Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Auðmönnum blöskrar verðlagið á Íslandi

Auðmönnum blöskrar verðlagið á Íslandi
|||||
Verð­mætir fyrir hag­kerfið Ætla má að ferða­menn sem fari í lúx­us­ferðir hafi lagt a.m.k. 10-12 millj­arða til efna­hags­lífs­ins hér í fyrra. Þetta kom fram í sam­tali Ninnu Haf­liða­dóttur, mark­aðs­stjóra Iceland lux­ury, við Við­skipta­Mogg­ann í apríl. Ninna sagð­ist telja að 10-12 þús­und slíkir ferða­menn hafi komið til lands­ins í fyrra. Að með­al­tali eyði þeir um einni milljón króna í fimm daga ferð til Íslands. Til sam­an­burðar eyði venju­legur ferða­maður um 240 þús­undum í sjö daga ferð. Lúx­us­ferðir gætu skilað tugum millj­arða og við­skipta­vin­irnir því verð­mætir fyrir hag­kerfið.

Þótt Samdráttur hafi orðið í ferðaþjónustu hér á landi milli ára segja ferðaþjónustufyrirtæki og aðilar sem sérhæfa sig í ýmis konar sérferðum að ekki hafi dregið úr eftirspurn eftir svokölluðum lúxusferðum. Þvert á móti. Sumum viðskiptavinunum blöskri hins vegar hátt verðlag á Íslandi.

„Það hefur eng­inn sam­dráttur orðið í dýr­ari ferðum. Ég finn ekki fyrir því. Ef eitt­hvað er þá er meira að gera hjá mér núna heldur en í fyrra,“ segir Teitur Úlf­ars­son sem hefur starfað sem leið­sögu­maður á Íslandi und­an­farin þrjú ár og er hjá einu þeirra fyr­ir­tækja sem býður m.a. upp á sér­sniðnar ferðir fyrir efn­aða við­skipta­vini.

Þau lúx­us­ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem Mannlíf ræddi við eru á einu máli um þetta. Ekkert lát sé á aðsókn í slíkar ferðir. Að sögn fyr­ir­tækj­anna koma flestir við­skipta­vin­anna frá Banda­ríkj­unum, sumir frá Asíu og Evrópu og í sumar þegar WOW air bauð upp á áætl­un­ar­flug til Tel Aviv var þónokkuð um Ísraela líka. Stundum sé þetta fólk sem kemur aftur eftir að hafa átt hér stutt stopp og er ýmist um að ræða fjöl­skyldur, vina­hópa, aðila í við­skipta­er­indum eða stór­stjörnur sem eru reiðu­búnar að greiða háar fjár­upp­hæðir fyrir góða þjón­ustu. Kröf­urnar séu þ.a.l. miklar. Fólk sætti sig ekki við hvað sem er þegar kemur að mat og þjón­ustu. Líki því t.d. ekki gisti­staður heimti það umsvifa­laust gist­ingu ann­ars staðar.

Með skakka mynd af Íslandi Ferða­þjón­ustu­að­il­arnir sem Mannlíf ræddi við segja að ferða­menn sem koma hingað séu ansi mis­vel upp­lýstir um land og þjóð. Sumir séu ágæt­lega að sér. Aðrir ekki. „Ég hef verið spurð alls kyns asna­legra spurn­inga. Eins og hvort við búum í snjó­húsum og hvernig við ferð­umst um á vet­urna. Hvort við förum á milli húsa á snjó­sleðum,“ segir ein sem vill ekki láta nafns síns getið. Annar nefnir að fáviska sumra geti hrein­lega verið hættu­leg. Eins og þegar fólk sem er vant göngu­leiðum á stígum heima hjá sér ætli að rjúka á fjöll. „Fólk ætlar stundum að fara upp á jökul á striga­skóm. Þá þarf maður að grípa inn í og stoppa það.“

Þegar spurt er hvað dragi þessa ferða­menn helst til land­ins er svarið ávallt það sama: íslensk nátt­úra. Fjöl­sóttir staðir eins og Gullfoss og Geysir séu þó ekki efstir á óska­lista því fólkið vilji njóta næðis, oft með sínum nán­ustu. Sem dæmi kaupi sumir „upp öll slottin í skoð­un­ar­ferðum þar sem þeir vilja vera prí­vat með fjöl­skyldum eða vinum,“ eins og einn við­mæl­andi Mannlífs orðar það. Jafnvel þótt borgað sé tals­vert meira fyrir þjón­ust­una.

Láta ekki bjóða sér hvað sem er Að sögn við­mæl­enda Mannlífs eru umræddir ferða­menn flestir kröfu­harðir en sann­gjarnir, eðli­lega þar sem margir greiði háar fjár­upp­hæðir fyrir þjón­ust­una. Sumir geri þó veður út af minnsta hlut og láti jafn­vel eins og frekir krakkar fái þeir ekki allar óskir sínar upp­fylltar. Sum vanda­mál sem koma upp séu hrein­ræktuð lúx­us­vanda­mál. „Eins og þegar við­kom­andi finnst her­bergið sitt snúa í ranga hátt, að auka­vask vanti á bað­her­berg­inu eða bað­her­bergin ekki vera nógu mörg,” segir einn.

Ofbýður verð­lag á mat
Við­mæl­endur Mannlífs segja flesta ferða­menn­ina fara héðan sáttir enda sé kapp­kostað að gera dvöl þeirra sem ánægju­leg­asta. Ýmsir hafa þó orðið varir við breytta kaup­hegðun hjá við­skipta­vinum sínum. Fólk sé t.d. farið að bóka styttri ferðir en áður. „Það fer frekar í dags­ferðir og því verða sum land­svæði svo­lítið útundan,“ segir Teitur Þor­kels­son hjá Iceland Unlpug­ged. „Í sumar tók maður t.d. eftir því að færri fóru austur fyrir Jök­ulsár­lón og austur fyrir Húsavík. Jafnvel bara nokkrar hræður á geggj­uðum stað eins og Ásbyrgi. Það styttir kannski upp­haf­lega áætlun um 5 eða 7 daga ferð um 1-3 daga þegar það sér kostn­að­inn. Hann hefur nátt­úr­lega auk­ist vegna styrk­ingar krón­unnar.“

Koma með eigin kokka Meiri­hluti við­skipta­vina er ánægður með íslenska matseld og mörgum kemur hrein­lega á óvart hvað hún er góð, segja við­mæl­endur. Þó séu alltaf ein­hverjir með sér­þarfir þegar kemur að mat. Hótelin séu yfir­leitt reiðu­búin að koma til móts við þessar þarfir en veit­inga­staðir geti átt erf­ið­ara með það. „Svo hafa sumir engan áhuga á að bragða á inn­lendri matseld og koma þá með eigin mat­reiðslu­menn til lands­ins. Ég veit um fólk sem hefur jafn­vel burð­ast hingað með ferða­töskur fullar af hrá­efni, sann­fært um að hér væri allt óætt.”

Þá segja ferða­þjón­ustu­að­ilar að sumum blöskri hátt verð­lag, einkum á mat. „Kúnnar sem hafa komið hingað áður tala um hvað verðið hefur hækkað mikið á fáum árum,“ segir Teitur Úlf­ars­son. „Banda­ríkja­maður missti and­litið þegar hann sá ham­borg­ara seldan á 4.900 krónur á hót­eli á Suð­aust­ur­landi. Honum datt ekki í hug að borga það. Ég veit líka um hjón sem borð­uðu frekar sam­lokur á her­berg­inu sínu en að snæða á veit­inga­stað hót­els­ins sem þau dvöldu á. Þeim ofbauð svo verð­lagið á matnum. Því enda þótt fólk sé vel stætt þá hvarflar ekki að því að eyða pen­ing­unum í vit­leysu.“

Milljón í þjórfé Nokkuð mis­jafnt er hvort við­skipta­vinir gefi þjórfé eða ekki, að sögn við­mæl­enda Mannlífs. „Sumir tipsa ekk­ert þótt þeir eigi nóg af fé,“ segir einn. Aðrir gera það ekki af því að þeir hafa lesið að slíkt tíðk­ist ekki á Íslandi. Gefi við­kom­andi þjórfé þá er algeng­asta upp­hæðin á bil­inu 30-60 þús­und, allt upp í 100 þús­und krónur, eftir því sem Mannlíf kemst næst. Sumir eru örlát­ari. „Ég veit t.d. um einn leið­sögu­mann sem fór með banda­rískan liðs­for­ingja á eft­ir­launum hring­inn í kringum landið í fyrra, hann fékk milljón í þjórfé.“

Óttast gull­graf­aræði
Sumir sem Mannlíf ræddi við ótt­ast hins vegar að þessi almenna ánægja ferða­mann­anna með dvöl­ina muni ekki vara lengi, m.a. þar sem sífellt fleiri aðilar séu nú farnir að bjóða upp á lúx­us­ferðir og því miður stand­ist þjón­ustan ekki alltaf þær gæða­kröfur sem við­skipta­vin­irnir geri. Það sé að grípa um sig hálf­gert gull­graf­aræði, svipað og í hinni almennu ferða­þjón­ustu á Íslandi. Sumir fari of geyst í von um skjót­feng­inn gróða. Með sama áfram­haldi sé hætta á að sam­dráttur verði í þessum kima ferða­þjón­ust­unnar líka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi