Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Allar hundrað ferðirnar upp Esjuna voru skemmtilegar

Utan­vegs­hlaupar­inn Hafdís Guðrún Hilm­ars­dóttir setti sér metn­að­ar­fullt mark­mið í mars því hún ætl­aði að hlaupa  Esjuna 100 sinnum á þessu ári. Um sein­ustu helgi náði hún mark­mið­inu og fór í hund­rað­asta sinn á þessu ári upp að Steini á Esjunni.

Hug­myndin um að fara 100 ferðir upp Esjuna á þessu ári kom til Hafdísar Guðrúnar Hilm­ars­dóttur þegar hún fór á Esjuna í annað sinn á þessu ári, þann 6. mars, í glamp­andi sól og snjó. „Það var svo rosa­leg gott veður, sól og snjór. Þá datt mér þetta snjall­ræði í hug,“ segir Hafdís glöð í bragði. Hún deildi hug­mynd­inni með vinum á vanda­mönnum á Facebook. „Þegar ég setti þetta á Facebook þá var ekki aftur snúið.“

Spurð út í hvernig fólki í kringum hana hafi lit­ist á mark­miðið í upp­hafi segir Hafdís flesta hafa verið jákvæða fyrir því. „Sumum fannst þetta kannski frekar ein­hæft og voru með áhyggjur af því að ég yrði leið á þessu. Aðrir voru hræddir um að ég myndi ekki ná þessu, að ég yrði bara hlaup­andi upp á Esjuna á jól­unum,“ segir Hafdís kímin. „En ann­ars voru flestir bara spenntir. Nokkrir vinnu­fé­lagar fylgd­ust t.d. með og komu svo með í fimm­tug­ustu ferð­ina í lok maí.“

Hafdís segir ævin­týrið hafa byrjað þegar hún skráði sig í 100 kíló­metra hlaup í Frakk­landi sem fór fram 25. ágúst. Hún skráði sig í byrjun febr­úar og hugs­aði með sér að Esju­ferðir væri góður und­ir­bún­ingur.

Hafdís er menntuð kenn­ari en starfar sem verk­efna­stjóri hjá Mennta­mála­stofnun ásamt því að vera í dokt­ors­námi. Spurð út í hvenær hún hafi fundið tíma til að fara allar þessar Esju­ferðir svarar Hafdís: „Ég fór ýmist fyrir eða eftir vinnu eða þá um helgar. Ég held að ég hafi farið á Esjuna á öllum viku­dög­unum.“

Aðspurð hvort hún hafi ein­hvern tím­ann séð eftir að hafa sett sér svona metn­að­ar­fullt mark­mið svarar Hafdís neit­andi. „Nei, ég sá aldrei eftir þessu. Þetta var alltaf skemmti­legt. Þetta var oft erfitt veð­urs­ins vegna en alltaf skemmti­legt,“ útskýrir Hafdís sem ætl­aði svo að fara beint á Esjuna eftir að blaða­maður náði tali af henni. Hún er því hvergi nærri hætt að hlaupa Esjuna þrátt fyrir að mark­mið­inu hafi verið náð.

Hafdís fann mik­inn mun á lík­am­legu formi þegar líða tók á árið. „Já, ég var farin að fara hraðar og hraðar upp og niður. Ég fór hrað­ast upp að Steini á 34 mín­útum, hrað­asta ferðin upp og niður var 53 mín­útur. Hraðasta ferðin niður var svo 14,59 mín­útur, það var hund­rað­asta ferðin og það er hrað­asta skráða ferð sem kona hefur farið sam­kvæmt Strava.“

Hafdís fór ýmist ein eða með félags­skap góðra vina í Esju­ferð­irnar en hún náði að fá um 50 manns með sér í hund­ruð­ustu ferð­ina. Hún kveðst vera með mikið keppn­is­skap og það hafi örugg­lega verið til þess að hún fór ansi hratt niður fjallið í hund­ruð­ustu ferð­inni og sló met í leið­inni. „Það voru þrír sterkir karl­menn sem hlupu með mér niður í hund­ruð­ustu ferð­inni. Það er ekki oft sem ég hef ein­hvern með mér á leið­inni niður og það hjálp­aði örugg­lega við að ná góðum tíma,“ segir Hafdís.

Hafdís hefur mjög gaman af því að hlaupa fjöll og hefur stundað það af kappi síð­ustu fimm ár. Á döf­inni er svo að finna stórt hlaup erlendis til að taka þátt í. „Und­an­farið hefur áhugi minn auk­ist mikið á að taka þátt í 100 mílna hlaupi ein­hvers staðar úti, þannig að ég er að skoða það núna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi