Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslenskur byssubófi í villta vestrinu

Íslenskur byssubófi í villta vestrinu
Kári Val­týs­son gefur út bók­ina Hefnd.

Kári Val­týs­son er ungur lög­fræð­ingur sem í gær sendi frá sér sína fyrstu skáld­sögu sem nefn­ist Hefnd. Umfjöll­un­ar­efnið er nýj­ung í íslenskri skáld­sagnaflóru því sagan fjallar um Íslend­ing sem ger­ist byssu­bófi í villta vestr­inu á árunum eftir þræla­stríðið í Banda­ríkj­unum.

„Þetta er saga sem byrjar 1866 í Reykja­vík og segir frá ungum manni sem kemur sér í vand­ræði og þarf að flýja til Ameríku,“ segir Kári spurður um sögu­efnið. „Þar fær hann vinnu við að leggja járn­braut­ar­teina í villta vestr­inu og smám saman leið­ist hann út í að verða byssu­bófi.“

Kári seg­ist hafa skrifað lengi og fengið alls konar hug­myndir sem hafi komið og farið en svo var það árið 2015 sem hug­mynd fest­ist í hausnum á honum og neit­aði að hverfa.

„Ég hafði lengi velt því fyrir mér hvað hefði verið svo hræði­legt á Íslandi á þessum tíma að fjöldi fólks hafi flúið til Ameríku,“ segir hann. „Ég lagð­ist í að skoða heim­ildir og lesa gömul tíma­rit eins og Þjóðólf, leit­aði á söfnum og fann rit­gerð eftir Þórberg Þórð­ar­son þar sem hann tók við­töl við fólk sem var uppi á þessum tíma. Mér fannst þetta svo ótrú­lega for­vitni­legt að ég fór lengra með þetta og fór að spá í hvað hefði verið að ger­ast í Banda­ríkj­unum á þessum tíma. Það var ekk­ert lítið spenn­andi, þræla­stríð­inu nýlokið og verið að reyna að tjasla sam­fé­lag­inu saman á meðan frægir útlagar og byssu­bófar óðu uppi. Þetta kveikti í mér og mér datt í hug að búa til sögu um gaur sem þarf að láta sig hverfa af landi brott og flytj­ast vestur um haf þar sem hann endar á að verða byssu­brandur.“

Hollywood-legur hasar og íslenskur veruleiki

Kári seg­ist hafa séð þarna raun­hæfa leið til að skrifa óraun­hæfa sögu enda hafi hann lengi verið aðdá­andi vestra, bæði í kvik­myndum og bók­menntum.

„Maður var ekk­ert kúreki á ösku­dag­inn þegar maður var lít­ill að ástæðu­lausu,“ segir hann og hlær. „Það hefur alltaf blundað í mér áhugi fyrir þessu tíma­bili og hann hefur bara auk­ist með árunum. Ég hef lesið mikið af bókum Elmores Leonard, sem fyrir utan að skrifa vestra skrif­aði hand­ritin að Jackie Brown og Get Shorty, og svo eru tvær síð­ustu myndir Quentins Tar­antino vestrar sem enn juku áhug­ann.“

Spurður hvort hann hafi kannski legið í Morgan Kane sem strákur neitar Kári því en segir Hollywood kannski eiga stærstan þátt í því að við­halda þessum vestra­á­huga. En er Hefnd skrifuð í Hollywood-stíl?

„Já og nei,“ segir Kári hugsi. „Hún er nátt­úr­lega full af hasar, sem er kannski inn­blástur frá Hollywood. Það eru vondir kallar og góðir kallar og margt í mjög hefð­bundnum anda vestr­anna en hins vegar held ég ekki að neinn hafi látið sér detta í hug að láta það ganga upp að setja Íslend­ing í þessar aðstæður. Það sem er ekki Hollywood-legt við sög­una eru kafl­arnir um Ísland, sem eru stór hluti bók­ar­innar. Þar er ekki mikil vestrastemn­ing en mér fannst það mjög skemmti­legt og for­vitni­legt að skoða það.“

Er sögu­hetjan þá að rifja upp hvernig lífið var heima á milli þess sem hann er að skjóta fólk?

„Nei, þetta er línu­leg frá­sögn,“ segir Kári. „Bókin byrjar reyndar með skot­bar­daga á slétt­unum í Banda­ríkj­unum en svo fáum við að vita hvernig sögu­hetjan komst þangað, hverfum til baka og lærum hvernig lífið hefur leikið hann þangað til hann kemst á þennan stað. Svo heldur sagan af honum í villta vestr­inu áfram.“

Skrifar í staðinn fyrir sjónvarpsgláp

Kári er þrjá­tíu og þriggja ára lög­fræð­ingur í fullu starfi. Ólst upp á Akureyri en býr nú í Vest­ur­bænum í Reykja­vík með eig­in­konu og tveimur ungum börnum. Hvenær hefur hann tíma til að setj­ast niður og skrifa í þeim aðstæðum?

„Þetta er spurn­ing sem ég fæ mjög oft frá vinum mínum,“ segir hann hlæj­andi. „Mjög góð spurn­ing, í raun­inni. Ég nota kvöldin í að skrifa. Sest við skriftir í stað­inn fyrir að horfa á bíó­myndir eða þætti eða hanga á Facebook. Maður tekur bara kvöldin í þetta þegar maður er í stuði. Ég les alltaf á kvöldin áður en ég fer að sofa og síð­ustu ár hefur sá lestur verið á heim­ildum sem tengj­ast þessum tíma.“

Ungir höf­undar kvarta oft yfir að erfitt sé að koma sér á fram­færi með fyrstu bók, var það ekk­ert vanda­mál fyrir Kára?

„Það var strax áhugi á sögu­efn­inu hjá fleiri en einum útgef­anda,“ segir hann. „En maður er nátt­úr­lega nýr höf­undur og það fylgir því áhætta að gefa út bækur eftir alls óþekkta höf­unda, tala nú ekki um ein­hvern sem er nógu klikk­aður til að skrifa íslenskan vestra. En Tómas útgef­andi hjá Sögum útgáfu stökk strax á þetta og fannst þetta bara hel­víti flott, þannig að áður en ég vissi af var ég búinn að skrifa undir útgáfu­samn­ing og setja allt á fullt. Það er bara frá­bært, enda gam­all  draumur minn að ræt­ast.“

Ekki gott að verða tæklaður

Bókin kom í búðir í gær, hvernig líður Kára með það að vita til þess að nú fari fólk að lesa hana og leggja á hana mat? Kvíðir hann fyrir?

„Þetta leggst ágæt­lega í mig,“ segir hann kok­hraustur. „Það er auð­vitað kvíða­blandið að hugsa til þess að ein­hver sé að lesa bók­ina mína, en líka ánægju­legt og for­vitni­legt þannig að ég er í raun­inni bara fullur þakk­lætis. Ef ein­hverjum mis­líkar bókin þá er það bara partur af ferl­inu, það eru aldrei allir sáttir. Ég er mjög glaður með bók­ina, stend með henni alla leið og vona bara að þetta legg­ist vel í fólk.“

Og þú munt ekk­ert fara á taugum þótt gagn­rýnendur tæti bók­ina í sig?

„Það verður ekk­ert góður dagur ef maður verður tækl­aður, ef ég má orða það þannig,“ segir Kári sposkur. „En maður þarf bara að arka í gegnum það eins og annað í líf­inu. Það er auð­vitað ekki draumur rit­höf­undar að fá dóm þar sem bókin er tætt niður, það væri miklu meira gaman að fá góða rýni, en við vonum það besta bara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi