Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mansalshringir herja á Airbnb-eigendur

Gisti­húsa­eig­andi sem rekur Airbnb-þjón­ustu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ótt­ast að mansals­hringir not­færi sér þjón­ustu hans til að gera út konur í vændi. Óvenju tíðar ferðir og grun­sam­leg hegðun gesta, vanda­mál við greiðslur og óvenju­legar mat­ar­venjur vöktu grun­semdir eig­and­ans sem gerði lög­reglu við­vart. Sökum mann­eklu getur lög­reglan hins vegar lítið gert nema hún grípi við­kom­andi glóð­volga .

Mansalshringir herja á Airbnb-eigendur

Nota stolin kreditkort til að kaupa gistingu

Gisti­húsa­eig­and­inn, sem vildi ekki koma fram undir nafni af ótta við að það hafi nei­kvæð áhrif á orð­spor fyr­ir­tæk­is­ins, lýsir upp­lifun sinni í sam­tali við Mannlíf. Eins og algengt er með gisti­hús eins og hér um ræðir eru íbúð­irnar bók­aðar á Netinu í gegnum bók­un­ar­síður og greitt fyrir með kredit­korti. Kaup­and­inn fær síðan stað­fest­ingu í tölvu­pósti ásamt upp­lýs­ingum um stað­setn­ingu og sér­stakan talna­lykil til að kom­ast inn í íbúð­ina. Gest­ur­inn sér því alfarið um að inn­rita sig sjálfur. Þetta hafa óprút­tnir aðilar not­fært sér í auknum mæli. „Það er að fær­ast í auk­ana að greiðslur falla til baka 2-3 vikum eftir að fæslan hefur farið í gegn, þegar maður fær til­kynn­ingu frá inn­heimtu­að­il­anum að greiðslan sé aft­ur­kölluð. Búið að greiða og allt gengur í gegn en þá kemur í ljós að eig­andi korts­ins kann­ast ekki við færsl­una og til­kynnir það korta­fyr­ir­tæk­inu. Greiðslan er þá aft­ur­kölluð og tjónið lendir á mér,“ segir gisti­húsa­eig­and­inn og bætir við að hann hafi sömu aðila grun­aða um að stunda vænd­is­starf­semi í íbúð­unum.

Keyrðar fram og til baka og nærast á dósamat

Gisti­húsa­eig­and­inn segir að hann hafi orðið var við óeðli­lega mikla umferð um íbúð­irnar  og því verið á varð­bergi. Gest­irnir, kúbanskar konur, hafi stundum staðið fyrir utan og reykt sem hann gerði athuga­semd við. „Ég sé hvenær lás­arnir á íbúð­unum eru opn­aðir, það er skráð í gagna­grunn. Í þessum til­fellum hafa lás­arnir verið opn­aðir á klukku­tíma fresti, sem er mjög óeðli­legt,“ útskýrir hann og seg­ist í kjöl­farið hafa leitað til lög­reglu sem mætti á stað­inn. Þá voru kon­urnar ekki inni og lítið sem lög­regla gat aðhafst. Maðurinn telur einnig að kon­urnar séu fórn­ar­lömb mansals.

„Íbúð­irnar eru vana­lega bók­aðar í 4-5 daga yfir helgi. Konurnar koma stundum á réttum degi, en fara gjarna á sunnu­degi eða mánu­degi þótt íbúðin sé bókuð fram á fimmtu­dag. Ég get ekki verið viss um annað en að þær standi sjálfar á bak við bók­an­irnar. Ástæðan fyrir því að ég tel svo ekki vera er aðbún­aður kvenn­anna. Koma þeirra er greini­lega und­ir­búin, sami leigu­bíl­stjór­inn hefur komið með þær á stað­inn og þær fara ekk­ert nema vera sóttar og borða aðeins það ódýrasta sem hægt er að fá, hakk­aða tómata og aðrar nið­ur­suðu­vörur. Maður sér það þegar maður tæmir ruslið, ekk­ert nema nið­ur­suðu­dósir. Ódýrasta íbúðin er alltaf valin og hún bókuð deg­inum áður jafn­vel,“ segir hann og bætir við: „Það er ein­fald­lega ekki þannig að fólk sem kemur til að heim­sækja Ísland bóki deg­inum áður en það kemur. Ef ég reyni að spyrj­ast fyrir og leita upp­lýs­inga, þá er fólkið búið að pakka og farið.“

Fljótir að hverfa ef grunsemdir vakna

Síð­ast­lið­inn laug­ar­dag hringdi karl­maður á gisti­heim­ilið, hann hafði bókað sex gistinætur dag­inn áður, úr leyni­núm­eri. „Hann spurði hvernig hann kæm­ist inn en allir sem bóka fá strax sendan tölvu­póst með slíkum upp­lýs­ingum. Hann seg­ist ekki hafa fengið póst­inn svo ég lét hann gefa mér upp net­fang og sendi aftur. Þá sá ég að nafnið á net­fang­inu pass­aði ekki við greið­anda. Þegar ekki var svarað í síma­núm­er­inu sem hann gaf upp, fletti ég því upp og komst að því að þetta var falskt númer fyrir Bretland, en nafnið á net­fang­inu var austur-evr­ópskt. Eftir að mað­ur­inn ját­aði því að hann væri að koma sjálfur, minnti ég hann á að taka með sér vega­bréf og kredit­kortið sem greitt var með. Maðurinn kom aldrei svo ég læsti lás­unum að íbúð­inni, við­kom­andi hefði því þurft að hringja í mig til að kom­ast inn,“ útskýrði gisti­húsa­eig­and­inn og bætti við að ljóst mætti vera að þessir aðilar létu sig hverfa um leið og grennsl­ast væri fyrir um þá.

Sprenging í vændi

Lýsing gisti­húsa­eig­and­ans kemur heim og saman við það sem lýst er í árlegri skýrslu Ríkslög­reglu­stjóra um skipu­lagða glæp­a­starf­semi á Íslandi. Þar er „spreng­ing“ í vændi sett í sam­hengi við mikla fjölgun ferða­manna og upp­gang í efna­hags­líf­inu. Í skýrsl­unni segir að sumar þær erlendu kvenna sem stunda vændi séu sendar um lengri eða skemmri tíma til lands­ins og að baki búi nauð­ung. Telur lög­reglan að hluti starf­sem­innar teng­ist skipu­lögðum glæpa­sam­tökum. Í ein­hverjum til­vikum fylgi erlendir karl­menn kon­unum og hafi eft­ir­lit með þeim á meðan þvær dvelj­ast hér. Kon­unrnar fá við kom­una íslensk síma­númer og hafi aðstöðu í leigug­ist­ingu. Sökum mann­eklu og „afleiddrar nauð­syn­legrar for­gangs­röð­unar“ hefur lög­reglan ekki haft tök á að rann­saka þetta frekar.

Ljóst er að mis­notkun vænd­is­hringja á leigug­ist­ingu er ekki bundin við Ísland. Fyrr á árinu til­kynnti Airbnb að fyr­ir­tækið hyggð­ist grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir að vænd­is­hringir breyti leigu­í­búðum í „skyndi-vænd­is­hús“ (e. pop-up brot­hels). Er Airbnb í sam­starfi við gras­rót­ar­sam­tökin Polaris sem berj­ast gegn mann­sali þar sem starfs­menn verða þjálfaðir sér­stak­lega í að koma auga á mögu­legt man­sal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi