Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Veiðigjöldin á herðum VG

Veiðigjöldin á herðum VG
|

Atvinnu­vega­nefnd Alþingis lagði á þriðju­dag fram til­lögu um að frí­tekju­mark er snýr að veiði­gjöldum verði hækkað. Í dag fá fyr­ir­tæki 20% afslátt af fyrstu 4,5 millj­ónum króna af álögðu veiði­gjaldi og 15% af næstu 4,5 millj­ónum króna. Atvinnu­vega­nefnd leggur nú til að frí­tekju­mark hækki í 40% af fyrstu 6 millj­ónum króna álagðs veiði­gjalds.

„Með þessu leit­ast nefndin við að koma sér­stak­lega til móts við litlar og með­al­stórar útgerðir vítt og breitt um landið,“ lét Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, for­maður atvinnu­nefndar og þing­maður VG hafa eftir sér.

Skiptar skoð­anir eru um hversu mikil áhrif þetta muni hafa. Litlar og með­al­stórar útgerðir standa margar hverjar illa og sam­þjöppun í grein­inni hefur verið mikil síð­ustu ár. Þar eru það oft á tíðum allra stærstu fyr­ir­tækin sem hafa aukið við afla­heim­ildir sínar. Hér má einnig geta þess að 30 stærstu fyr­ir­tækin greiða um 80% af veiði­gjald­inu.

Því er lík­legt að þau stærri ráð­ist í enn frek­ari upp­kaup á minni fyr­ir­tækjum. Má spyrja sig hvort það sé það sem almenn­ingur vill sjá. Um fátt hefur verið meira rif­ist und­an­farin ára­tug en veiði­gjöld. Allir virð­ast þó enn vera óánægðir. Bæði fyr­ir­tæki í útgerð, almenn­ingur sem og sveita­stjórnir sem vilja ekki missa þennan tekju­stofn frá sér.

VG tekur slaginn

Lilj Rafney. Mynd / Alþingi

Óhætt er að segja að umræðan um veiði­gjöld á þessu ári hafi bitnað meira á VG en Sjálf­stæð­is­flokknum. Þannig hefur Lilja Rafney komið mun oftar í fjöl­miðla að ræða veiði­gjöldin heldur en Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Reyndar er þetta ekki eina sem hefur snert VG verr en Sjálf­stæð­is­flokkkinn. Þar má telja að reynslu­leysi Lilju Raf­n­eyjar spili inn í. Umræðan hefur þó langt í frá verið jafn hatrömm og td. þegar Stein­grímur J. Sig­fús­son var sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og lög nr. 74/2012 um veiði­gjöld voru sett. Þá kom gagn­rýnin þó harð­ast frá LÍÚ, for­vera SFS, sem þá var stýrt af Friðriki Jóni Arn­gríms­syni.

Frekari uppkaup á aflaheimildum væntanleg?

Segja má að þau fyr­ir­tæki sem eru með bland­aða útgerð upp­sjávar- og bol­fisksveiða standi sterkast. Fyrir þau var mikil búbót þegar mak­ríll fór að veið­ast í auknu mæli árið 2009. Þessi fyr­ir­tæki eru betur í stakk búinn til þess að greiða veiði­gjöld en þau minni. Þar er um að ræða Samherja, Síld­ar­vinnsl­una, Skinney, Þinganes, Ísfélag Vest­manna­eyja, Gjögur, Vinnslu­stöð­ina og Loðnu­vinnsl­una. Þessi fyr­ir­tæki standa gríð­ar­lega vel og eig­in­fjár­hlut­fall þess­arra fyr­ir­tækja er á bil­inu 40-70%, sem gerir þeim auð­veld­ara að standa af sér sterka krónu. Þessi fyr­ir­tæki hafa einnig betra aðgengi að lánsfé til að end­ur­nýja skipa­stól sinn og vinnslur til að hag­ræða í rekstri. Slíkar aðgerðir þýða oft á tíðum fækkun starfa. Önnur sterk fyr­ir­tæki sem þó eru að mestu í bol­fiski eru Brim hf. og Fisk-Seafood á Sauð­ár­króki. Þessi tvö fyr­ir­tæki hafa verið að auka við sig bol­fisks­heim­ildir á und­an­förnum árum.

Aðili sem rætt var við á fjár­mála­mark­aði taldi lík­legt að stærri fyr­ir­tækin færu í enn frek­ari upp­kaup á afla­heim­ildum á næst­unni til þess að bæta sam­keppn­is­stöðu sína. Margir myndu td. hafa áhuga á að kaupa fyr­ir­tæki eins og Ögurvík sem HB Grandi keypti af Brim hf. nýlega eftir að Guð­mundur Krist­jáns­son keypti sig inn í HB Granda.

Vandasamt að meta milliverðlagningu

Lögum nr. 74/2012 um veiði­gjöld var ætlað að gilda í fimm ár. Því komst Alþingi ekki hjá því að end­ur­skoða veiði­gjöld. Fyrir utan breyt­ingu á frí­tekju­marki má einnig nefna að nú verður veiði­gjalds­nefnd lögð niður og verða verk­efni hennar færð til emb­ættis rík­is­skatt­stjóra.

Eitt af því sem nefnt er grein­ar­gerð frá atvinnu­vega­nefnd Alþingis er svokölluð milli­verð­lagn­ing (e. trans­fer pricing). Þar er oft um að ræða flókin sam­an­burð sem kom vel í ljós þegar Seðla­bank­inn höfð­aði mál á hendur Samherja. Má telja lík­legt að orð­spor Seðla­bank­ans muni skað­ast enn frekar þar sem Samherji hyggst höfða skaða­bóta­mál á hendur bank­anum. Því  verður að efast um að emb­ætti Rík­is­skatt­stjóra myndi treysta í annað mál af svip­uðum toga.

Um er að ræða alþjóð­legt vanda­mál sem flest lönd glíma við varð­andi útflutn­ings­fyr­ir­tæki sín og hafa gert í ára­tugi. Með frum­varp­inu er emb­ætti rík­is­skatt­stjóra heim­ilað að taka til sér­stakrar athug­unar ef vís­bend­ing er um óeðli­lega milli­verð­lagn­ingu. Verð­lags­stofa skipta­verðs hefur eft­ir­lit með fisk­verði og ákvarðar lág­marks­verð sem greitt skal til sjó­manna.

Stærri útgerð­ar­fyr­ir­tæki reka mörg hver sín eigin sölu­fyr­ir­tæki erlendis og stjórna því allri virð­is­keðj­unni frá veiðum og vinnslu til helstu mark­aðs­landa sinna. Slík staða veitir þeim líka mikla yfir­burði fram yfir lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki. Und­an­farin ár hafa sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki þó oft á tíðum verið gagn­rýnd fyrir að kom­ast ekki nær kaup­endum sínum erlendis með auk­inni mark­aðs­setn­ingu.

Meðan fyr­ir­tækin hafa verið óspar að fjár­festa í tækninýj­ungum frá fyr­ir­tækjum eins og Marel, Skaginn3x og Völku svo nokkur séu nefnd hefur minna verið fjár­fest í aug­lýs­inga- og mark­aðs­málum. Líklega horfa fyr­ir­tækin oft á tíðum frekar á að halda háu ebitdu-hlut­falli í stað þess að reyna að auka veltu sína. Þá er fram­þróun í tækninýj­ungum yfir­leitt fljót­ari að skila sér í bættri rekstr­ar­af­komu en lengri tíma getur tekið að hækka verð á sjáv­ar­af­urðum með aug­lýs­inga- og mark­aðs­her­ferð.

Eru sjávarútvegsfyrirtæki góður fjárfestingakostur?

Mark­að­ur­inn, við­skipta­hluti Frétta­blaðs­ins, birti á mið­viku­dag umfjöllun um að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki ættu erindi á íslenskan hluta­bréfa­markað. Einnig væru tæki­færi fyrir þau að nýta sér meira skulda­bréfa­fjár­mögnun á inn­lendum mark­aði. Var rætt við Ásmund Gíslason, sér­fræð­ing í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Arion banka.

Skiptar skoð­anir eru hins vegar um það hversu góður fjár­fest­inga­kostur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki séu fyrir almenna fjár­festa á hluta­bréfa­mark­aði sem eru ekki ráð­andi innan fyr­ir­tækj­anna. Hér ná nefna nokkra hluti til sög­unnar.

Í grein Mark­að­ar­ins kom fram að upp úr 1990 hafi sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum fjölgað mikið í Kaup­höll­inni. Um ára­tug seinna fór þeim síðan að fækka. Segja má að þegar fram­sal á kvóta var leyft með lögum nr. 38/1990 og tóku gildi 1991 hafi verið mikil tæki­færi fyrir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki að vaxa. Þá voru þau má segja und­ir­verð­lögð. Í því sam­hengi má nefna að þegar Samherji gerði sín frægu kaup á Guð­björgu á Ísafirði árið 1996 hafi þeir verið að kaupa á 3-4 ebitdu. Líklega var verið að kaupa fyr­ir­tæki eins og Ögurvík og Stálskip á und­an­förnum árum á 10-12 ebitdu. Það liggur því í augum uppi að í dag eru miklu minni vaxta­mögu­leikar fyrir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin. Þá er 12% hámarks­þak á því sem fyr­ir­tækin mega eiga af afla­heim­ildum.

Fyr­ir­tæki eins og HB Grandi eiga því lítla mögu­leika á að stækka hér­lendis. Eilífð­ar­vöxtur sem oft er horft til í fjár­málum er því lít­ill. Þó má nefna Samherja sem hefur vaxið gríð­ar­lega á und­an­förnum 20 árum með upp­kaupum á fyr­ir­tækjum erlendis. Eigið fé Samherja nemur í dag 90 millj­örðum króna og einnig hefur fyr­ir­tækið verið öfl­ugt í upp­kaupum á fyr­ir­tækjum í öðrum rekstri eins og Olís og nú síð­ast Eimskip.

Tækifæri í hærra þorskverði

Tækifæri kunna þó að skap­ast hjá fyr­ir­tækjum að auka enn frekar virði á td. þorski sem hefur stað í stað und­an­farin ára­tug en þá var td. svipað verð á norskum laxi sem hefur und­an­farið farið langt fram úr þorsk­inum. Þá mun aukin fram­þróun í skipa­kosti og vinnslum vissu­lega bæta sam­keppn­is­stöðu þeirra á hörðum alþjóð­legum mark­aði. Þar er helst verið að keppa við Færeyjar, Noreg, Rússland, fisk frá Alaska svo ekki minnst á eld­is­teg­undir frá Asíu eins og til­apíu og pangasíus sem keppa við þorskinn, bæði í Banda­ríkj­unum og í Evrópu .

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi