Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Blómstra á nýjum vettvangi

Þjóð­þekktir Íslend­ingar sem hafa tekið U-beygju á starfs­ferl­inum.

Blómstra á nýjum vettvangi
||||||||
Eyjólfur Krist­jáns­son.

Úr tón­list í tann­hvíttun
Eyjólfur Krist­jáns­son, betur þekktur sem Eyvi, er að heita má kanóna í íslensku tón­list­ar­lífi því eftir hann liggja meira en 200 lög. Þ.á m. Eurovision-slag­ar­inn Nína sem er fyrir löngu búinn að skipa sér sess með helstu dæg­ur­laga­perlum þjóð­ar­innar. Marga rak því í rogastans þegar meist­ar­inn upp­lýsti í við­tali fyrr á árinu að hann hefði söðlað um og væri far­inn að vinna við … tann­hvíttun. Já, Eyvi hefur svissað úr söngnum yfir í snyrti­brans­ann og ku þetta vera í fyrsta sinn í 30 ár sem kapp­inn er í fastri vinnu.

Friðrik Dór. Mynd / Kristinn Magn­ús­son.

Snýr sér að inn­an­húss­hönnun
Söngv­ar­inn Friðrik Dór hélt fyrir skömmu tón­leika í Kaplakrika sem hann til­kynnti að yrðu síð­ustu tón­leikar hans í bili. Hann ætlar nefni­lega að söðla alveg um, láta gamlan draum ræt­ast og flytja til Ítalíu með fjöl­skyld­una. Ástæðan fyrir búferla­flutn­ing­unum er sú að Friðrik hyggst nema inn­an­húss­hönnun á Ítalíu enda seg­ist hann hafa haft áhuga á hönnun frá níu ára aldri þegar hann fékk að mála her­bergið sitt dökk­blátt og eit­ur­grænt. Áhuginn jókst svo enn frekar við áhorf á Innlit-útlit og lestur Bo bedre frá tólf ára aldri. Það má sem sagt í raun­inni kenna Völu Matt um hvarf söngv­ar­ans ást­sæla af tón­list­ar­sen­unni. Mikil er ábyrgð hennar.

Sigurður Ingi Jóhanns­son.

Dag­finnur dýra­læknir
Alþingi hefur stundum verið líkt við dýra­garð og því kannski við hæfi að þar skuli sitja mennt­aður dýra­læknir. Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er með emb­ætt­is­próf í dýra­lækn­ingum frá Kon­ung­lega dýra­lækna- og land­bún­að­ar­há­skól­anum í Kaup­manna­höfn og starf­aði lengi sem dýra­læknir áður en leiðin lá í póli­tík­ina. Segja mætti að sú reynsla hafa nýst Sigurði Inga vel á þingi því gagn­stætt for­vera sínum í Framsókn, sem hafði ein­stakt lag á að strjúka köttum öfugt, þá þykir Sigurður Ingi yfir­leitt nálg­ast póli­tíska mótherja sína af mik­illi yfir­vegun og nær­gætni. Þar kemur reynsla dýra­lækn­is­ins af styggum skepnum eflaust að góðum notum.

Ellý Ármanns. Mynd / Kristinn Magn­ús­son

Nátt­úruta­lent og núd­isti
Ellý Ármanns sigr­aði hjörtu þjóð­ar­innar sem sjón­varps­þula á RÚV fyrir margt löngu og starf­aði síðan árum saman sem blaða­maður á Vísi þar sem segja má að hún hafi rutt braut­ina fyrir vin­sældir krassandi slúð­ur­frétta af fræga fólk­inu. Nú er Ellý sjálf orðin við­fangs­efni slúð­ur­frétt­anna, en vef­miðlar halda vart vatni yfir nýj­ustu fram­leiðslu hennar, nekt­ar­myndum af eró­tískara tag­inu þar sem hún sjálf og unnusti hennar, Hlynur Jak­obs­son, eru talin vera fyr­ir­mynd­irnar. Ellý er þó leynd­ar­dóms­full þegar spurt er út í þá hlið máls­ins, en eitt er víst að hún er hvergi nærri hætt að kitla slúð­ur­taugar land­ans. Við bíðum spennt eftir næsta útspili frá henni.

Bergþór Pálsson. Mynd / Kristinn Magn­ús­son

Óperu­söngv­ari ger­ist áhrifa­valdur
Óperu­söngv­ar­inn og sjar­matröllið Bergþór Pálsson sýndi að honum er meira til lista lagt en að þenja radd­böndin þegar hann birt­ist lands­mönnum í þætt­inum Allir geta dansað, vel greiddur og tan­aður. Þátt­tök­unni fylgdu miklir rykkir og hnykkir og kílóin fuku af Bergþóri. Síðan þá hefur söngv­ar­inn síhressi farið ham­förum á sam­fé­lags­miðlum þar sem hann hefur lyft lóðum, farið í fall­hlíf­ar­stökk, rifið sig úr að ofan og mært hreinsi­efni (sem hlaut við­ur­nefnið „Berg­þórs­sápan“) en rit­höf­und­ur­inn Jónína Leós­dóttir var ein þeirra sem ákvað að prófa ofur­efnið og sagði á Facebook að það hefði verið hápunktur helg­ar­innar. Bergþór er því ekki lengur bara söngv­ari heldur áhrifa­valdur og vin­sæl sam­fé­lags­miðla­stjarna.

Vigdís Gríms­dóttir. Mynd / Stefán Karlsson

Aftur til upp­hafs­ins
Vigdís Gríms­dóttir var löngu orðin einn dáð­asti og virt­asti rit­höf­undur þjóð­ar­innar þegar hún söðl­aði alveg um fyrir nokkrum árum og réði sig sem kenn­ara við Finn­boga­staða­skóla í Árnes­hreppi á Ströndum. Mörgum kom þessi kúvend­ing í opna skjöldu en Vigdís er lærður kenn­ari og starf­aði sem slíkur þegar fyrstu bækur hennar slógu í gegn. Það má því segja að hún hafi snúið aftur til róta sinna í fámenn­inu í Árnes­hreppi þar sem hún er engu minna elskuð og dáð af nem­endum sínum en hún er elskuð og dáð af les­endum sínum um allt land. Til allrar ham­ingju fyrir okkur hefur hún þó haldið áfram að skrifa með fram kennsl­unni og ekki alveg snúið baki við rit­höf­und­ar­ferl­inum.

Sölvi Blöndal. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Rapp­ar­inn sem varð hag­fræð­ingur árs­ins
Sölvi Blöndal, hag­fræð­ingur hjá Gamma, var val­inn hag­fræð­ingur árs­ins 2017 af Félagi við­skipta- og hag­fræð­inga. Sölvi var áður einn af röpp­ur­unum í hljóm­sveit­inni Quarashi sem naut gríð­ar­legra vin­sælda fyrir ára­tug eða svo. Fáir hafa senni­lega séð það fyrir sér að nokkrum árum síðar yrði honum hampað sem besta hag­fræð­ingi þjóð­ar­innar. Enda sagði hann við mót­töku verð­laun­anna að hann hefði sjálfur aldrei trúað því fyrir 10 árum að hann myndi taka við verð­launum sem hag­fræð­ingur árs­ins þar sem öll þau verð­laun sem hann hefði tekið við fram að því hefðu verið vegna tón­list­ar­innar. Plötur Quarashi seld­ust í bíl­förmum, bæði á Íslandi og í Japan, og ekki ólík­legt að hag­fræði­heili Sölva hafi verið drif­fjöðrin á bak við vel­heppn­aða mark­að­setn­ingu platn­anna.

Helga Vala Helga­dóttir.

Nýtur sín á hinu póli­tíska sviði
Helga Vala Helga­dóttir lærði meðal ann­ars leik­list áður en hún sett­ist á þing fyrir Sam­fylk­ing­una og er óhætt að segja að þar fái leik­rænir hæfi­leikar hennar að njóta sín til fulls. Þannig tóku flestir eftir þegar Helga Vala skund­aði burt, full vand­læt­ingar, af Þing­völlum þegar Pia Kjærs­gaard, for­seti danska þings­ins og „for­dóma­seggur“, hélt hátíð­ar­ræðu á full­veld­is­af­mæl­inu. Eða þegar Helga Vala húð­skamm­aði Eyþór Arnalds fyrir að „ham­ast af öllu afli“ á Degi B. Eggerts í bragga­mál­inu og spurði hvort ekk­ert væri „heil­agt í póli­tísku stríði?“ Póli­tískir and­stæð­ingar Helgu Völu hafa sakað hana um sýnd­ar­mennsku en þarna sann­ast ein­fald­lega sú forn­kveðna vísa að stjórn­mál eru leik­svið og þing­konan skel­egga kann að nýta sér það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi