Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hélt að það yrði meira átak að fara frá Eyjum

Hélt að það yrði meira átak að fara frá Eyjum
Elliði Vign­is­son. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

„Ég hef aldrei upp­lifað þetta áður og þetta var mjög áhuga­verður tími fyrir mig per­sónu­lega. Vissu­lega svo­lítið flók­inn því ég hélt alltaf að ræt­urnar væru orðnar það djúpar að það yrði mikið átak að fara frá Vest­manna­eyjum, það hefur ekki orðið enn þá,“ segir Elliði Vign­is­son sem nýverið tók við stöðu bæj­ar­stjóra í Ölfusi eftir að hafa verið bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyjum í 12 ár. Elliði segir að vissu­lega hafi hann verið far­inn að huga að breyt­ingum enda kom­inn niður í fimmta sæti á lista eftir að hafa leitt hann til stærsta sig­urs flokks­ins í bæj­ar­fé­lögum af þess­ari stærð í sögu flokks­ins.   Flokk­ur­inn fékk 73 pró­sent atkvæða og fimm af sjö bæj­ar­full­trúum í kosn­ing­unum 2014 og ekk­ert benti til ann­ars en að Vest­manna­eyjar yrðu áfram slíkt vígi Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

En háværar deilur innan flokks­ins um röðun á fram­boðs­lista urðu til þess að flokk­ur­inn klofn­aði. H-list­inn spratt fram og náði ásamt E-list­anum að fella meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þótt ekki hafi munað nema fimm atkvæðum. Skyndi­lega stóð Elliði á kross­götum. Bæj­ar­stjóra­stóll­inn var far­inn og í fyrsta skipti í 14 ár var hann ekki lengur bæj­ar­full­trúi í Vest­manna­eyjum. Elliði var horf­inn úr for­ystu Vest­manna­eyja­bæjar og fram undan voru stórar per­sónu­legar ákvarð­anir.

Uppsöfnuð óánægja finnur sér farveg

Þótt deil­urnar innan flokks­ins hafi opin­ber­lega snú­ist um hvaða leið ætti að fara við röðun á fram­boðs­lista telur Elliði að dýpri ástæður hafi legið þar að baki. „Það var eng­inn mál­efna­legur ágrein­ingur en á móti kemur að við vorum búin að vera við stjórn­völ­inn í tólf ár og höfðum gengið þannig fram að auð­vitað höfum við valdið trufl­unum í við­tækjum ein­hverra á þessum tíma. Við fundum það mjög að ákveðnir hópar voru að leita sér að far­vegi fyrir per­sónu­lega óánægju frekar en eitt­hvað annað. Það var kannski byggt hús of nálægt einum, aðrir töldu sig ekki hafa fengið nægi­leg verk­efni í útboðum á vegum Vest­manna­eyja­bæjar, fólk hafði ekki fengið vinnu sem það sótti um hjá bænum eða jafn­vel misst vinn­una og taldi sig þess vegna eiga eitt­hvað sök­ótt við bæj­ar­fé­lagið og svo fram­vegis. Þessi óánægja fann sér far­veg í þessum svo­kall­aða H-lista sem náði því sem til þurfti. Þótt Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé eftir sem áður með eitt mesta fylgi á land­inu í Eyjum þá dugði fylgi H-list­ans til að fella meiri­hlut­ann og það verður ekki af þeim tekið.“

Elliði segir að einmitt sá hópur sem tal­aði um að það skorti upp á lýð­ræð­is­leg vinnu­brögð innan flokks­ins hafi sjálfur átt erfitt með að sætta sig við lýð­ræð­is­lega nið­ur­stöðu. Kosið hafi verið um þrjár mis­mun­andi leiðir og fékk til­lagan um upp­still­ingu meiri­hluta en féll eigi að síður þar sem tvo þriðju hluta þurfti til. Þá hafi verið kosið um próf­kjör, sem þeir sem síðar stofn­uðu H-list­ann studdu, og fékk sú til­laga minni­hluta atkvæða. „Þá voru greidd atkvæði um svo­kall­aða röðun og hún fékk lang­mesta fylgið. Þetta var bara lýð­ræð­is­leg nið­ur­staða og þessi hópur fór þá að gera því skóna að það hefði eitt­hvað verið að hræra með atkvæði og beita fólk þving­unum, það var alltaf frá­leit umræða. En nið­ur­staðan var þessi, að innan full­trúa­ráðs Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem stjórnar fram­boðs­málum flokks­ins, var ekki vilji fyrir próf­kjöri. Ekki einu sinni ein­faldur meiri­hluti. Á því féll sú hug­mynd. Sjálfur tal­aði ég fyrir leið­toga­próf­kjöri. Það fékk eitt atkvæði, bara mitt atkvæði. Þannig að ekki var vilji til að fara í það og svo greiddi fólk bara atkvæði sam­kvæmt sinni sann­fær­ingu og það varð nið­ur­staðan.“

Talar ekki um Pál Magnússon

Deil­urnar mögn­uð­ust enn frekar eftir að nið­ur­staða kosn­ing­anna varð ljós og beind­ist reiði sjálf­stæð­is­manna fyrst og fremst að Páli Magn­ús­syni, þing­manni flokks­ins í kjör­dæm­inu. Hann var sak­aður um að hafa stutt fram­boð H-list­ans á bak­við tjöldin og þannig unnið mark­visst gegn eigin flokki í bænum. Fór svo að Páll var rek­inn úr full­trúa­ráði flokks­ins í Vest­mann­eyjum vegna „for­dæma­lausrar fram­göngu“ hans í kosn­ing­unum, eins og það var orðað í ályktun. Elliði er fljótur til svara þegar hann er spurður út í fram­göngu Páls. „Ég ætla ekki að tjá mig um Pál Magn­ús­son í þessu við­tali. Ég ætla ekki að falla í þá gryfju að ræða þetta út frá ein­stökum per­sónum. Það er til sál­fræði­hug­tak sem heitir stóra eign­un­ar­villan og hún er kölluð það af því að hún er svo algeng. Hún felst í því að ætla per­sónum of stórt hlut­verk. Oftast nær liggur skýr­ingin í ein­hverju öðru en ein­stökum per­sónum. Við eignum ein­stökum per­sónum árangur og eignum ein­stökum per­sónum líka árang­urs­leysi þegar allt aðrir þættir geta legið að baki. Þannig að mér finnst það hvorki sann­gjarnt gagn­vart mér né Páli Magn­ús­syni að ég fari að ræða um meintar per­sónu­legar deilur á milli okkar.“

Elliði bætir við: „Svo er það annað hvernig þing­menn ganga fram. Það er annað en per­sóna þing­manns­ins. Þetta er í eina skiptið, þótt ég sé búinn að vera á hátt í á annan ára­tug í póli­tík og fylgst vel með þá man ég aldrei eftir því áður, að það léki vafi á því hvort að þing­maður myndi styðja fram­boð síns flokks. Það er ekk­ert óeðli­legt að fólk hafi velt vöngum yfir því.“

Var staðráðinn í að hætta í pólitík

Elliði er keppn­is­maður mik­ill og seg­ist hann fyrst og fremst hafa orðið tapsár þegar nið­ur­staðan lá fyrir. „Alveg sama í hverju maður er, þá er maður í hlut­unum til þess að vinna.“ Engu að síður var hann kom­inn í þá stöðu að vera atvinnu­laus og þurfti, eftir 12 ár á bæj­ar­stjóra­stóli, að taka ákvörðun um fram­tíð­ina. „Það kom mér svo­lítið á óvart að ég upp­lifði svona … mér liggur nærri að kalla það frelsi. Allt í einu fannst mér ég standa frammi fyrir gríð­ar­legum tæki­færum. Fyrstu vik­urnar var ég mjög ein­beittur að skipta úr póli­tík­inni, úr stjórn­málum, yfir í einka­geir­ann. Hann tog­aði fast í mig.“

Elliði átti í ýmis­konar sam­tölum við fólk um starf og stöður í einka­geir­anum og var hann kom­inn að því að stökkva á áhuga­vert tæki­færi þegar póli­tíkin tog­aði aftur í hann. „Ég fór að fá áhuga­verð sím­töl frá full­trúum víða um land um hvort ég hefði áhuga á að taka að mér bæjar- og sveit­ar­stjóra­stöður. Þau voru af öllum stærðum og gerðum. Það varð til þess að ég fór að skoða þennan mögu­leika. Þrátt fyrir að vera hálf­part­inn búinn að lofa mér að verða ekki fimm­tugur án þess að hafa unnið að marki í einka­geir­anum, þá stend ég núna frammi fyrir því að verða fimm­tugur á næsta ári og vera búinn að vera opin­ber starfs­maður nán­ast alla ævi. Það var ekki það sem ég ætl­aði mér.“ Elliði er því, rétt eins og margir af helstu málsvörum einka­fram­taks­ins á Íslandi, á mála hjá hinu opin­bera. „Það vill nú oft verða að sumum okkar er fórnað handan víg­línu til þess að reyna að hafa áhrif,“ segir hann og hlær.

Það kom Elliða þægi­lega á óvart hversu auð­velt það reynd­ist að flytja frá Eyjum. Það hjálp­aði til að börnin eru upp­komin og því ekki jafn­erfitt að rífa upp ræt­urnar. En það gætti þó innri tog­streitu. „Það hellt­ist yfir mig um tíma ákveð­inn val­kvíði. Skyndi­lega varð ég kvíð­inn og and­stuttur og hugs­aði, hvað ef ég vel rangt? Ég er með öll þessi tæki­færi fyrir framan mig, ég get farið inn í mjög spenn­andi tæki­færi í einka­geir­anum, ég get valið um mjög ólík og mis­mun­andi tæki­færi innan sveit­ar­fé­laga­geirans. Hver verður líðan mín og hvaða stefnu tekur líf mitt ef ég vel rangt?“

Sestur að í Elliðahöfn

Ekki er að heyra á Elliða að hann hafi tekið ranga ákvörðun þegar hann þekkt­ist boð um að ger­ast bæj­ar­stjóri í Ölfusi, víð­femu tveggja þús­und manna sveit­ar­fé­lagi á Suð­ur­landi þar sem Þor­láks­höfn er stærsti þétt­býl­iskjarn­inn. Kannski við­eig­andi í ljósi þess að Þor­láks­höfn hét áður Elliða­höfn og gant­ast Elliði með að „leið­rétta þau mis­tök“ í fram­tíð­inni. „Ég er með mál­frelsi og til­lögu­frelsi í bæj­ar­stjórn og aldrei að vita að ég mani mig upp í að flytja þá til­lögu á ný.“

Það er margt við Ölfus sem heillar Elliða og nefnir hann sterkt sam­fé­lag með hátt þjón­ustu­stig og mikil tæki­færi til atvinnu­upp­bygg­ingar. „Ég er líka lands­byggð­ar­maður í eðli mínu. Ég er mjög hrif­inn af hug­myndum þeirra sem voru að taka hér við og treysti mér vel til að vinna með þeim. Ég treysti þeim líka mjög vel til að vinna með mér sem er oft flókn­ara heldur en fyrir mig að vinna með öðrum. Ég er orð­inn nógu gam­all til að vita hvernig ég er. Ég fer hratt yfir og get verið mjög fylg­inn mér og gengið hart fram.“

Aðlög­unin hefur gengið vel. Fjöl­skyldan hefur komið sér fyrir í Ölfusinu er þó enn sem komið er með annan fót­inn í Eyjum þar sem eig­in­kona hans, Bertha Ingi­björg Johansen, rekur fata­verslun og dóttir þeirra, Bjartey Bríet, sækir nám í Fram­halds­skól­anum í Vest­manna­eyjum. Sonur þeirra, Nökkvi Dan, spilar hand­bolta með norska úrvals­deild­ar­lið­inu Arendal og stundar sam­hliða því nám í stærð­fræði við Háskóla Íslands. „Það tekur ein­hvern tíma fyrir Berthu og Bjartey að losa sig full­kom­lega frá sínum skuld­bind­ingum þannig að þær eru dálítið á víxl hér í Ölfusinu og í Eyjum. Það gengur bara ljóm­andi vel að sníða þetta saman og þær eru sem betur fer strax orðið mikið hér enda líður okkur alveg ofsa­lega vel hérna enda þetta er gott sam­fé­lag og nóg um að vera. Ég reyni síðan að vera dug­legur að heim­sækja Eyjar, sér­stak­lega til þess að að rækta vini og heim­sækja fjöl­skyld­una.“

Stórhuga Ölfusingar

Elliði fer á flug þegar talið berst að atvinnu­upp­bygg­ingu í sveit­ar­fé­lag­inu. Mýgrútur hug­mynda er á teikni­borð­inu og er bæj­ar­stjór­inn bjart­sýnn fyrir hönd sveit­ar­fé­lags­ins. Fyrst nefnir hann ork­una en innan marka sveit­ar­fé­lags­ins er að finna stærsta jarð­orku­svæði lands­ins sem og ein­hverjar mestu vatns­birgðir lands­ins í jörðu. „Íbúar hér segja gjarnan að ef þú tekur stórt skrúf­járn og rekur ofan í jörð­ina, þá færðu upp heitt vatn. En ef þú rekur lífið skrúf­járn ofan í jörð­ina færðu kalt vatn. Það er algjör­lega ein­stakt, jafn­vel á heims­vísu, að hafa aðgang að öllu þessu kalda og heita vatni.“ Sér Elliði fyrir sér mikla fram­þróun í orku­bú­skap þar sem áhersla verður lögð í full­vinnslu orkunnar. „Ekki bara full­vinnslu orkunnar, heldur full­vinnslu þeirra efna sem fylgja varm­anum. Það er til dæmis komnir upp mjög öfl­ugir hátækni­iðn­garðar á Hell­is­heiði og þar ætla menn að nota ýmsar loft­teg­undir, til dæmis til þör­unga­ræktar og ýmsar fleiri hug­myndir. Þar ætlum við okkur stóra hluti.“

En vatnið verður ekki ein­göngu notað til orku­öfl­unar því hvorki fleiri né færri en þrjú bað­lón á stærð við Bláa lónið eru á teikni­borð­inu. Grey line og Heklu­byggð ehf. stefna að því að hefja fram­kvæmdir við eitt slíkt við skíða­skál­ann í Hvera­dölum og þá eru tvö önnur bað­lón í skipu­lags­ferli hjá sveit­ar­fé­lag­inu en að þeim standa inn­lendir og erlendir fjár­festar. „Ferða­þjón­ustan er gríð­ar­lega sterk hérna því nán­ast hver ein­asti útlend­ingur sem hingað kemur fer í gegnum sveit­ar­fé­lagið í gegnum þjóð­veg 1. Reykja­dal­ur­inn tekur við 250-300 þús­und ferða­mönnum á ári og það eru uppi stór­huga áform um að nýta sér­stöðu þessa svæðis.“

Hef aldrei minnst á Kínverja

Á und­an­förnum árum hafa verið uppi hug­myndir um að byggja upp stór­skipa­höfn í Þor­láks­höfn og hafa þing­menn kjör­dæm­is­ins reglu­lega lagt fram til­lögur þess efnis. Á dög­unum greindi Morg­un­blaðið svo frá því að for­svars­menn sveit­ar­fé­lags­ins ættu í við­ræðum við kín­verska aðila um millj­arða fjár­fest­ingu á hafn­ar­svæð­inu. Elliði segir áhuga vissu­lega fyrir hendi, bæði meðal inn­lendra og erlendra fjár­festa. „Ég hef aldrei minnst á Kínverja, það hafa blaða­menn gert og þeir gera það á eigin ábyrgð. Við höfum aldrei minnst á neitt þjóð­erni í þessu sam­hengi enda skiptir það ekki öllu. Við finnum bara áhuga einka­að­ila til að koma að þessu verk­efni með okkur og við byrjum þar, á því að þreifa fyrir okkur hversu víð­tækur þessi áhugi er og hverjir eru með hug­myndir sem að sam­rým­ast best þessu sam­fé­lagi.“

Elliði telur að stór­skipa­höfn í Þor­láks­höfn komi til með að gjör­breyta lands­lag­inu í vöru­flutn­ingum til og frá land­inu. Sú þróun sé nú þegar hafin eftir að vöru­flutn­inga­skipið Mykines hóf að sigla til hafn­ar­innar og styttir þar með sigl­inga­leið­ina frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu til Evrópu um allt að sól­ar­hring. „Til dæmis fer stór hluti af öllum bílum sem koma inn til lands­ins í gegnum höfn­ina hérna, hér er líka mik­ill fersk­flutn­ingur og þetta er bara topp­ur­inn á ísjak­anum ef höfnin fær að þró­ast áfram.“

Elliði sér til dæmis fyrir sér að fram­kvæmd­irnar gætu fylgt svip­uðu rekstr­ar­mód­eli og Hval­fjarð­ar­göngin, það er að fjár­fest­arnir standi straum af fram­kvæmd­unum og eftir ákveð­inn tíma, þegar fjár­fest­ingin hefur borgað sig, eign­ast sveit­ar­fé­lagið höfn­ina á ný. „Það er ekk­ert lög­mál að sveit­ar­fé­lög eða hið opin­bera reki hafnir. Þetta er bara atvinnu­tæki. Er það eðli­legt fyr­ir­komu­lag að þegar sveit­ar­fé­lög fara í að nýta atvinnu­tæki­færi og styrkja inn­viði eins og hafnir, að þá sé í raun og veru verið að leggja rekstur grunn­skóla og leik­skóla undir? Ef það gengur illa með fjár­fest­ingu við höfn­ina að þá þurfi að stytta opn­un­ar­tíma á bóka­safni eða hækka gjald­skrárnar í sund­laug­unum?“

Oft verið hundósáttur við flokkinn

Talið berst nú að Sjálf­stæð­is­flokknum þar sem Elliði hefur alið mann­inn frá því hann hóf afskipti af stjórn­málum. Hann hefur verið áber­andi í starfi flokks­ins og ekki hikað við að segja sínar skoð­anir umbúða­laust þótt þær kunni að stuða fólk, jafn­vel eigin flokks­menn. „Ég hef mik­inn áhuga á Sjálf­stæð­is­flokknum og ég styð hann en ekki óháð því hvað hann gerir. Ég hef alla tíð haldið með ÍBV, Chelsea og Utah Jazz en það er alveg óháð því hvað þau gera. Þetta eru bara lið sem ég valdi mér að fylgja. Ég get kvartað yfir árangrinum og fund­ist að það eigi að skipta ákveðnum leik­manni inn á eða út af en ég held alltaf með mínu liði. Skuld­bind­ing mín við Sjálf­stæð­is­flokk­inn er ekki þannig. Ég styð Sjálf­stæð­is­flokk­inn með ráðum og dáð og vinn fyrir hann á meðan ég hef þá trú að þetta sé það stjórn­mála­afl sem er lík­leg­ast til að vinna hug­sjónum mínum fram­gang. Að þessu sögðu, þá er ég til­bú­inn til að vinna áfram með Sjálf­stæð­is­flokknum eins og ég hef gert síð­ustu 20 árin og ekki séð eftir einni mín­útu sem hefur farið í það. En oft hef ég orðið hundósáttur við flokk­inn og finnst hann í sumum þáttum þurfa að fara að hugsa sinn gang.“

Þar horfir Elliði til hinna klass­ísku frels­is­mála þar sem honum finnst flokk­ur­inn ekki ganga nægi­lega vask­lega fram. „Það er lyk­il­at­riði fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í dag, að láta af for­ræð­is­hyggju og ganga fastar fram í inn­leið­ingu á hvers konar frelsi. Og frels­is­málin þurfa ekki alltaf að vera stærstu efna­hags­legu mál þjóð­ar­innar.

Eitt grund­vall­ar­mál er t.d. að ríkið dragi sig í hlé í af neyt­enda­mark­aði. Að það hætti afskiptum á sölu á vörum svo sem ilm­vatni, Tobleron og salt­pillum í nafni ISAVIA. Svo ekki sé nú minnst á hið sjálf­sagða frelsi til að kaupa bjór og vín eins og hverja aðra neyt­enda­vöru. Af hverju er frelsi í rekstri fjöl­miðla ekki meira? Af hverju þurfa einka­reknir fjöl­miðlar að glíma á hverjum ein­asta degi við rík­is­bákn? Af hverju hagar ríkið málum sínum þannig að þeir eru búnir að taka sér leyfi að byrja að prenta dag­blað og rukka alla sem eru með bréfalúgu, rétt eins og þeir senda út útvarp og rukka alla sem mögu­lega geta haft við­tæki í gegnum nef­skatt. Það er ekk­ert frelsi í þessu. Ég vil geta valið hvort ég versla við fjöl­miðil eða ekki. Á sama hátt þarf ríkið líka að láta sem mest af inn­gripum í atvinnu­lífið.  Í hvert skipti sem umræða sem þessi kemur upp þá hljómar alltaf eitt­hvert berg­mál í sam­fé­lag­inu: „Er þetta nú stærsta málið? Væri ekki nær að ræða fátækt?“ Hugtakið frelsi er svo mik­il­vægt fyrir okkur öll í okkar dag­lega lífi og þess vegna eigum við ekki að láta hrekja okkur út í horn í þess­ari umræðu.“

Elliði vill meina að þetta hafi ekk­ert að gera með þá stað­reynd að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi verið í sam­starfi við „ófrjáls­lynd­ari“ flokka. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi verið í sam­starfi með öllum flokkum og ekk­ert í þessa átt hafi verið áorkað. „Því miður er það sem ger­ist að þegar þing­menn verða ráð­herrar, þá verða þeir svo miklir emb­ætt­is­menn. Þetta á ekki við um einn flokk umfram aðra. Þeir fara að hugsa eins og fram­kvæmda­stjórar sem er gott og blessað en þeir verða að standa fyrir eitt­hvað póli­tískt. Ég er ekki að tala fyrir útópískri frjáls­hyggju, heldur þann sjálf­sagða rétt að t.d. skíra barnið þitt því nafni sem þú telur best hæfa og eigir það ekki undir ein­hverri rík­is­nefnd. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vill vera trúr þessu en honum hættir eins og öllum öðrum flokkum til þess að fara út úr þessu.“

Hefur ekki áhuga á þingmennsku

Fyrir hverjar þing­kosn­ingar sprettur nafn Elliða upp í tengslum við mögu­legt fram­boð fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Hann hefur hins vegar aldrei látið til­leið­ast þrátt fyrir góða mögu­leika, enda Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gríð­ar­lega sterkur í kjör­dæm­inu og sjálfur á Elliði sterkt bak­land í Eyjum og víðar í kjör­dæm­inu. Elliði seg­ist ein­fald­lega ekki hafa haft áhuga á þing­mennsku. „Ég hef aldrei úti­lokað það en áhugi minn hefur aldrei legið í þessa átt. Mér hefur fund­ist mörgum sveit­ar­stjórn­ar­mönnum sem fara inn á þing ekki líða neitt sér­lega vel þar. Sér­stak­lega þegar menn hafa verið bæjar- og sveit­ar­stjórar, að koma inn á þing og sjá hlut­ina ger­ast á þeim hraða sem þar er, það er svo­lítið erfitt fyrir fólk sem er kannski búið að vera í tugi ára í þannig umhverfi að ef þú vilt að eitt­hvað ger­ist á morgun, þá hef­urðu raun­hæfa mögu­leika á að það ger­ist á morgun. Þú getur strax byrjað að hafa áhrif.“

Fyrir þing­menn er þetta erf­ið­ara, segir Elliði, og fólk er gjarnt á að gera ósann­gjarnar kröfur til þeirra. Sjálfur seg­ist Elliði hafa verið í þeim hópi. „Fólk vill að þing­menn­irnir reddi málum. Reddi hjúkr­un­ar­dag­heim­ili fyrir veika ömmu, reddi brú yfir fljót og reddi náms­bókum fyrir þá sem hafa ekki efni á þeim og svo fram­vegis. Þingmenn eru lög­gjaf­inn, þeir hafa mjög tak­mörkuð úrræði þegar að þessu kemur. Við höfum langtum meiri úrræði hvað þetta varðar í sveit­ar­stjórn. Þannig að ég hef hingað til ekki stefnt inn á Alþingi og geri það ekki í dag.

Myndir / Hákon Dagur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi