Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þróar sjóræningjaseríu í Hollywood

Hollywood-fram­leið­andi vill gera sjón­varps­þætti byggða á hand­riti eftir fjöl­miðla­kon­una Kristínu Evu Þór­halls­dóttur. Hand­ritið fjallar um her­skáan sjó­ræn­ingja sem á í úti­stöðum við franska aðal­inn á 14. öld.

Þróar sjóræningjaseríu í Hollywood
|

„Þetta er viss stað­fest­ing á því að hug­myndin sé góð og nátt­úr­lega hvatnig til að halda áfram,“ segir Kristín Eva glöð þegar hún er spurð að því hvernig til­finn­ing það sé að stór­fram­leið­and­inn Anders Tangen sem á meðal ann­ars að baki hina vin­sælu þætti Lil­lehammer og Nor­se­menn, hafi í hyggju að gera sjón­varps­s­eríu eftir hand­rit­inu The Lioness sem Kristín Eva skrifar í sam­vinnu við Margrethe Stang Lund.

Hand­ritið fjallar um kven­kyns­sjó­ræn­ingja sem á í úti­stöðum við franska aðal­inn á 14. öld og er inn­blásið af raun­veru­legum atburðum sem Kristín Eva las sér til um þegar hún var að gera þátt um sjó­ræn­ingja fyrir Leyni­fé­lagið á Rás 1. „Ég rakst á sögu kven­kyns­sjó­ræn­ingja að nafni Jeanne de Clisson sem sigldi með eigin skipa­flota um Ermar­sundið í Hundrað ára stríð­inu undir merkjum Ljónynj­unnar af Bretaníu og réðst grimmi­lega á skip Fil­ippusar VI. Frakk­lands­kon­ungs til að hefna eig­in­manns síns, Olivers, hátt­setts manns í Bretaníu sem kon­ung­ur­inn hafði látið drepa í póli­tískum til­gangi. Ég varð strax heilluð af þess­ari sögu þegar ég las hana og lang­aði að gera eitt­hvað við hana, en það var svo ekki fyrr en ég flutti með fjöl­skyld­unni til Los Angeles fyrir nokkrum árum og kynnt­ist þar Marg­ar­ethe að hjólin fóru að snú­ast.“

„Ég varð strax heilluð af þess­ari sögu þegar ég las hana og lang­aði að gera eitt­hvað við hana, en það var svo ekki fyrr en ég flutti með fjöl­skyld­unni til Los Angeles fyrir nokkrum árum og kynnt­ist þar Marg­ar­ethe að hjólin fóru að snú­ast.“
Ljónynjan af Bretaníu var sjó­ræn­ingi sem sigldi um Ermar­sundið í Hundrað ára stríð­inu og réðst þar á skip franska aðals­ins.

Kristín Eva sagði Marg­ar­ethe frá sög­unni og þær ákváðu að skrifa saman hand­rit upp úr henni, átta þátta seríu sem Kristín Eva segir hafa tekið tíma að vinna vegna þess hversu mikil heim­ilda­vinna liggi að baki verk­inu. „Í heilt ár gerðum við Marg­arehe lítið annað en að liggja í sagn­fræði­bókum svo að við hefðum góða hug­mynd um hvernig Frakk­land og England hefðu verið á 14. öld. Við vildum ekki byrja að skrifa fyrr en við þekktum vel sögu­sviðið og helstu leik­endur og þurftum að kynna okkur allt frá stórum sögu­legum atburðum til minnstu smá­at­riða í hvers­dags­lífi fólks til að draga upp raun­sæja mynd af þessum tíma.“

Hún segir að það hafi ekki síður verið áskorun að skrifa sögu aðal­sögu­hetj­unnar, Jeanne de Clisson, vegna þess hversu lítið er raun­veru­lega vitað um hana. „Það eru litlar sem engar heim­ildir til um Jeanne en þó nægar til að við Marg­ar­ethe gætum fyllt í eyð­urnar. Það má segja að það hafi gefið okkur visst list­rænt frelsi.“

Fram­leið­and­anum Tangen leist svo vel á hand­ritið að ekki er nóg með að hann langi til að gera þátta­seríu eftir því heldur hefur hann lofað það í hástert í erlendum fjöl­miðlum, meðal ann­ars fyrir hinn póli­tíska þátt sög­unnar sem hann segir vera skírskotun til sam­tím­ans og sterka per­sónu­sköpun sem hann þyk­ist viss um að muni laða þekkta leik­ar­ara að verk­efn­inu. En hvenær reiknar Kristín Eva eig­in­lega með að þætt­irnir fari í fram­leiðslu? „Það er enn langt í það,“ segir hún róleg. „Það getur tekið nokkur ár að koma svona stór­verk­efni á kopp­inn,“ bætir hún við til útskýr­ingar. „Þannig að þetta er enn allt á byrj­un­ar­stigi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi