Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Lygin er alvarlegur hlutur“

Þann 11. febr­úar 2004 fann kaf­ar­inn Þorgeir Jónsson lík á botn­inum við bryggj­una í Nes­kaup­stað fyrir hreina til­viljun. Lík­fund­ur­inn varð fljót­lega að einu umfangs­mesta saka­máli hér­lendis og leiddi til dóma yfir þremur mönnum. Bíómynd sem byggð er á þessum atburðum verður frum­sýnd í næstu viku.

„Lygin er alvarlegur hlutur“
|||||

„Nokkrum dögum fyrr hafði skip sem lá við bryggj­una losnað frá, skollið illa í horn hennar og hugs­an­lega brotið stólpa. Gísli Sig­ur­bergur Gíslason, hafn­ar­stjóri í Nes­kaup­stað, bað mig um að líta á skemmd­irnar þegar ég hefði tíma,“ segir Þorgeir þegar hann rifjar þennan atburð upp – ekki í fyrsta skipti og ekki í annað skipti. Hann er yfir­veg­aður í fasi og gerir ekki mikið úr sínum hluta máls­ins þrátt fyrir að hér sé um að ræða upp­hafið á einu stærsta saka­máli Íslands­sög­unnar. Þótt erfitt sé að full­yrða nokkuð er ólík­legt að mað­ur­inn hefði nokkru sinni fund­ist ef Þorgeir hefði ekki verið beð­inn um að kafa við bryggj­una á þessum tíma. Við­gerðir á bryggj­unni voru ekki áætl­aðar fyrr en seinna á árinu, jafn­vel ekki fyrr en á því næsta.

„Veðrið var gott þennan morgun, ég var í fríi og ákvað að drífa þetta af. Ég mætti með bún­að­inn á neta­gerð­ar­bryggj­una þar sem ég hitti Gísla við annan mann og þeir sýndu mér hvað þurfti að skoða. Ég fór út í sjó­inn og beint að horn­inu sem hafði orðið fyrir tjóni og mynd­aði skemmd­irnar. Að því loknu báðu þeir mig um að sækja nokkur dekk sem höfðu slitnað frá bryggj­unni og lágu á botn­inum aðeins utar. Ég festi spotta í dekkin og synti svo til baka eftir botn­inum að bryggj­unni. Þá kom ég auga á líkið. Það lá á botn­inum alveg upp við bryggj­una og ég sá strax að þetta var mann­eskja, vel inn­pökkuð í plast og þyngd með keðjum. Mér brá virki­lega við þessa sýn skoð­aði aðstæður lít­il­lega en fór svo upp til að láta vita og biðja um að hringt yrði á lög­regl­una. Ég kaf­aði síðan niður aftur til að taka myndir og kom með þær upp um svipað leyti og lög­reglan mætti á svæðið. Þetta var mjög óraun­veru­legt og það lá við að lög­reglu­menn­irnir tryðu mér ekki fyrr en ég sýndi þeim mynd­irnar,“ segir Þorgeir.

Þorgeir gerði sér strax grein fyrir að það var mann­eskja sem hann sá á botn­inum við bryggj­una, vel inn­pökkuð í plast og þyngd með keðjum.

Hann fór síðan aftur niður að beiðni lög­regl­unnar til að taka fleiri myndir og var síðan beð­inn um að losa líkið og koma því upp á yfir­borðið. Fleiri lög­reglu­menn bar fljótt að garði, sjúkra­bíl og lækni auk þess sem fólk frá rann­sókn­ar­lög­regl­unni lagði strax af stað úr höf­uð­borg­inni.

„Ég var sá eini sem fór niður og sá aðstæður með berum augum og það hefur senni­lega liðið um það bil klukku­stund frá því að ég fann líkið þar til það var komið upp á bryggj­una. Ég sá hins vegar aldrei í and­lit manns­ins og hafði því ekki hug­mynd um hvort þetta væri ein­hver sem ég jafn­vel þekkti héðan úr bænum.“

„Þetta var mjög óraun­veru­legt og það lá við að lög­reglu­menn­irnir tryðu mér ekki fyrr en ég sýndi þeim mynd­irnar,“

Fjölmiðlar ágengir

Næstu klukku­tímar og dagur voru um margt óvenju­legir hjá Þorgeiri. Hann var orð­inn aðal­vitni í saka­máli, fjöl­miðlar keppt­ust við að ná af honum tali og kjafta­sög­urnar grass­er­uðu í hverju horni.

„Mér datt aldrei í hug að málið hefði þró­ast með þeim hætti sem síðar kom í ljós og hélt að þetta væri ein­hver héðan af svæð­inu – eitt­hvað partí hefði farið úr bönd­unum. Ég fór í skýrslu­töku og afhenti lög­reglu allar mynd­irnar sem ég hafði tekið. Mér var boðin ein­hvers konar áfalla­hjálp og hitti hjúkr­un­ar­fræð­ing sem rabb­aði við mig. Málið var mjög fljótt að spyrj­ast út, strax um hádegi byrj­aði sím­inn að hringja og þegar leið á dag­inn voru senni­lega allir fjöl­miðlar búnir að hafa sam­band við mig. Ég vís­aði þeim öllum á lög­reglu,“ segir Þorgeir. Hann vann á þessum tíma á Véla­verk­stæði G. Skúla­sonar en var í fríi sem var ástæða þess að hann hafði tíma til að kafa þennan dag. Hann segir að næstu dagar hafi ein­kennst af elt­inga­leik fjöl­miðla við að ná af honum tali.

„Ég sá hins vegar aldrei í and­lit manns­ins og hafði því ekki hug­mynd um hvort þetta væri ein­hver sem ég jafn­vel þekkti héðan úr bænum.“

„Síminn byrj­aði fyrir klukkan sjö á morgn­ana þegar stjórn­endur morg­un­út­varps­þátta höfðu sam­band en ég vís­aði áfram öllu frá og svar­aði engu um málið sjálft. Ég við­ur­kenni að mér fannst veru­lega óþægi­legt að vera mið­punktur í fjöl­miðlaum­fjöllun og sann­ar­lega ekki það sem ég bjóst við þegar ég vakn­aði morg­un­inn sem ég fann líkið. Ágang­ur­inn hélt áfram en fjar­aði svo út á nokkrum vikum. And­rúms­loftið í bænum var þungt og menn voru slegnir yfir atburð­inum. Kjafta­sög­urnar voru margar og mis­mun­andi, meðal ann­ars um hver þetta gæti verið. Aðkomu­skip sem var hér nokkrum dögum fyrr, verka­menn við Kára­hnjúka­virkjun og á svæð­inu við álverið á Reyð­ar­firði var áber­andi í umræð­unni. Þegar hið sanna kom svo í ljós var leitt að heyra að maður úr bæj­ar­fé­lag­inu hefði tengst mál­inu en þegar menn eru komnir í rugl þá getur ýmis­legt gerst.“

Þorgeir seg­ist hafa unnið úr áfall­inu og atburð­ur­inn hafi lítið truflað hann, ef svo má að orði kom­ast. „Mesta áreitið var ágangur fjöl­miðla dag­ana á eftir og er sá þáttur sem mér þótti óþægi­leg­astur við þetta mál. Annars hef ég bara haldið áfram að lifa mínu lífi en ég er enn spurður reglu­lega út í þetta, fólk er for­vitið um málið.“

Áður fundið lík við köfun

Segja má að líf þessa hæg­láta manns hafi umturn­ast við lík­fund­inn og óvenju­legt að vera allt í einu mið­punkt­ur­inn í kast­ljósi fjöl­miðl­anna. Þorgeir fædd­ist árið 1971 í Nes­kaup­stað og hefur búið þar alla tíð. Hann er vél­virki og vinnur hjá Alcoa Fjarða­áli. Hann er í sam­búð og á einn son auk þess sem sam­býl­is­kona hans á son fyrir. Þorgeir seg­ist hafa verið smá­krakki þegar hann fékk áhuga á köfun.

„Sem polli fylgd­ist ég með mönnum sem voru hér að kafa við bryggj­urnar, voru að vinna við síld­ar­flot­ann og þessi skip sem voru hérna. Ég byrj­aði sjálfur í kringum 17 ára ald­ur­inn. Æskilegt er að menn læri sport­köfun áður en byrjað er að kafa en á þessum tíma var mjög algengt að græjurnar væru keyptar og svo próf­uðu menn sig bara áfram. Ég var byrj­aður að starfa með björg­un­ar­sveit­inni og datt inn á björg­un­ar­köf­un­ar­nám­skeið þar sem ég fékk lán­aðan búnað en eign­að­ist fljót­lega minn eigin búnað eftir það. Það gerði mér gott. Í fram­hald­inu var ég inn­vinkl­aður í slökkvi­liðið og var orð­inn reykka­f­ari hjá því 18 ára gam­all.“

Þorgeir hefur stundað köfun frá því hann var 17 ára gam­all, bæði sem sport- og atvinnu­kaf­ari.

Þorgeir var virkur í björg­un­ar­sveit­ar­starf­inu um ára­bil, er enn á útkalls­lista þar og hjá slökkvi­lið­inu og reynir að taka þátt í því sem til­fellur. Hann hefur nokkrum sinnum farið í leit sem kaf­ari og í eitt skiptið var það Þorgeir sem fann þann sem leitað var að. Þetta er því ekki í eina skiptið sem Þorgeir hefur fundið lík í vatni. „Þær leitir í vatni sem ég hef tekið þátt í hafa allar borið árangur. Það er vissu­lega léttir að finna fólk sem er týnt en á móti kemur að ein­stak­ling­arnir eru látnir. Þetta eru því blendnar til­finn­ingar. Þetta getur tekið á sál­ina en við getum alltaf rætt við hjúkr­un­ar­fræð­inga og svo er hóp­ur­inn dug­legur að spjalla saman um málin. Það er gef­andi og lær­dóms­ríkt að starfa með björg­un­ar­sveit og í slökkvi­lið­inu. Útköllum hefur þó fækkað í gegnum árin, sér­stak­lega hjá slökkvi­lið­inu, sem betur fer,“ segir Þorgeir en hann hefur ekki enn þurft að nota þekk­ingu sína í reykköfun til að bjarga mann­eskju úr brenn­andi húsi. „Fólk hefur sem betur fer alltaf sloppið út.“

„Það er vissu­lega léttir að finna fólk sem er týnt en á móti kemur að ein­stak­ling­arnir eru látnir. Þetta eru því blendnar til­finn­ingar.“

Köfun er eitt af áhuga­málum Þorgeirs auk þess að ganga á fjöll og fara á skíði. Hann stundar sport­köfun af og til auk þess að vinna við að skoða skip og hafnir undir yfir­borð­inu. „Oft þarf til dæmis að losa veið­ar­færi úr skrúfum og þetta geri ég með­fram vinn­unni minni í álver­inu. Und­ir­djúpin eru heill­andi – allt líf­ríkið sem við sjáum venju­lega ekki og skips­flökin, svo eitt­hvað sé nefnt. Ég hef kafað víða, bæði hér heima og erlendis. Það sem hefur verið einna mest spenn­andi hér heima eru Strýt­urnar í Eyja­firði, flak af skútu sem sökk á poll­inum á Akureyri 1917, gjáin Silfra á Þing­völlum, flak El Grillo á botni Seyð­is­fjarðar og lítið skips­flak í Hell­is­firði,“ segir Þorgeir.

Reyfarakennd atburðarrás

Lík­fund­ar­málið í Nes­kaup­stað var svo reyfara­kennt að mörgum varð að orði að það væri eins og skáld­skapur, lyg­inni lík­ast – bíó­mynd frekar en raun­veru­leiki. Fyrir tveimur árum var ráð­ist í gerð bíó­myndar sem byggð er á mál­inu en fyrstu drög að hand­rit­inu voru skrifuð fyrir fjórtán árum. Myndin heitir Undir hala­stjörnu og verður frum­sýnd hér á landi 12. októ­ber næst­kom­andi. Leik­stjóri og hand­rits­höf­undur er Ari Alex­ander Ergis Magn­ús­son og myndin er fyrsta leikna bíó­myndin hans í fullri lengd en hann hefur áður gert fjölda heim­ilda­mynda og stutt­mynda.

Ari Alex­ander Ergis Magn­ús­son er hand­rits­höf­undur og leik­stjóri kvik­mynd­ar­innar Undir hala­stjörnu sem byggir á lík­fund­ar­mál­inu. Mynd / Jónatan Grét­ars­son

„Upp­haf­lega ætl­aði ég að gera heim­ilda­mynd um málið en sú hug­mynd kvikn­aði árið 2004 í kjöl­farið á lík­fund­ar­mál­inu. Þá vildi þannig til að ég og Sigurjón Sig­hvats­son kvik­mynda­fram­leið­andi vorum í við­tali í þætt­inum Ísland í dag vegna heim­ilda­mynd­ar­innar Gargandi snilld sem við vorum að kynna. Í sama þætti var einn sak­born­ingur lík­fund­ar­máls­ins í við­tali á eftir okkur. Hann neit­aði öllu stað­fast­lega. Þetta fannst mér áhuga­vert þar sem ég hef ávallt verið áhuga­maður um lífið, lyg­ina og það sem við köllum sann­leika, hvernig fólk upp­lifir atburði mis­mun­andi og er fylgið sér í eigin hug­ar­heimi, þetta verður trú­ar­sann­fær­ing, hver sagði og gerði. Annað sem kveikti áhuga minn voru við­brögð hins Íslend­ings­ins í mál­inu, en þegar allt var komið í óefni flúði hann heim til mömmu sinnar, það fannst mér athygl­is­vert. Ég hef áhuga á mann­lega þætt­inum í svona málum, ekki lög­reglu­málum sem slíkum. Það vill gleym­ast að ger­endur í saka­málum eru líka mann­eskjur með til­finn­ingar, eiga maka, börn, for­eldra, afa og ömmur,“ segir Ari.

„Lygin er alvarlegur hlutur“

Handrit mynd­ar­innar er byggt á lík­fund­ar­mál­inu en Ari tekur sér skálda­leyfi í per­sónu­sköpun, sam­tölum og aðstæðum per­són­anna. Nöfnum er breytt og í mynd­inni eru Lit­há­arnir tveir frá Eist­landi og heita Mihkel og Igor. Myndin snýst um aðdrag­and­ann að mál­inu, ekki um lög­reglu­rann­sókn­ina.

„Myndin hefst í Eist­landi árið 1991 þegar þeir eru börn og Ísland fyrst þjóða við­ur­kennir sjálf­stæði Eystra­salts­þjóð­anna. Þeir upp­lifa hetju­dáð lít­ils lands sem þorir að standa uppi í hár­inu á Rúss­landi. Landinu sem síðar verður land hinna stóru tæki­færa. Ég þekki Austur-Evrópu vel, sjálfur er ég ætt­aður frá Síberíu og hef gert þrjár heim­ilda­myndir í Rúss­landi. Ég þekki því hugsun þess­arar kyn­slóðar, hvernig leit að betra lífi er drif­fjöð­urin í þessu. Atburða­rásin er rétt en sam­skiptin skálduð.“

Stilla úr kvik­mynd­inni Undir hala­stjörnu.

Ari hefur lengi haft áhuga á fíkni­efna­heim­inum, hvernig væri hægt að taka á honum því okkur beri sam­fé­lags­leg skylda til að hjálpa fólki í neyð. „Þar er alltaf verið að hand­taka rangt fólk – fíkni­efna­neyt­endur sem eru hand­bendi fólks­ins sem fjár­magnar kaupin. Það ætlar sér eng­inn að verða glæpa­maður, þetta er ekki það sem for­eldra dreymir um fyrir börnin sín og ekk­ert barn dreymir um að verða dópisti. Það er alltaf þessi von um að þetta fari allt vel að lokum. Það ætlar sér eng­inn að sitja uppi með lát­inn mann. Myndin fjallar um bræðra­svik, lyg­ina, rangar ákvarð­anir, alvar­legar afleið­ingar og spila­borg sem fellur. Á leið­inni vona menn að allt verði í lagi og þá komum við að sjálfs­blekk­ing­unni. Þessi til­högun á sann­leik­anum, þetta sé bara pínu vanda­mál sem þurfi að redda. Lygin er alvar­legur hlutur.“
Ari seg­ist ekki skilja af hverju er ekki tekið betur á mál­efnum barna sem verða fíkn að bráð á fyrri stigum máls­ins, í grunn­skólum og mennta­skólum.

„Sjálfur hef ég enga lausn á tak­teinum en það þarf að huga alvar­lega að þessum málum. Svo verða allir voða­lega hissa að fólk sé skemmt og ekk­ert gert í málum þess­ara ein­stak­linga fyrr en allt er farið til hel­vítis.“

„Þetta er karma“

Myndin verður heims­frum­sýnd á kvik­mynda­há­tíð­inni Busan International Film Festival sem fer fram 4.-13. októ­ber í Suður-Kóreu. Í fram­hald­inu mun myndin taka þátt í kvik­mynda­keppni í Varsjá í Póllandi. Myndin verður frum­sýnd á Íslandi þann 11. októ­ber og hún fer í almennar sýn­ingar dag­inn eftir. „Hljóð­setn­ingu er nýlega lokið og ég er ánægður með heild­ar­út­kom­una. Myndin verður svo á öllum stærstu kom­andi kvik­mynda­há­tíðum þannig að það er nóg fram undan,“ segir Ari.

Fyrir fram­vindu máls­ins var lyk­il­at­riði að kaf­ar­inn, Þorgeir Jónsson, í Nes­kaups­stað fann líkið fyrir algera til­viljun. Annars hefði hinn látni mögu­lega aldrei fund­ist og fjöl­skylda hans því verið í óvissu um afdrif hans um aldur og ævi. „Til­viljun, ég er ekki viss um það. Ég held að þegar þú kemur svona illa fram við annað fólk þá bítur það mjög fast í rass­inn á þér, örlögin sjá um þig. Óheppni að kaf­ar­inn hafi verið beð­inn um að skoða bryggju, sem löngu var hætt að nota á þessum tíma­punkti? Ég held ekki. Þetta er karma, mín reynsla segir það,“ segir Ari að lokum.

Myndir /Þór­fríður Soffía Þór­ar­ins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi