Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Höfum enn ekki fundið skjól eftir hrunið

Pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands segir Íslend­inga ekki vera betur varða fyrir efna­hags­legum áföllum nú en fyrir tíu árum þegar hrunið átti sér stað. Hann telur að stjórn­mála­mönnum hafi mis­tek­ist að tryggja lands­mönnum efna­hags­legt skjól.

Höfum enn ekki fundið skjól eftir hrunið
|
Frá mál­þing­inu. Mynd / Kristinn Ingv­ars­son

„Við erum ekk­ert betur varin fyrir efna­hags­legum áföllum en fyrir tíu árum þegar hrunið skall á okkur. Stjórn­mála­menn hafa verið að reyna að tryggja okkur efna­hags­legt skjól með ýmsum hætti en ekki tek­ist,“ segir Baldur Þór­halls­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands. Baldur segir aðgerðir stjórn­valda meðal ann­ars fel­ast í aðild­ar­um­sókn að Evr­ópu­sam­band­inu, frí­versl­un­ar­samn­ingi við Kína og nán­ari tengslum við ríki sem sýni mál­efnum Norð­ur­skauts­ins áhuga. „Nú tala ráða­menn um að okkur myndi farn­ast best með því að fylgja Bretum, eftir að þeir ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu, og gera frí­versl­un­ar­samn­inga við önnur ríki.“

Baldur kynnti í vik­unni bók­ina „Small States and the Shelter Theory: Iceland‘s External Affairs“ sem fjallar um póli­tísk, efna­hags­lega og félags­lega snertifleti Íslands við helstu ríki, efna­hags­svæði og alþjóða­stofn­anir. Þetta er rann­sókn unnin undir for­ystu hans og rann­sóknateymis við Rann­sókna­setur um smá­ríki við Háskóla Íslands. Ætla má að þetta sé ein víð­tæk­asta rann­sókn sem unnin hefur verið á alþjóða­sam­vinnu Íslend­inga.

Baldur segir bók­ina snú­ast um tvennt. Annars vegar er þar sett fram kenn­ing um skjól. Samkvæmt henni glíma smá­ríki við inn­byggða veik­leika á borð við lít­inn og sveiflu­kenndan heima­markað, tak­mark­aða varn­ar­getu og litla stjórn­sýslu. „Lítil ríki eru eðli­lega van­mátt­ugri en þau stóru. Þau þurfa að grípa til sér­stakra ráð­staf­ana inn­an­lands og erlendis til að vega upp á móti þessum veik­leikum. Að mínu mati er það grund­vall­ar­at­riði fyrir stjórn­mála­menn í litlum ríkjum að sætta sig við þessa inn­byggðu veik­leika. Ef þeir horfast ekki í augu við þá, munu þeir ekki grípa til nauð­syn­legra ráð­staf­ana til að draga úr þeim,“ segir Baldur.

Skjólkenn­ingin sem Baldur nefnir kveður á um að smá­ríki þurfi efna­hags­legt, póli­tískt og félags­legt skjól til að koma í veg fyrir áföll eins og efna­hags­hrun og netárásir. Ef smá­ríki verði hins vegar fyrir efna­hags­á­falli eða netárás, þurfi það að geta leitað aðstoðar þegar í stað. Í þriðja lagi þurfi smá­ríkið líka að geta fengið aðstoð við upp­bygg­ingu eftir slíkt áfall.

„Stjórn­mála­menn hafa verið að reyna að tryggja okkur efna­hags­legt skjól með ýmsum hætti en ekki tek­ist.“

Höfðum við þetta fyrir síð­asta hrun?
„Nei, við höfðum það ekki og við höfum það ekki heldur í dag,“ segir Baldur og nefnir sem dæmi mögu­leik­ana ef nýtt efna­hags­legt áfall ríður yfir með gjald­þroti ann­ars stóra íslenska flug­fé­lags­ins eða mögu­lega beggja með til­heyr­andi nei­kvæðum áhrifum á efna­hag lands­ins og lífs­kjör fólks. Utan­að­kom­andi stuðn­ingur gæti dempað þau áhrif. „Við höfum engan til að leita eftir aðstoð hjá, frekar en fyrir ára­tug, nema þá aftur Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn,“ segir hann.

Í bók Baldurs eru í sam­ræmi við þetta skoðuð tengsl Íslands við Banda­ríkin, Norð­ur­löndin, þátt­töku Íslands í Evr­ópu­sam­run­anum, aðild­ina að EFTA, EES og Schengen. Jafn­framt er skoðað hvar hugs­an­legt sé að finna skjól fyrir Ísland í fram­tíð­inni og rýnt í efna­hags­lega, póli­tíska og félags­lega þætti.

Baldur segir Banda­ríkin hafa um ára­bil veitt Íslandi skjól, jafnt í efna­hags­þreng­ingum sem milli­ríkja­deilum. Íslend­ingar hefðu lík­lega ekki unnið þorska­stríðin nema vegna diplómat­ísks stuðn­ings Banda­ríkj­anna. Með brott­hvarfi Varn­ar­liðs­ins árið 2006 var ljóst að skjólið var ekki vestra lengur. Það kom líka í ljós í efna­hags­hrun­inu.

Félags­legt skjól hefur verið að finna á hinum Norð­ur­lönd­unum og leita Íslend­ingar enn þar eftir fyr­ir­myndum og sam­starfi við helstu stofn­anir. „Aðild­inni að EES fylgir líka umtals­vert félags­legt skjól og er það veru­lega van­metið, að okkar mati. Íslenskt vís­inda­sam­fé­lag væri ekki svipur hjá sjón ef það hefði ekki aðgang að sam­starfs­neti erlendra fræði­manna og styrk­fénu sem fæst með Evr­ópu­sam­vinn­unni. Aðgangur að mennta­stofn­unum í Evrópu er lyk­ill­inn að fram­þróun íslensks sam­fé­lags,” segir Baldur.

Að mati Baldurs felst umtals­vert efna­hags­legt skjól í aðild­inni að Evrópska efna­hags­svæð­inu. „Þar erum við hluti af stærri mark­aði. Við erum með lög­gjöf sem hefur stór­aukið sam­keppn­is­hæfni íslenskra fyr­ir­tækja, aukið hag­vöxt, auð­veldað útflutn­ing og bætt lífs­kjör í land­inu. Til við­bótar skipti sam­eig­in­legur vinnu­mark­aður á EES-svæð­inu öllu máli. Flæði vinnu­afls til og frá land­inu dempar áhrif þeirra efna­hags­sveifla sem lítil hag­kerfi lenda í,“ segir hann en bætir við að á sama tíma veiti EES-samn­ing­ur­inn okkur falskt öryggi. Ísland sé ekki með­limur í klúbbnum, ekki innan ESB.
„Aðild að EES veitir ekki efna­hags­lega aðstoð til að fyr­ir­byggja hrun, stuðn­ing þegar hrun dynur yfir og hjálp við upp­bygg­ingu. Það sást best í hrun­inu fyrir tíu árum,“ segir Baldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi