­finn­ingin að vera ekki nógu góður og passa ekki alveg inn í heim­inn. Það var bara í tón­list­inni sem mér fannst ég passa inn í. Svo eign­að­ist ég tölvu og fór að for­rita og þá kom inn annað elem­ent sem ég var góður í, það var tals­verður léttir.“

Mér fannst ég vera alveg rosa­lega mis­heppn­aður, sú til­finn­ing var alltaf sterk í mér.

Andinn í samfélaginu kallaði á karlmennsku

Tón­listin var samt áfram sterkasta aflið í lífi Jónasar og þegar tveir vinir hans fluttu austur á land og byrj­uðu þar í hljóm­sveitum leið ekki á löngu þangað til hann hélt á eftir þeim austur að Eiðum, aðeins fimmtán ára gam­all. Hann seg­ist halda að for­eldrar sínir hafi orðið ánægðir með að hann tæki þá ákvörðun, þótt það hafi auð­vitað verið erfitt fyrir þau. Þau hafi þó alltaf stutt hann og þessi til­finn­ing hans að vera ómögu­legur og passa ekki inn hafi ekki haft neitt með upp­eldið að gera.

Nýjasta plata Jónasar kemur út í dag.

„Pabbi var gam­all sjó­maður og hefði sam­kvæmt ster­íótýp­unni átt að gera kröfur til mín um að sýna af mér karl­mennsku en það gerði hann aldrei. Pabbi minn er í raun­inni blíður maður þótt hann birt­ist oft sem grjót­harður út á við. Hann má ekk­ert aumt sjá og var til dæmis oft að koma heim með illa farna flæk­ingsk­etti til að gefa þeim að borða og hlúa að þeim. Pressan um að sýna af sér karl­mennsku kom ekki frá for­eldrum mínum. Hún var bara inn­byggð í sam­fé­lagið. Ég man þegar ég var ungur að vinna í fiski eða fara út á sjó að þá sýndu karl­menn yfir­leitt ekki til­finn­ingar sínar. Það var bara þagað nema ef þú gerðir eitt­hvað vit­laust, þá var öskrað á þig. Sam­skiptin voru bara þannig í þá daga. Ég hef oft hugsað um það núna á seinni árum, eftir að farið var að tala svona mikið um eitr­aða karl­mennsku og áhrif hennar, að ég hafi í raun­inni að mörgu leyti verið mjög hepp­inn að fá að alast upp í gamla tím­anum í fiski­þorpi. Andinn í sam­fé­lag­inu var auð­vitað þannig að maður ætti að sýna karl­mennsku og harka af sér og það ýtti kannski undir þá til­finn­ingu að ég pass­aði ekki inn í sam­fé­lagið en þar kom tón­listin aftur til bjargar. Það er leyfi­legt að nota femínísku ork­una í sköpun, og ég er dálítið femínin þótt ég virki kannski ekki þannig, en á svona stöðum er ekk­ert pláss fyrir mýkt­ina sem því fylgir nema í list­sköpun.“

Andinn í sam­fé­lag­inu var auð­vitað þannig að maður ætti að sýna karl­mennsku og harka af sér og það ýtti kannski undir þá til­finn­ingu að ég pass­aði ekki inn í sam­fé­lagið en þar kom tón­listin aftur til bjargar.

Mættu í partí makaðir út í sósulit

Eftir að Jónas flutti á Aust­ur­landið og sett­ist á skóla­bekk í Alþýðu­skól­anum á Eiðum blómstr­aði hann sem tón­list­ar­maður og naut sín sem aldrei fyrr.

„Þar var tón­listin hátt skrifuð og þar naut ég mín vel,“ segir Jónas og brosir við minn­ing­una. „Í Þor­láks­höfn býr gott fólk en sam­fé­lagið var á þessum tíma dálítið harð­neskju­legt enda flestir að vinna harð­neskju­lega vinnu. Á Eiðum, sem var alþýðu­skóli fyrir sveitakrakka, var miklu meiri mýkt. Þar var ég strax kos­inn í skemmti­nefnd og við vorum með skemmti­pró­gramm á hverju kvöldi. Það var svona míni-þorra­blót alla daga. Mér fannst það alveg svaka­lega skemmti­legt.“

Við höt­uðum alla tón­list sem var vin­sæl, fannst hún alveg ömur­leg og fórum að gera grín að svo­leiðis hljóm­sveitum okkar á mill.

Upp úr dvöl­inni á Eiðum fór Jónas aftur suður og byrj­aði að læra trommu­leik í FÍH, en fann sig ekki fyrir sunnan, fór aftur austur og sett­ist í Mennta­skól­ann á Egils­stöðum. Það reynd­ist afdrifa­rík ákvörðun því þar var lagður grunnur að frama hans sem tón­list­ar­manns, reyndar alveg óvart og í algjöru flippi.

„Í Mennta­skól­anum á Egils­stöðum kynnt­ist ég vini mínum Unn­steini Guð­jóns­syni og við byrj­uðum á smá­flippi sem seinna þró­að­ist út í hljóm­sveit­ina Sól­strand­ar­gæj­ana. Við vorum báðir í rokk­hljóm­sveitum á þessum tíma og rosa­legir pönk­arar, berir að ofan með haka­krossa og allt heila dæmið,“ segir Jónas og glottir. „Við höt­uðum alla tón­list sem var vin­sæl, fannst hún alveg ömur­leg og fórum að gera grín að svo­leiðis hljóm­sveitum okkar á milli, byrj­uðum að maka okkur út í sósu­lit, mæta í partí og kynna okkur sem sól­strand­ar­gæja, alveg eins og hálf­vitar. Í fárán­leg­asta „twisti“ ævi minnar verður það svo svona óskap­lega vin­sælt, þótt það væri reyndar ekki fyrr en nokkrum árum seinna.“

Orðinn faðir um tvítugt

Trúr sínu ADHD-eðli hætti Jónas í ME, fór suður og reyndi að halda nám­inu áfram í ýmsum fram­halds­skólum, með mis­jöfnum árangri. Hann lauk loks stúd­ents­prófi frá Fjöl­brauta­skól­anum á Selfossi en þá höfðu enn ein skilin orðið í lífi hans. Hann hafði kynnst stúlku, sem er eig­in­kona hans enn í dag, hún fljót­lega orðið barns­haf­andi og þau farið að búa í Hvera­gerði. Á þessum tíma vann Jónas á næt­ur­vöktum í frysti­hús­inu í Þor­láks­höfn og var alveg viss um að þannig yrði það ævina á enda.

Upp úr þurru var ég orð­inn það sem ég þoldi ekki. Eftir á að hyggja sé ég að þetta var sjúk­lega hollt fyrir mig. Lífið var að kenna mér hvað hroki og dóm­harka er heimsku­leg.

„Ég var tví­tugur, hún tutt­ugu og tveggja og við héldum að við værum bara orðin full­orðin og svona yrði líf okkar fram­vegis. Nú væri allt flipp búið. Allt í einu hringir svo Unn­steinn vinur minn í mig og segir mér að fólk sé enn að syngja lögin sem við höfðum samið sem Sól­strand­ar­gæj­arnir í partíum fyrir austan og hvort við ættum ekki bara að taka þau upp og gera disk til að selja þeim sem voru með okkur í mennta­skól­anum. Mér fannst þetta alveg fárán­leg hug­mynd, ég hafði aldrei leyft neinum að heyra þessi lög einu sinni, fyrir mér var þetta bara grín. Ég lét samt til­leið­ast og við fórum í stúdíó, tókum upp disk, gáfum út og kynntum á útvarps­stöðv­unum og allt í einu vorum við orðnir geysi­vin­sælir og disk­ur­inn algjört hitt. Upp úr þurru var ég orð­inn það sem ég þoldi ekki. Eftir á að hyggja sé ég að þetta var sjúk­lega hollt fyrir mig. Lífið var að kenna mér hvað hroki og dóm­harka er heimsku­leg.“

Lífið orðið óviðráðanleg steik

Vin­sældum Sól­strand­ar­gæj­anna fylgdi enda­laus spila­mennska um allt land í eitt og hálft ár en Jónas var aldrei sáttur í þessu hlut­verki og smátt og smátt tók gamli kvíð­inn yfir­hönd­ina í lífi hans. Sjálfs­nið­ur­rifið bloss­aði upp sem aldrei fyrr og honum fannst þetta allt saman ömur­legt.

„ADHD veldur því að maður er alltaf að gera eitt­hvað í hvat­vísi sem maður veit að er rangt en gerir samt,“ útskýrir Jónas.

„ADHD veldur því að maður er alltaf að gera eitt­hvað í hvat­vísi sem maður veit að er rangt en gerir samt og það veldur svo miklu van­trausti á sjálfum sér,“ útskýrir Jónas. „Svo bæt­ist kvíð­inn ofan á og það verður til ein­hver spírall sem maður hefur enga stjórn á. Staðalí­myndin af kvíða­sjúk­lingi er að hann liggi bara í hnipri og fari helst ekki úr húsi en ég var ekki þannig, alltaf rosa­hress. Ég var hins vegar óskap­lega ör og aftengdur sjálfum mér og umhverfi mínu í stans­lausri innri tog­streitu. Vanda­málin hrúg­uð­ust upp, við vorum stjórn­laus í fjár­mál­unum og söfn­uðum gígantískum skuldum, það var bara allur pakk­inn. Mér fannst líf mitt vera orðið óvið­ráð­an­leg steik. Að vera frægur fyrir eitt­hvað sem mér fannst alveg glatað og ekki einu sinni töff, þetta var bara engan veg­inn að gera sig. Kvíðinn hefur líka þau áhrif að maður hættir að taka ábyrgð á nokkrum hlut og verður eig­in­lega bara „lásí“ karakter. Á end­anum gafst ég upp á þessu, hætti í hljóm­sveit­inni, hætti alfarið í tón­list, seldi næstum öll hljóð­færin mín, réði mig í vinnu við að líma saman hús­gögn í lok­uðu her­bergi frá níu til fimm alla virka daga og fannst það bara mjög gott líf. Ég var alinn upp við það að vinna sem er unnin með hönd­unum væri eina alvöru­vinnan og fannst ég loks­ins vera að gera eitt­hvað af viti.“

Eftir að seinna barnið fædd­ist flutti fjöl­skyldan í Þor­láks­höfn, Jónas vann á dag­inn og sótti á kvöldin for­rit­un­ar­nám­skeið sem olli enn einum straum­hvör­f­unum í lífi hans. Þar var hann kom­inn á sína réttu hillu og hvattur áfram af kenn­ur­unum á nám­skeið­inu sótti hann um nám í kerf­is­fræði við HR, komst að og sat á skóla­bekk í tvö ár.

Ég var alinn upp við það að vinna sem er unnin með hönd­unum væri eina alvöru­vinnan og fannst ég loks­ins vera að gera eitt­hvað af viti.

„Þarna var ég allt í einu kom­inn á nýja braut í ein­hverju sem ég var flinkur í,“ segir hann og hljómar enn undr­andi á því öllum þessum árum síðar. „Ég ákvað að nú væri þessi fokk­ing músík bara horfin úr lífi mínu, nú skyldi ég bara ein­beita mér að því að verða góður að for­rita, fá mér góða vinnu og verða loks­ins alvöru­maður í sam­fé­lag­inu. Námið gekk vel og ég fékk góða vinnu en gleðin yfir því ent­ist stutt. Um leið og ég var búinn að ná tökum á þessu þá hætti mér að finn­ast þetta merki­legt. Þetta gætu nú allir. Ég fór fljót­lega í sama gamla kvíða- og van­mátt­ar­farið og fannst allt ómögu­legt.“

Sat uppi með sjálfan sig og hugsanir sínar

Hvat­vís­inni trú ákváðu Jónas og eig­in­kona hans að leysa öll þessi vanda­mál með því að flytja til Dan­merkur og hefja algjör­lega nýtt líf. Fyrstu vik­urnar seg­ist hann hafa verið rosa­lega jákvæður og fullur bjart­sýni og viss um að allir draumar hans myndu ræt­ast. Sú varð þó ekki raunin og þótt hann fengi góða vinnu hjá Microsoft og fjöl­skyld­unni liði vel í litlu húsi við skóg í nágrenni Kaup­manna­hafnar hélt kvíð­inn og sjálfs­nið­ur­rifið áfram að brjóta niður jafn­óðum það sem hafði áunn­ist.

Skuld­irnar voru orðnar óvið­ráð­an­legar og streitan sem því fylgdi var gríð­ar­leg.

„Eftir að við fluttum út hvarf allt utan­að­kom­andi áreitið sem fylgdi líf­inu á Íslandi, ég gat ekki lengur dreift hug­anum með því að vera alltaf á kafi í verk­efnum og sat uppi með mig og mínar hugs­anir,“ útskýrir hann. „Það varð á end­anum algjör­lega yfir­þyrm­andi og ég ákvað að nú væri tími til kom­inn að taka á þessum málum. Skuld­irnar voru orðnar óvið­ráð­an­legar og streitan sem því fylgdi var gríð­ar­leg. Ég var alltaf að láta mér detta í hug ein­hverjar patent­lausnir á vanda­mál­unum eins og til dæmis að fara í Smuguna í tvö ár og redda fjár­mál­unum en auð­vitað var það ekki raun­hæft. Þarna var mér farið að líða svo illa að mig lang­aði eig­in­lega ekki að lifa lengur. Ég naut þess engan veg­inn hvað við áttum mörg fal­leg móment þarna í skóg­inum, ég var alltaf upp­tek­inn af öllu sem var að. Svo gerð­ist bara eitt­hvað sem ég get ekki kallað annað en and­lega vakn­ingu, ég kynnt­ist fólki sem var á kafi í sjálfs­vinnu og kveikti á því að það geti kannski hjálpað. Í hvat­vísikasti sópa ég öllum for­rit­un­ar­bók­unum úr hill­unum og panta tvo kassa af sjálfs­hjálp­ar­bókum og bókum um and­leg mál­efni á Amazon. Svo lagð­ist ég í lestur og lærði um mátt hug­leiðslu og bæna, sem ég átti reyndar dálítið erfitt með því ég hafði aldrei tengt við kristn­ina. Ég ákvað að ég myndi hugsa mér að eldri bróðir minn, sem hafði dáið áður en ég fædd­ist, væri þarna ein­hvers staðar í kosmós­inu og ég gæti beint bænum mínum til hans og það hef ég gert síðan með góðum árangri. Ég fór að skrifa niður hugs­anir mínar í tutt­ugu mín­útur á dag, hug­leiða og biðja og smátt og smátt fór það að skila sér. Ég komst út úr kvíð­anum og fór að ná tökum á lífi mínu.“

Hættur að vera kallinn á kassanum

Eitt af því sem Jónas bað um í bænum sínum var að fá eitt­hvert merki frá æðri mætti um hvað hann ætti að gera við líf sitt. Það merki kom í líki Ísraela, Adam að nafni, sem var með honum á dönsku­nám­skeiði og var einnig tón­list­ar­maður. Eftir að þeir voru farnir að hitt­ast reglu­lega og spila saman bauð Adam Jónasi lán til þess að hann gæti gert sóló­plötu. Eftir mikla umhugsun ákvað hann að þiggja það boð og platan Þar sem mal­bikið svífur mun ég dansa, varð til. Hún sló í gegn og síðan hefur Jónas verið eitt af stóru nöfn­unum á íslensku tón­list­ar­sen­unni, einkum í sam­starfi við hóp ólíkra tón­list­ar­manna sem hann hefur kosið að kalla Ritvélar fram­tíð­ar­innar. Þar hafa ýmsir af bestu tón­list­ar­mönnum þjóð­ar­innar haft við­komu en á nýju plöt­unni, Milda hjartað, eru Rit­vél­arnar þó ekki með sem slíkar þótt ýmsir af þeim sem með þeim hafa spilað séu þátt­tak­endur, heldur er hér um að ræða sóló­plötu með mun mild­ari boð­skap en Jónas hefur boðað und­an­farin ár.

Andleg vakn­ing í dönskum skógi fyrir sextán árum leiddi Jónas á vit hug­leiðslu og bæna sem hann notar enn í dag til að halda djöfl­inum á öxl­inni í skefjum. Mynd / Hákon Davíð

„Ég hef verið voða­lega póli­tískur á síð­ustu plötum,“ við­ur­kennir hann. „Magnús Þór Sig­munds­son, vinur minn, var meira að segja far­inn að kalla mig Kallinn á kass­anum, alltaf að predika yfir fólki. Á plöt­unni Milda hjartað er ég miklu per­sónu­legri og mild­ari, enda held ég að við séum að upp­lifa nýja hreyf­ingu í átt að meiri mildi og mann­kær­leik. Þessi plata er mitt inn­legg í þá bar­áttu. Það mun taka ein­hver ár að breyta áhersl­unum í þjóð­fé­lag­inu en ég er alveg sann­færður um að við erum komin á braut­ina sem liggur þangað. Karlmenn eru meira að segja farnir að tala hver við annan um til­finn­ingar sínar, það er alveg óskap­lega mik­il­vægt skref.“

Jónas við­ur­kennir að hann glími enn við kvíð­ann og van­mátt­ar­til­finn­ing­una en með hug­leiðslu og bæn sé hann orð­inn stjórn­andi í eigin lífi og hættur að láta púk­ann á öxl­inni hafa yfir­hönd­ina.

„Ég hef kallað hann litla Satan,“ segir hann og hlær. „Þennan sem situr á öxl­inni á manni og hvíslar að manni öllu sem maður hefur gert rangt á lífs­leið­inni. Hann er þarna enn þá, fer örugg­lega aldrei, en ég er búinn að læra að þagga niður í honum. Hann stjórnar ekki lífi mínu lengur.“

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi