Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þegar loddarar banka

Þegar loddarar banka
Mynd / Utan­rík­is­ráðu­neytið

Leiðari Tvær sam­an­tektir voru birtar á vef stjórn­ar­ráðs­ins á mið­viku­dag­inn. Önnur þeirra er skrifuð af háskóla­pró­fessor sem kemst að þeirri nið­ur­stöðu að allir bestu vinir hans (þó aðal­lega einn sem nefndur er 163 sinnum á nafn á 180 blað­síðum) eru frá­bærir og flekklausir menn þrátt fyrir að nær öll opin­ber gögn hafi sýnt fram á annað. Hinir raun­veru­legu skúrkar voru ýmist útlend­ingar eða óvinir hins óskeik­ula. Fyrir þessa mjög svo fyr­ir­sjá­an­legu nið­ur­stöðu borg­aði rík­is­sjóður 10 millj­ónir.

Öllu athygl­is­verð­ari er sam­an­tekt Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins á stöðu íslensks efna­hags­lífs. Þar er sér­stak­lega varað við því að „[ó]vissa tengd samn­inga­við­ræðum um útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu eykur lík­urnar á veik­ari útflutn­ings­eft­ir­spurn frá einum af stærstu mörk­uðum Íslands og gæti flækt frekar fisk­veiði­sam­vinnu á Norður-Atl­ants­hafi“.  Með öðrum orðum, Brexit er ekki bara meiri háttar vesen fyrir Bretland. Það er líka vesen fyrir Ísland þótt ein­staka stjórn­mála­menn hafi þóst sjá mikil tæki­færi fyrir Ísland af því að það þjón­aði þeirra póli­tískum hags­munum.

Brexit er nefni­lega skóla­bók­ar­dæmi um hversu alvar­legar afleið­ingar það getur haft þegar lýð­skrumarar, drifnir áfram af eigin hags­munum, fá að vaða uppi óáreittir. Kosn­inga­bar­átta þeirra var rekin áfram af lygum og hræðslu­á­róðri ásamt hand­fylli af tærum ras­isma. Allt frá því nið­ur­staðan lá fyrir hefur lyga­vef­ur­inn verið rak­inn og helstu ridd­arar Brexit-liða hafa ýmist látið sig hverfa eða eru önnum kafnir við að hagn­ast á öllu saman eða hella olíu á eld­inn sem þeir kveiktu sjálfir á meðan þeirra eigið slökkvi­lið reynir að veikum mætti að slökkva eld­inn.

Næst þegar lodd­ar­inn (oftar en ekki vel tan­aður í dýrum jakka­fötum) bankar upp á og reynir að sann­færa þig um að allt sem aflaga fer er vondum útlend­ingum eða ímynd­uðum óvinum að kenna, spurðu þig að því hvað hann hefur upp úr krafs­inu.

Bretland mun ganga út úr ESB þann 29. mars á næsta ári. Breska rík­is­stjórnin hefur gert þá kröfu að fá að halda áfram að njóta flestra þeirra kosta ESB-aðildar án þess þó að vera í sam­band­inu. Hún vill skilnað en eftir sem áður óheftan aðgang að heim­il­inu – heimtar að sofa í hjóna­rúm­inu, borða úr ísskápnum og horfa á sjón­varpið. Eðlilega er ESB ekki til­búið að fall­ast á þessar kröfur.

Líkurnar á engum samn­ingi aukast þess vegna með hverjum deg­inum. Alþjóð­leg fyr­ir­tæki í Bret­landi eru farin að gera áætl­anir um að flytja sig á evru­svæðið, breska rík­is­stjórnin er farin að hamstra lyf, flug­sam­göngur gætu raskast veru­lega og eng­inn veit hvað verður um landa­mærin við Norður-Írland eða þær millj­ónir Evr­ópu­búa sem búa í Bret­landi. Þeirra á meðal eru all­nokkrir Íslend­ingar.

Eins og AGS bendir á gætu nei­kvæð áhrif á við­skipti við Ísland orðið umtals­verð og ekki má heldur gleyma því að mjög stór hluti þeirra erlendu ferða­manna sem heim­sækja Ísland eru Bretar. Brexit er afleitt fyrir alla og þess vegna er mik­il­vægt að við drögum lær­dóm af öllu þessu klúðri. Næst þegar lodd­ar­inn (oftar en ekki vel tan­aður í dýrum jakka­fötum) bankar upp á og reynir að sann­færa þig um að allt sem aflaga fer er vondum útlend­ingum eða ímynd­uðum óvinum að kenna, spurðu þig að því hvað hann hefur upp úr krafs­inu. Oftast er svarið póli­tískur frami eða vafa­samir við­skipta­gjörn­ingar. Einstaka sinnum 10 millj­ónir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi