Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hringlandaháttur við Hringbraut

Hringlandaháttur við Hringbraut
Sjúkra­hótel land­spít­al­inn hring­braut

Upp­haf­lega átti Nýi Land­spít­al­inn (NLSH ohf.) að fá sjúkra­hót­elið afhent full­búið á vor­mán­uðum 2017 en fyrsta skóflustungan var tekin árið 2015. Síðan hefur verk­lokum ítrekað verið seinkað. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs stóð til að afhenda húsið 15. sept­em­ber sl. en það hefur ekki gengið eftir.

Ein helsta ástæða taf­anna er sú að stein­klæðn­ing sem nú er komin utan á húsið hefur verið flókn­ari og tíma­frek­ari í útfærslu en fyrstu áætl­anir gerðu ráð fyrir. Stein­klæðn­ingin sem er úr graníti og basalti er sömu­leiðis list­skreyt­ing húss­ins og er hún hönnuð af Finnboga Pét­urs­syni mynd­list­ar­manni. Þrátt fyrir þessar tafir er frá­gangi að innan löngu lokið. Munck Íslandi er aðal­verk­taki fram­kvæmd­anna en Jón Björns­son, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, vildi ekki tjá sig um málið.

Ágreiningur um ábyrgð

Gunnar Svav­ars­son, fram­kvæmda­stjóri NLSH ohf., segir í skrif­legu svari að vel­ferð­ar­ráðu­neytið geri ráð fyrir að hót­elið hefji starf­semi fljót­lega eftir að bygg­ingu þess er lokið. „Alþingi úthlutar fjár­veit­ingum til rekst­urs rík­is­stofn­ana ár hvert með fjár­lögum. Rekstur árs­ins 2019 fellur því á afgreiðslu fjár­laga 2019 sem nú eru til með­ferðar á Alþingi,“ segir hann.

Aðspurður hver beri ábyrgð á tjóni vegna taf­anna segir Gunnar að NLSH og verk­tak­ann greini á um það. „Í samn­ingum milli aðila koma fram tafa­bætur upp á 300.000 kr. pr. dag pr. verk­hluta en verk­hlut­arnir eru þrír. Verk­kaupi hefur þegar greint frá því að samn­ings­gildi tafa­bóta sé óbreytt. Þar sem verk­inu er ekki lokið og fulln­að­ar­upp­gjör ekki farið fram hafa verk­kaupi og verk­taki ekki lagt fram loka­kröfur sínar. Hvorki verk­taki né verk­kaupi hafa því lýst yfir ábyrgð á tjóni sem orðið hefur vegna tafa, enda ekki venja í verkum sem standa yfir. NLSH hefur komið því á fram­færi við verk­taka að kraf­ist verði tafa­bóta fyrir þær tafir sem eru á ábyrgð verk­tak­ans,“ segir Gunnar en tekur fram að verk­taki hafi gert sams­konar kröfur vegna tafa og að aðilar hafi verið í við­ræðum um hvernig leysa megi ágrein­ing­inn. Þá sé ekki tíma­bært að verk­kaupi sé með yfir­lýs­ingar um hvaða aðgerðir séu mögu­legar. „Þeir sem hafa hins vegar orðið fyrir mestum skaða eru þeir gestir sem áttu að gista í hús­inu, sjúk­lingar og aðstand­endur. Það er óbeinn skaði sem erfitt er að meta í krónum.“

Íhuga málsókn

Birgir Þór­ar­ins­son, full­trúi Mið­flokks­ins í fjár­laga­nefnd, sagði í sam­tali við Mannlíf að á fundi nefnd­ar­innar með full­trúum vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins nýverið; hafi verið full­yrt að umfram­kostn­aður vegna bygg­ing­ar­innar myndi ekki falla á rík­is­sjóð. „Hins vegar hafa orðið tafir á því að bygg­ingin verði tekin í notkun og það er að sjálf­sögðu tjón fyrir ríkið,“ segir hann og bætti við að komið hafi til tals á fund­inum að fara í mál við verk­tak­ann vegna þess.

Þetta stað­festir Willum Þór Þórsson, for­maður fjár­laga­nefndar. „Ekki hefur við­bótar-útlagður kostn­aður fallið til og ráðu­neytið telur að eng­inn við­bót­ar­kostn­aður muni falla á rík­is­sjóð. Hins vegar á eftir að reikna og útkljá tafa­kostnað, sem vissu­lega gæti endað sem dóms­mál,“ segir Willum í skrif­legu svari til Mannlífs.

Ekki fékk stað­fest áður en blaðið fór í prentun hvort rekstur sjúkra­hót­els­ins hefj­ist á þessu ári eða ekki.

Miðað við þriggja stjörnu hótel

Mannlíf hefur heim­ildir fyrir því að á meðal starfs­manna Land­spít­ala gæti nokk­urrar kergju vegna „óþarfa íburðar“ við nýja sjúkra­hót­elið, á sama tíma og rekstur spít­al­ans sé skor­inn við nögl. Þannig séu inn­rétt­ingar, hús­gögn og raf­tæki sem keypt hafa verið í háum verð­flokki. Þá er gagn­rýnt að ekki hafi verið samnýtt útboð með Land­spít­al­anum til að ná fram hag­stæð­ara verði. Gunnar svarar því til að NLSH ofh. hafi ekki heim­ildir til að nýta samn­inga við þriðja aðila. Hægt sé að nýta ramma­samn­inga séu þeir fyrir hendi en engir slíkir hafi verið fyrir hendi við inn­kaup bún­aðar í sjúkra­hót­elið. Þá stað­festir Gunnar að keypt hafi verið svokölluð hót­el­sjón­vörp sem eru tækni­lega frá­brugðin hefð­bundnum heim­il­is­sjón­varps­tækjum. Þessum tækjum sé ætlað að vera í notkun í mörg ár og þau þurfi að vera til­búin til að mæta vænt­an­legum fram­förum í útsend­ingu sjón­varps. „Öll hönnun tekur mið af sam­bæri­legum verk­efnum á Norð­ur­lönd­unum og hót­elum almennt hér á landi, en hót­elið er flokkað sem almennt þriggja stjörnu hótel á mark­aði þótt um sé að ræða sér­hæf­ingu í nokkrum her­bergjum,“ segir Gunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi