Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Konur eins og amma vörðuðu leiðina“

Amma – Draumar í lit er heiti fyrstu bókar Hólm­fríðar Helgu Sig­urð­ar­dóttur um ævi ömmu hennar og nöfnu, Hólm­fríðar Sig­urð­ar­dóttur, kennslu­konu og skálds. Bókin segir sögu Hólm­fríðar frá barn­æsku á Rauf­ar­höfn til dags­ins í dag, þar sem hún býr í Kópavogi, orðin 88 ára gömul. Á yfir­borð­inu virð­ist þetta vera saga konu en er í raun saga heillar þjóðar, einkum kvenna sem syntu gegn straumnum. Mannlíf ræddi við nöfn­urnar tvær um til­drög verks­ins, sköp­un­ar­ferlið og sárs­auk­ann sem fylgir því að heim­sækja for­tíð­ina.

„Konur eins og amma vörðuðu leiðina“
|
Amma – Draumar í lit er ekki hefð­bundin ævi­saga, heldur kafar höf­und­ur­inn eftir minn­ingum og leikur sér að sjón­ar­hornum þar sem skipt­ast á fyrstu per­sónu-frá­sagnir, ann­ars vegar aðal­per­són­unnar, Hólm­fríðar Sig­urð­ar­dóttur, og hins vegar höf­und­ar­ins sjálfs, Hólm­fríðar Helgu Sig­urð­ar­dóttur.

„Ég var satt að segja alls ekki viss um að þessi saga ætti erindi við nokkurn annan en okkur ömmu,“ við­ur­kennir höf­und­ur­inn, hér eftir kölluð Fríða, fyrir blaða­manni þegar hún er spurð að því hvernig hug­myndin að verk­inu hafi kviknað. „Upp­haf­lega var sagan loka­verk­efni mitt í meist­ara­námi mínu í blaða­mennsku í Barcelona. Ég átti því hand­ritið, bæði á íslensku og spænsku, og vissi svo sem ekk­ert hvað ég ætti að gera við það. Svo lásu nokkrar góðar konur það og hvöttu mig til að gefa það út. Ingi­björg Dögg, annar rit­stjóri Stund­ar­innar, var ein þeirra og hún stakk upp á því að Stundin gæfi bók­ina bara út. Ég bar hug­mynd­ina undir ömmu og þegar hún gaf sitt sam­þykki sá ég ekki ástæðu til að hika meira.“

Hólm­fríður kinkar kolli. „Já, upp­haf­lega vildi hún nefni­lega bara fá sögu mína fyrir loka­verk­efnið sitt í háskól­anum, mér fannst það allt í lagi. En svo vatt hug­myndin upp á sig hjá henni,“ segir hún, glottir og bætir við að Fríða hafi nú þurft að ganga svo­lítið á eftir sér til að fá hana til að sam­þykkja að þetta yrði bók. „Mér fannst það svo fjarri lagi,“ segir hún. „Mér fannst ég ekki hafa neitt til brunns að bera, til þess að vera í bók.“

Þessu er Fríða algjör­lega ósam­mála. „Það voru konur eins og amma sem vörð­uðu leið­ina og sköp­uðu þau tæki­færi sem við konur í nútím­anum höfum, með því meðal ann­ars að brjóta upp hefð­irnar og ganga gegn því sem þær sjálfar höfðu alist upp við,“ bendir hún á. „Bara það, til dæmis, að amma fór tvisvar í viku í leik­fimi á kvöldin og skildi afa eftir með börnin á kvöld­mat­ar­tíma. Þær þóttu bein­línis upp­reisn­ar­gjarnar þessar konur sem tóku þátt í þeirri leik­fimi. Svona hlutir eru mik­il­vægir. Það gera fáir athuga­semd við það í dag ef konur taka sér tíma til að sinna lík­ama sínum en það var bara ekki sjálf­sagt fyrir ekki svo löngu síðan.“

„Það voru konur eins og amma sem vörð­uðu leið­ina og sköp­uðu þau tæki­færi sem við konur í nútím­anum höfum, með því meðal ann­ars að brjóta upp hefð­irnar og ganga gegn því sem þær sjálfar höfðu alist upp við .“

Hún segir að við ritun sög­unnar hafi hún því ekki aðeins lært ótal­margt nýtt um Hólm­fríði ömmu sína heldur hafi hún líka lært margt nýtt um konur almennt af hennar kyn­slóð. Öðrum þræði hafi hana langað til að segja þeirra sögu. „Mér þykir amma nefni­lega ein­stök en ég gerði mér líka svo vel grein fyrir því að hún er „venju­leg“, það er að segja að mjög margar konur eiga sam­bæri­lega reynslu að baki og hún. Þær hafa allar sem ein lifað magn­aða tíma og líf þeirra hefur tekið ótrú­legum stakka­skiptum,“ segir hún en játar að henni hafi vaxið það svo­lítið í augum að fjalla um sam­fé­lagið og allar breyt­ing­arnar á því í gegnum ára­tug­ina. Hún var ekki viss um að sér tæk­ist að gera því nógu góð skil.

Reyndi ekki að fegra sjálfa sig
Í bók­inni er líka fjallað um ýmsa átak­an­lega atburði, ást­vina­missi og atvik sem setja skugga á líf fjöl­skyld­unar. Fannst þér þá ekk­ert erfitt að biðja ömmu þína um að rifja upp þessi mál? „Nei, veistu, mér fannst þetta ekki erfitt ferli heldur fyrst og fremst mjög gef­andi. Ég spurði hana út í alls konar hluti, til dæmis ást­ina, dauð­ann og sorg­ina, og hún svar­aði hreint út. Hún reyndi ekki að fegra sjálfa sig, leyna hlutum eða tala undir rós og það kunni ég svo vel að meta. Auðvitað þóttu mér sum svörin erfið og sumar sög­urnar afar sorg­legar enda hefur amma gengið í gegnum ýmis­legt. En ég er vön því sem blaða­maður að spyrja fólk nær­göng­ulla spurn­inga þegar þörf er á, svo það vefst svo sem ekki fyrir mér. En svo var það líka þannig með okkur ömmu báðar, að þegar við vorum búnar að ákveða að fara út í þetta verk­efni tókum við það alla leið,“ segir hún og Hólm­fríður amma hennar sam­sinnir því.

En þetta er kannski ekki bara ykkar saga, eða hvað, því þarna er mikið fjallað um fjöl­skyld­una. Til dæmis afa þinn, Fríða, Grím M. Helgason, og pabba þinn og systk­ini hans, þar á meðal Vigdísi, sem er einn ástæl­asti rit­höf­undur þjóð­ar­innar. Hvernig brugð­ust ykkar nán­ustu við bók­inni? „Ég lít reyndar ekki svo á að þetta sé saga fjöl­skyldu okkar, nema að mjög tak­mörk­uðu leyti. Þetta er fyrst og fremst saga ömmu – eða bara brot af hennar sögu,“ tekur Fríða fram. „Ég gerði ekki til­raun til að segja sögur barn­anna, því mér fannst þær ekki eiga heima í þess­ari bók. Annars hafa flestir tekið upp­á­tæk­inu vel, þó að það hafi komið sumum á óvart,“ bætir hún við.

„ Ég spurði hana út í alls konar hluti, til dæmis ást­ina, dauð­ann og sorg­ina, og hún svar­aði hreint út. Hún reyndi ekki að fegra sjálfa sig, leyna hlutum eða tala undir rós og það kunni ég svo vel að meta. “

En talandi um Vigdísi, þá kem­urðu inn á kyn­ferð­is­of­beldi sem hún verður fyrir og hefur fjallað um í bók sinni Dísusögu. Finnst þér hægt að segja að þessar tvær sögur kall­ist á? Fríða hallar undir flatt. „Þú segir nokkuð, ég hafði ekki einu sinni hugsað út í það. Vigdís frænka mín hefur skrifað tvær stór­kost­legar en gjör­ó­líkar bækur sem byggja á hennar minn­ingum, Minn­inga­bók og Dísusögu. Mín bók kall­ast örugg­lega á við þær báðar að ein­hverju leyti, þó að það hafi ekki verið með­vitað og ég myndi aldrei voga mér að bera mín skrif saman við hennar. En ég er undir áhrifum Vigdísar, hún er ein af þessum mögn­uðu kven­fyr­ir­myndum sem ég er svo heppin að geta litið upp til.“

Lítur fyrst og fremst á sig sem blaða­mann
Sagan sem vafi lék á að yrði að ein­hverju meira en skóla­verk­efni er því komin út á prenti. Og við­tök­urnar betri en nöfn­urnar gat órað fyrir. Hvernig finnst Hólm­fríði að saga hennar skuli vera orðin að almenn­ings­eign? „Já, ég hef aldrei litið svo­leiðis á málið og hugsa í raun ekk­ert voða­lega mikið um það, enda bý ég hérna uppi í fjöll­unum og það koma ekk­ert voða­lega margir hingað til mín,“ segir hún. „En það hringja hins vegar margir og óska mér til ham­ingju með bók­ina. Þá tala ég minnst um mig og meira um það hvað Fríða er góður penni.“

Talandi um það, hvernig er að stíga fram á sjón­ar­sviðið sem rit­höf­undur eftir að hafa starfað sem blaða­maður um ára­bil, spyr blaða­maður og lítur á Fríðu. „Ég er mjög feimin við þetta orð, rit­höf­undur,“ svarar hún og fer svo­lítið hjá sér. „Vinkona mín sagði við mig um dag­inn: Þú skrif­aðir bók og það er búið að gefa hana út. Þá ertu rit­höf­undur, sama hvort þér líkar það betur eða verr.

Ég er nú samt ekki viss um að ég sé sam­mála því. Ég lít fyrst og fremst á mig sem blaða­mann og það breyt­ist ekki þótt ég hafi skrifað þessa bók.“
En stendur til að skrifa fleiri sögur? „Já, alveg örugg­lega. Ég á ýmis sögu­brot í dag­bókum og á blað­snifsum ofan í nátt­borðs­skúff­unni. En hvort þær verði bara þar áfram eða komi ein­hvern tím­ann út hef ég ekki hug­mynd um. En það er alla vega gaman að eiga þessa einu bók útgefna, hvað sem síðar verður.“

Aðalmynd / Heiða Helga­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi