Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Varúðarmerkin sjást alls staðar“

Heim­ilda­myndin UseLess eftir Rakel Garð­ars­dóttur og Ágústu M. Ólafs­dóttur hefur verið á góðri sigl­ingu síð­ustu mán­uði en hún hefur nú unnið til fernra alþjóð­legra verð­launa. Í mynd­inni er fjallað um sóun og sér­stök áhersla lögð á afleið­ingar matar- og tísku­só­unar.

„Varúðarmerkin sjást alls staðar“
Ágústa M. Ólafs­dóttir og Rakel Garð­ars­dóttir standa að baki verð­launa­mynd­inni UseLess.|

„Þetta er bara alveg meiri­háttar. Þótt til­gang­ur­inn með gerð mynd­ar­innar hafi auð­vitað verið að vekja fólk til umhugs­unar um hvað við sjálf getum gert til að draga úr lofts­lags­breyt­ingum þá hjálpa svona verð­laun klár­lega til að vekja athygli á henni og von­andi fá þau fleiri til að sjá hana,“ segir Rakel spurð út í gott gengi mynd­ar­innar en UseLess hefur nú hlotið fern alþjóð­leg verð­laun frá því að hún var frum­sýnd á Skjald­borg­ar­há­tíð­inni á Pat­reks­firði í vor, þ.á m. Best Environ­mental Film Award á DOC LA-heim­ilda­mynda­há­tíð­inni í Los Angeles og nýverið var myndin valin besta heim­ilda­myndin á International Green Film Festival í Kraká í Póllandi.

Vakandi kveikjan að UseLess
Rakel hefur um ára­bil staðið fyrir auk­inni vit­und­ar­vakn­ingu um sóun mat­væla í gegnum sam­tökin Vakandi sem hún stofn­aði 2014 en það var einmitt starf hennar með þeim sem varð kveikjan að gerð mynd­ar­innar. „Ég fæ mikið af beiðnum um að halda fyr­ir­lestra um málið og það hefur komið fyrir að ég hafi ekki getað orðið við því. Það varð til þess að mér datt í hug að gera mynd sem gæti leyst mig af,“ lýsir hún, en í UseLess er fjallað um sóun og segir Rakel að með mynd­inni hafi þær Ágústa viljað leggja enn meira af mörkum til umræð­unnar um matar- og tísku­sóun.

Spurð hvar henni finn­ist sú umræða eig­in­lega standa á Íslandi svarar hún því að það sé klár­lega komin hreyf­ing á hlut­ina. „Sem dæmi hitti ég reglu­lega fólk sem hefur snúið við blað­inu og heim­sæki fyr­ir­tæki sem vilja gera betur,“ segir hún en bætir við að Íslend­ingar eigi þó enn langt í land hvað þetta varði. „Á Íslandi er t.d. rosa­lega mik­ill inn­flutn­ingur á mat og öðrum varn­ingi. Margt af því er auð­vitað nauð­syn­legt þar sem við búum á eyju en annað er algjör óþarfi og mér finnst sorg­legt að það sé verið að flytja slíkan óþarfa í skips­förmum til lands­ins, ein­fald­lega vegna þeirra slæmu áhrifa sem það hefur á umhverfið. Það er bara eitt dæmi um hvernig óhóf sem er auð­vitað einn angi matar- og tísku­só­unar, getur haft áhrif á umhverfið, á lofts­lags­breyt­ingar. En eins og við vitum eru þær breyt­ingar farnar að hafa bein áhrif á dag­legt líf okkar, sbr. skóg­ar­eld­arnir sem geisuðu í Svíþjóð og víðar um heim í sumar. Var­úð­ar­merkin sjást alls staðar.“

Ágústa M. Ólafs­dóttir og Rakel Garð­ars­dóttir standa að baki verð­launa­mynd­inni UseLess. Mynd/Aðsend.

Litlu hlut­irnir skipta máli
Rakel heldur þó fast í von­ina um að ástandið lag­ist og seg­ist í því sam­hengi telja að auk­inn stuðn­ingur við inn­lenda fram­leiðslu, s.s. mat­væla­fram­leiðslu og efl­ing nýsköp­unar á Íslandi geti haft mikið að segja. „Svo skipir fram­lag hvers og eins auð­vitað máli. T.d. að við reynum að nýta mat­væli og föt betur en við gerum. Hlutir sem er svo auð­velt að breyta og sem geta haft svo mikil áhrif þegar við legg­umst öll á eitt.“ Hún seg­ist tala af reynslu þar sem hún hafi sjálf tekið sig mikið á í þeim efnum. „Og það er bara ekk­ert mál,“ segir hún hress. „Bara skemmti­leg áskorun. Einföld atriði sem geta gert það að verkum að kom­andi kyn­slóðir eigi sóm­sam­legt líf.“

Spurð hvort verð­launin sem UseLess hefur hlotið séu ekki til merkis um vissan með­byr með þessum mál­stað, svarar Rakel því ját­andi og kveðst horfa björtum augum til fram­halds­ins þar sem til stendur að sýna mynd­ina á kvik­mynda­há­tíðum í Barcelóna, New York og Rúss­landi á næst­unni og síðar meir á RÚV. „Danska sjón­varpið, DR, er svo með dreif­ing­ar­rétt­inn á mynd­inni og þau eru bara á fullu við að kynna hana sem mér skilst að gangi mjög vel,“ segir hún glöð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi