Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kjarabætur – allra hagur

Kjarabætur – allra hagur

Höfundur: Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé

Félög launa­fólks hafa nú mörg hver birt kröfu­gerð sína fyrir kom­andi kjara­samn­inga. Af þeim má ljóst vera að ærið verk­efni bíður samn­ings­að­ila; verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og atvinnu­rek­enda. Ljóst er að metn­aður for­ystu­fólks verka­lýðs­fé­laga er mik­ill fyrir hönd umbjóð­enda sinna og fyrir það ber að hrósa, sem og þann mikla bar­áttu­anda sem ríkir innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. Það er sam­eig­in­legt verk­efni okkar allra að við höfum öll færi á að lifa mann­sæm­andi lífi á laun­unum okkar.

Hafandi fylgst með þjóð­málum ansi lengi þyk­ist ég greina annan tón í for­svars­mönnum atvinnu­rek­enda. Mér finnst þeir opn­ari fyrir ýmsu sem áður hefur verið talið úti­lokað og von­ast til þess að þetta gefi góðan tón fyrir samn­ing­ana. Oftar en ekki hefur ferlið í kjara­samn­ingum verið þannig að verka­lýðs­hreyf­ingin setur fram kröfur sínar, atvinnu­rek­endur loka á þær allar og síðan sest fólk að samn­inga­borði.

Rík­is­stjórnin tók strax aðra stefnu hvað vinnu­mark­að­inn varðar en lengi hafði verið við lýði. Fundað var með aðilum í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum og eftir stofnun rík­is­stjórnar hafa verið haldnir tíu fundir. Nokkrum verk­efnum er lokið, hækkun atvinnu­leys­is­trygg­inga, hækkun hámarks­greiðslna Ábyrgð­ar­sjóðs launa og nið­ur­lagn­ing kjara­ráðs, en fjöl­mörg eru enn í skoðun. Þar má nefna hag­sveiflu­leið­rétt atvinnu­leys­is­trygg­inga­gjald, úttekt á Fræðslu­sjóði, starfs­hóp um umbætur á úrvinnslu og nýt­ingu launa­töl­fræði­upp­lýs­inga, til­rauna­verk­efni um stytt­ingu vinnu­vik­unnar og ýmis­legt fleira.

Þá hefur rík­is­stjórnin til­kynnt að unnið sé að ýmsum málum sem eiga eftir að koma launa­fólki – og raunar sam­fé­lag­inu öllu – vel. Til dæmis breyt­ingar í skatt­kerf­inu, lækkun á trygg­inga­gjaldi og það hvernig skatt­byrði verður best létt af tekju­læsta fólk­inu og lægri milli­tekju­hópum. Þá er ljóst að taka verður ræki­lega til hend­inni í hús­næð­is­málum.

Kjara­samn­ingar eru hins vegar á milli launa­fólks og atvinnu­rek­enda. Ríkið kemur að sumum þeirra sem launa­greið­andi, en slíku er ekki að heilsa á almenna mark­aðnum. Hlutverk verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar er fyrst og fremst að semja um kaup og kjör félags­manna. Það er ekki í hennar höndum að taka ákvarð­anir sem er okkar alþing­is­manna að taka sem hand­hafa lög­gjafa­valds­ins. Að sjálf­sögðu er eðli­legt og nauð­syn­legt að verka­lýðs­hreyf­ingin komi skoð­unum sínum á umbótum á fram­færi, en þær geta aldrei orðið krafa á stjórn­völd.

Rík­is­stjórnin hefur ítrekað lýst því yfir að hún sé reiðu­búin til að greiða fyrir málum og hún hefur þegar sýnt það í öllum sínum gjörðum að svo er, bæði með sam­ráði og þeim verk­efnum sem hér hafa verið talin upp. Fyrstu skref í skatt­kerf­is­breyt­ingum sem birt­ust í fjár­laga­frum­varpi fyrir næsta ár eru í anda yfir­lýs­ingar rík­is­stjórn­ar­innar um að þær gagn­ist best tekju­lægsta fólk­inu og lægri milli­tekju­hópum. Þar er verið að hækka barna­bætur svo um munar, hækka per­sónu­af­slátt umfram neyslu­vísi­tölu og sam­ræma við­mið­un­ar­fjár­hæðir í skatt­kerf­inu þannig að neðri og efri mörk þró­ist með sam­bæri­legum hætti.

Það verður áhuga­vert að sjá hvernig aðilum kjara­við­ræðna tekst að nálg­ast hver annan. Íslenskt sam­fé­lag er ríkt að verð­mætum og við ættum öll að geta haft það býsna gott. Það er von mín að kjara­samn­ingar skili raun­veru­legum kjara­bótum og bæti líf og kjör þeirra sem svo sann­ar­lega þurfa á því að halda. Það á að vera metn­að­ar­mál okkar allra að fólk fái vel greitt fyrir störf sín og að lífs­kjör batni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi