Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Gáfulegasta sem ég hef gert í lífinu“

Telma Rut Ein­ars­dóttir segir þátt­tök­una í björg­un­ar­sveitum hafa kennt sér mikið og gefið sér aukið sjálf­stæði.

„Gáfulegasta sem ég hef gert í lífinu“
|

Flugnem­inn Telma Rut Ein­ars­dóttir hefur starfað með Björg­un­ar­sveit Hafn­ar­fjarðar í níu ár eða frá því hún byrj­aði á nýliða­nám­skeiði aðeins 17 ára gömul. Hún mælir með þátt­töku í björg­un­ar­sveitum fyrir alla sem hafa áhuga á úti­vist og góðum félags­skap.

„Þegar ég var yngri voru for­eldrar mínir dug­legir að fara með mig í úti­legur og fjalla­ferðir. Það má næstum segja að ég hafi alist upp í úti­legum og á fjöllum, ég er ekki nema sex vikna gömul á fyrstu mynd­inni sem var tekin af mér uppi á jökli. Þannig að þetta blund­aði alltaf óbeint í mér,“ svarar Telma þegar hún er spurð hvers vegna hún ákvað að fara í björg­un­ar­sveita­starf.

„Mér var svaka­lega vel tekið þegar ég byrj­aði en það er eitt af því sem mér finnst best við björg­un­ar­sveit­irnar, öllum er tekið eins og þeir eru. Það er mjög breiður hópur af fólki sem starfar í björg­un­ar­sveit­unum og allir geta unnið saman sem er alveg ótrú­lega flott að sjá. Þetta bara virkar ein­hvern veg­inn þegar á reynir.

Nýliða­nám­skeiðið var að með­al­tali aðra hverja helgi auk nýliða­kvölda á mið­viku­dögum þar sem voru ýmis stutt nám­skeið, fjall­göngur, spotta­kvöld, klifur eða annað sem okkur datt í hug.“

Ómetanlegur félagsskapur

Telma seg­ist á þessum tíma hafa lært mikið um úti­vist, hvernig eigi að haga sér á fjöllum, hvernig eigi að bjarga sér og öðrum og gera hlut­ina með lág­marks­á­hættu. „Þetta hefur einnig gefið mér aukið sjálf­stæði, getu til að fara lengra og gera meira en ég hefði ann­ars gert. Og svo ég verði nú aðeins væmin þá er félags­skap­ur­inn ómet­an­legur og ég hef kynnst mínum bestu og traust­ustu vinum í björg­un­ar­sveit­inni. Fólkið þarna er alltaf til staðar, alltaf til í að hjálpa þegar eitt­hvað bjátar á og ég hef fundið mjög sterkt hvað allir standa þétt við bakið á manni. Þessi and­legi stuðn­ingur og ein­ing þurfa að vera til staðar til að skapa góða björg­un­ar­sveit, en eru alls ekki sjálf­gefin.“

Félags­starfið í björg­un­ar­sveit­unum er fjöl­breytt. Til dæmis eru björg­un­ar­leik­arnir haldnir annað hvert ár sam­hliða lands­þingi. „Þar er keppt í ýmsum greinum, eins og böru­burði í gegnum þrauta­braut, sigi, rústa­björgun, rötun, tappa í dekk og draga bíla, öku­leikni, pönnu­köku­bakstri, björg­un­ar­sundi og fleira í þeim dúr. Í fyrra skiptið sem ég keppti settum við stelp­urnar saman lið sem við köll­uðum Team Barbie, svona upp á grínið, en svo vant­aði okkur einn upp á til að fylla liðið og end­uðum á að fá „Ken“ með okkur í lið. Svo tók ég síð­ast þátt með öðru liði sem end­aði í þriðja sæti á leik­unum, en það eru yfir tutt­ugu lið alls staðar af land­inu sem keppa sín á milli. Mæli sér­stak­lega með þessu fyrir nýliða, að setja saman lið og sjá hvað þið getið,“ segir Telma.

Enginn fer í útkall nema treysta sér til

Verk­efnin sem farið er í eru mis­mun­andi og mis­erfið. „Við förum í hvert verk­efni fyrir sig og leysum eins vel og við getum. Ef við gerum rétta hluti líður okkur yfir­leitt vel þótt útkallið geti verið erfitt. Ég á vini í sveit­inni sem hafa lent í erf­iðum útköllum, til dæmis að sækja látið fólk og það tekur auð­vitað á. En þar kemur liðs­heildin inn og við pössum okkar fólk og höfum aðgang að sál­fræð­ingi ef á þarf að halda til að vinna úr svona málum. Svo er líka vert að taka fram að við erum sjálf­boða­liðar og þar af leið­andi ákveðum við sjálf hvort við förum í útkall eða ekki. Það er eng­inn settur í útkall nema hann treysti sér til og telji sig hafa getu og kunn­áttu til að takast á við það. Í hvert skipti sem við fáum útkall með SMS-skila­boðum þarf fyrst að hugsa: Treysti ég mér í þetta verk­efni og hef ég kunn­áttu til að hjálpa í þessum aðstæðum? Ef svarið er já, er hægt að hlaupa af stað.“

„Ef við gerum rétta hluti líður okkur yfir­leitt vel þótt útkallið geti verið erfitt.“

Björg­un­ar­sveit­irnar um land allt hafa verið að halda kynn­ing­ar­fundi fyrir nýliða þar sem hægt er að fá frek­ari upp­lýs­ingar. „Ég mæli hik­laust með því að mæta og sjá hvort þetta sé eitt­hvað sem þú hefur áhuga á. Þetta er alla­vega eitt­hvað það gáfu­leg­asta sem ég hef gert í líf­inu.“

Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi