Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Átján mánaða barátta við kerfið

Harald Schaller hefur búið á Íslandi í ell­efu ár, stund­aði háskóla­nám hér og lítur á sig sem Íslend­ing þótt hann sé ekki inn­fæddur. Hann kom hingað upp­haf­lega sem skiptinemi og lík­aði svo vel að hann ákvað að koma aftur og setj­ast hér að. Hann lauk háskóla­námi í iðn­verk­fræði í heima­landi sínu Þýska­landi en þegar hann hugð­ist nýta þá menntun á Íslandi kom babb í bát­inn.

Átján mánaða barátta við kerfið
||
Harald Schaller lauk háskóla­námi í iðn­verk­fræði í heima­landi sínu, Þýska­landi, en þegar hann hugð­ist nýta þá menntun á Íslandi kom babb í bát­inn.

Verk­fræð­inga­fé­lag Íslands neit­aði að stað­festa gráðu hans í iðn­verk­fræð­inni og eftir að hafa reynt að hefja fram­halds­nám í sinni grein við Háskóla Íslands söðl­aði hann um og hóf að nema umhverfis- og auð­linda­fræði og síðar landa­fræði. Hann starfar í dag sem verk­efna­stjóri í Þjóð­garð­inum á Þing­völlum og unir glaður við sitt, en hann segir bar­átt­una við að fá menntun sína metna á Íslandi hafa tekið mikið á sig.

„Ég ætl­aði upp­haf­lega bara að vera hálft ár sem skiptinemi á Íslandi en mér lík­aði svo vel hér að ég ákvað að fram­lengja dvöl­ina og var hér í heilt ár,“ segir Harald spurður um ástæðu þess að hann sett­ist að á Íslandi. „Svo fór ég aftur heim til Þýska­lands og lauk háskóla­nám­inu í iðn­verk­fræði þar. Eftir að nám­inu lauk átt­aði ég mig á að mig lang­aði til að læra meira og kom aftur til Íslands til að hefja fram­halds­nám í iðn­verk­fræði við Háskóla Íslands.“

Mátti kalla sig tækni­fræð­ing
Sú áætlun fór þó ekki alveg eins og Harald hafði hugsað sér og lend­ingin varð sú að hann skipti um náms­braut og hóf nám í umhverfis- og auð­linda­fræðum. Hvernig stóð á því?

„Áður en ég gat hafið fram­halds­nám í iðn­verk­fræði setti Háskóli Íslands það skil­yrði að ég lyki tveimur kúrsum í stærð­fræði, sem voru kenndir á íslensku. Þeir áttu líka í erf­ið­leikum með að finna leið­bein­anda fyrir mig og á end­anum varð þetta bara of flókið svo ég skipti yfir í umhverfis- og auð­linda­fræð­ina sem síðar leiddi mig yfir í landa­fræð­ina.“

Í fram­haldi af nám­inu starf­aði Harald að rann­sóknum sem tengd­ust ferða­mennsku og landa­fræði fyrir HÍ. Hann segir hlæj­andi að þetta hafi verið löng og flókin leið, þrettán ára háskóla­nám en hann lauk M.Sc-gráðu í landa­fræði vorið 2016 og fór síðan að velta fyrir sér mögu­leikum sínum á starfi við sitt hæfi. Hann hafði með fram nám­inu unnið við alls kyns störf tengd ferða­manna­iðn­að­inum, á hót­elum, börum, upp­lýs­inga­mið­stöð fyrir ferða­menn og sem leið­sögu­maður en hann seg­ist fljótt hafa áttað sig á því að til þess að geta unnið vinnu við sitt hæfi á Íslandi yrði hann að læra íslensku betur.

„Ég vildi ekki fest­ast í ferða­manna­iðn­að­inum svo ég reyndi að fá gráðuna mína í iðn­verk­fræð­inni stað­festa af íslenskum yfir­völdum svo ég mætti kalla mig iðn­verk­fræð­ing og gæti unnið sem slíkur hér á landi. Það var þá sem vand­ræðin byrj­uðu.“

„Ég vildi ekki fest­ast í ferða­manna­iðn­að­inum svo ég reyndi að fá gráðuna mína í iðn­verk­fræð­inni stað­festa af íslenskum yfir­völdum svo ég mætti kalla mig iðn­verk­fræð­ing og gæti unnið sem slíkur hér á landi. Það var þá sem vand­ræðin byrj­uðu. Það ferli tók eitt og hálft ár, þrátt fyrir að ég hefði stað­fest­ingu á gráðunni frá háskól­anum mínum í Þýska­landi. Umsóknin fór til ráðu­neyt­is­ins sem síðan bað Verk­fræð­inga­fé­lag Íslands um álit. Þeir úrskurð­uðu að ég mætti ekki kalla mig iðn­verk­fræð­ing en ég mætti segj­ast vera með BS-gráðu í tækni­fræði. Það tók mig sem sagt átján mán­uði af rök­ræðum við Verk­fræð­inga­fé­lagið að fá þessa nið­ur­stöðu þrátt fyrir samn­inga á milli Evr­ópu­sam­bands­ins og Íslands um að nám mitt í Þýska­landi jafn­gildi BS-gráðu í iðn­verk­fræði og einu ári af námi á masters-stigi í grein­inni að auki. Það voru mikil von­brigði að fá það ekki við­ur­kennt hér og á end­anum gafst ég bara upp á þessu ströggli og sætti mig við að ég gæti aldrei unnið sem iðn­verk­fræð­ingur á Íslandi.“

For­rétt­indi að vera frá Mið-Evrópu
Eftir þessa bar­áttu fór Harald að leita sér að starfi við eitt­hvað sem tengd­ist námi hans í umhverfis- og auð­linda­fræð­inni og hann segir það hafa verið sitt lán að rekast á aug­lýs­ingu um starf sem land­vörður í þjóð­garð­inum á Þing­völlum. Hann fékk starfið og vann sig síðan upp í það að verða verk­efna­stjóri í þjóð­garð­inum þar sem hann vinnur í dag. Spurður hvort það sé ekki dálítið ótengt því sem hann mennt­aði sig til við­ur­kennir hann að það sé auð­vitað ekki það sem hann hafi hugsað sér þegar hann hóf námið en hann hafi ákveðið að setja það ekki fyrir sig og telji sig í dag hafa dottið í lukku­pott­inn við það að fá þetta starf. Þetta ferli hafi sýnt honum fram á að það sem sagt er um að þegar einar dyr lok­ist opn­ist aðrar sé satt.

Aðspurður hvað valdi því að hann hafi ákveðið að gera Ísland að heima­landi sínu þrátt fyrir von­brigðin sem úrskurður Verk­fræð­inga­fé­lags­ins olli honum svarar Harald að það sé svo sem ekk­ert ein­falt svar við þeirri spurn­ingu.

„Þegar ég kom hingað fékk ég þá til­finn­ingu að hér gæti ég látið hvað sem væri ger­ast,“ segir hann. „Heima í Þýska­landi fannst mér stundum að alls konar reglu­gerðir og stíf lag­skipt­ing sam­fé­lags­ins stæði manni fyrir þrifum. Hér eru allir mögu­leikar opnir og maður kemst ótrú­lega fljótt inn í hugs­un­ar­hátt­inn „þetta redd­ast“. Og þótt það sé reyndar ekki góð stefna fyrir stjórn­völd til að stjórna land­inu þá gefur hún ein­stak­lingum ótrú­legt frelsi til að fara alls konar króka­leiðir í líf­inu. Það hentar mér vel.“

Harald er 39 ára gam­all og þótt hann sé sam­kyn­hneigður til­heyrir hann samt meng­inu „hvítur mið­aldra karl­maður“ sem hann við­ur­kennir fús­lega að gefi honum for­skot fram yfir ýmsa aðra útlend­inga sem vilja lifa og starfa á Íslandi. Það sé líka ákveðin virð­ing borin fyrir fólki frá Mið-Evrópu og hann hafi því ekki upp­lifað for­dóma fyrir útlend­ingum á eigin skinni.

„Ég geri mér grein fyrir því að þótt ég til­heyri minn­hluta­hópi sem sam­kyn­hneigður karl­maður nýt ég samt for­rétt­inda hér,“ segir hann. „Ég hef alveg orðið var við for­dóma fyrir öðrum útlend­ingum og ég held að það þurfi virki­lega að fara að taka á þeim málum. Það gengur ekki í nútíma­sam­fé­lagi að fólk sé for­dæmt út frá húð­lit eða upp­runa.“

Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi