Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tækifæri til að komast í nálægð við glæpasagnahöfunda

Glæpa­sagna­há­tíðin Iceland Noir hófst í gær í IÐNÓ en á henni koma yfir 60 höf­undar saman í fjöl­breyttri dag­skrá sem stendur til sunnu­dags. Hátíðin er fyrir alla sem hafa áhuga á glæpa­sögum, að sögn rit­höf­und­ar­ins Óskars Guð­munds­sonar, for­manns skipu­lags­nefndar Iceland Noir. Ásamt honum sjá rit­höf­und­arnir Lilja Sig­urð­ar­dóttir, Ragnar Jónasson og Yrsa Sig­urð­ar­dóttir um skipu­lag hátíð­ar­innar.

Hug­myndin að hátíð­inni kvikn­aði árið 2013. „Hug­myndin fædd­ist hjá Ragnari, Quentin Bates og Yrsu fyrir fimm árum og fyrsta hátíðin var svo haldin ári síðar, 2014, þar sem Lilja kom einnig að skipu­lagn­ing­unni. Síðan þá hefur hún verið haldin hér á landi annað hvert ár en þess á milli hefur ein­hver annar haldið hana í okkar nafni erlendis.“

Óskar segir hátíð­ina fara stækk­andi ár frá ári en þetta árið halda um 60 glæpa­sagna­höf­undar erindi á henni í formi pall­borðsum­ræðna og hátt í 150 íslenskir sem og erlendir gestir munu heim­sækja hátíð­ina. „Í ár eru mörg stór og þekkt nöfn sem taka þátt, það hefur nefni­lega verið eft­ir­sótt að kom­ast að á hátíð­ina og við stóðum fljót­lega frammi fyrir því lúx­us­vanda­máli að þurfa að setja rit­höf­unda á biðlista því hátíðin hefur spurst út víða og orðið eft­ir­sótt. Enda hefur hún alltaf heppn­ast gríð­ar­lega vel og við lagt mjög mik­inn metnað í alla umgjörð og dag­skrá.“

Við stóðum fljót­lega frammi fyrir því lúx­us­vanda­máli að þurfa að setja rit­höf­unda á biðlista.

Beðinn um að nefna dæmi um nokkra spenn­andi við­burði á hátíð­inni segir Óskar: „Þegar stórt er spurt. Dag­skráin sjálf er auð­vitað hrika­lega spenn­andi og þá eru heið­urs­gest­irnir okkar til dæmis ekki af verri end­anum, þar má nefna for­seta­frúna okkar, Elísu Reid, for­sæt­is­ráð­herr­ann okkar, Katrínu og stór­skáldið Sjón. Þau taka þátt í pall­borði með okkur en einnig má nefna kanadíska höf­und­inn Shari Lapena og Mark Bill­ing­ham, þau halda hvort sitt erindið í dag.“

Spennandi stökkpallur

Óskar kom fram á sjón­ar­sviðið árið 2015 með glæpa­sög­una Hilma. Hann segir Iceland Noir hafa reynst sér vel eftir útgáfu hans fyrstu bókar. „Þetta er frá­bær vett­vangur fyrir nýja íslenska höf­unda og ég fékk að kynn­ast því árið 2016. Hátíðin getur verið spenn­andi stökk­pallur fyrir nýja höf­unda og ekki síst til að kynn­ast þessu sam­fé­lagi rit­höf­unda. Við erum með pall­borðsum­ræður sér­stak­lega fyrir nýja glæpa­sagna­höf­unda,“ segir Óskar sem mælir ein­dregið með hátíð­inni fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref sem rit­höf­undar.

Óskar mælir einnig með hátíð­inni fyrir alla þá sem hafa áhuga á glæpa­sögum. „Það er hreint út sagt frá­bært að kynn­ast öllu þessu fólki og fá inn­sýn inn í heim rit­höf­unda, líf þeirra og hvernig þeir vinna. Á hátíð­inni gefst öllum tæki­færi til að kom­ast í nálægð við höf­unda og spjalla við þá. Það hefur verið á bratt­ann að sækja að fá Íslend­inga til að mæta á hátíð­ina en við erum þó með sér­stakt átak í þeim efnum núna þar sem þeir geta keypt sig inn á staka við­burði á TIX.is. Aðspurður hverju það sæti segir Óskar að það sé senni­lega vegna þess að land­inn þekkir þetta ekki. „Ég held að fólk átti sig ekki á því að þetta er fyrir alla og allir vel­komnir. Þarna er bara líf og fjör í tusk­unum.“

Það er hreint út sagt frá­bært að kynn­ast öllu þessu fólki og fá inn­sýn inn í heim rit­höf­unda.

Hljómsveit skipuð rithöfundum

Óskar segir að um helj­ar­innar pró­gramm sé að ræða. „Hátíðin byrj­aði síð­degis í gær og svo eru haldnir við­burðir frá morgni til kvölds þar til á sunnu­dag. Svo er auð­vitað ball á morgun, laug­ar­dag, í IÐNÓ. Þar spilar hljóm­sveitin Fun Lovin’ Crime Writers fyrir dansi en sú hljóm­sveit er skipuð sex breskum glæpa­sagna­höf­undum. Þau syngja ein­göngu lög þar sem ein­hver er myrtur,“ segir Óskar og hlær. „Þetta er ekki bara gríð­ar­lega áhuga­verð hljóm­sveit, heldur einnig mjög góð.“

Áhuga­samir geta nálg­ast upp­lýs­ingar um hátíð­ina á vef­síð­unni www.icelandnoir.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi