Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Það kemur enginn betri út af Hólmsheiðinni“

„Það kemur enginn betri út af Hólmsheiðinni“
Fangelsi á Hólms­heiði – Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu, félags fanga á Íslandi, varar við því að túlka sam­an­burð við önnur Norð­ur­lönd Íslandi í hag eins og gert hefur verið, en ný sam­nor­ræn fang­els­is­skýrsla kom nýlega út. Hér sé refsi­vörslu­kerfið allt öðru­vísi, bið­tími lengri eftir afplánun og dómar birt­ast til dæmis seinna en ann­ars staðar á Norð­ur­löndum.

Hann segir nýtt fang­elsi á Hólms­heiði síður en svo bæta þetta. „Per­sónu­lega held ég að þetta sé eitt mesta slys sem hefur orðið, þetta er illa hannað og und­ir­mannað. Það er ekki hægt að reka þetta, það eru bara ekki til pen­ingar fyrir því. Það er engin skóla­að­staða fyrir verk­nám, erf­iðar vinnu­að­stæður, þetta er ofboðs­lega stofn­ana­legt. Það er ekki einu sinni búið að semja um heil­brigð­is­þjón­ustu í þessu fang­elsi, það er ekki búið að semja um mennta­mál á Hólms­heiði. Það vantar allt. Þetta er bara steypu­kass­inn,“ segir Guð­mundur Ingi og líkir deg­inum þar inni við að standa fyrir framan lyftu sem aldrei komi. „Þetta er í raun hræði­legt fang­elsi þótt aðstaðan sé fín en hún skiptir minna máli en inni­hald fanga­vist­ar­innar. Verknám og starfs­þjálfun er það sem skiptir mestu máli.“

Hann segir gott starfs­fólk þarna sem reyni að bjarga hlut­unum en það sé ekki nóg. „Það kemur eng­inn betri út af Hólms­heið­inni, ég get alveg sagt það.“

„Að hafa eitt­hvað við að vera skiptir mestu máli, og vinna eða nám,“ segir Þráinn Farest­veit sem hefur verið fram­kvæmda­stjóri áfanga­heim­il­is­ins Verndar und­an­farin 18 ár. Á Hólms­heiði sé nán­ast ekk­ert í boði og það gangi illa að koma því í far­sælan far­veg að fá verk­efni t.d. utan fang­els­is­ins fyrir fanga og það komi ekk­ert annað í stað­inn. „Það er í raun og veru ekk­ert að hafa,“ ítrekar hann.

Þráinn segir að hóp­ur­inn sem núna sé inni í fang­els­unum sé mun erf­ið­ari heldur hann var fyrir örfáum árum síðan. Fanga­hóp­ur­inn sé sam­settur af mjög erf­iðum ein­stak­lingum og því hlut­falls­lega færri hæfir til að koma inn á áfanga­heim­ilið Vernd en dvöl þar minnkar mögu­leik­ana á end­ur­komu.

Endurkomutíðni hjá kvenföngum hærri

Staðan hjá kon­unum er verri en karl­anna eða sam­bæri­leg verstu til­vik­unum meðal þeirra. „Þær koma veik­ari inn í fyrsta skipti. Ég held að það sé verið að gera þeim ein­hvern greiða í dóms­kerf­inu, þær fara seinna inn og hafa því lengri tíma að skemma sig,“ segir Guð­mundur Ingi.

End­ur­komu­tíðnin hjá konum er að sama skapi hærri. „Hún er það hjá okkur klár­lega. Aðeins um 30 pró­sent kven­fanga stand­ast kröfur um að koma til okkar sem er miklu lægri tala en meðal karl­anna,“ segir Þráinn.

Þráinn bendir þó á að mjög erfitt sé að henda reiður á nákvæmum tölur um end­ur­komu­tíðni. Frestun afplán­unar, fyrn­ing dóma, raf­rænt eft­ir­lit og sam­fé­lags­þjón­usta hefur áhrif á taln­ingu og svo sé einnig óljóst hvaða áhrif erlendir fangar sem fara úr landi hafi á tölu­leg gögn. Þráinn segir stærsta vand­ann vera veikt fólk. „Það er svo margt veikt fólk inni í þessu kerfi sem þarf á mik­illi aðstoð að halda og ég vil full­yrða að vel yfir 90 pró­sent af þeim sem eru í fang­elsi eigi við mjög alvar­legan fíkni­vanda að stríða og menn eru farnir að þróa með sér ýmist geð­ræn vanda­mál sam­hliða því auk þess að allt of margir eru á lyfjum sem þeir fá innan fang­els­is­ins.“

Eftir Lindu Blöndal

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi