Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þakkar guði fyrir að hafa fundið barnið sitt

Mýmörg dæmi eru um að börn yfir­gefi frí­stunda­heim­ili án þess að umsjón­ar­fólk veiti því eft­ir­tekt. For­eldrar segja að þjón­ustan veiti falskt öryggi.

Þakkar guði fyrir að hafa fundið barnið sitt

Í síð­ustu viku var aug­lýst eftir tveimur drengjum, sjö og átta ára, sem ekk­ert hafði spurst til í nokkrar klukku­stundir. Annar dreng­ur­inn hafði yfir­gefið frí­stunda­heim­ilið í skól­anum sínum án leyfis og var for­eldri gert við­vart þegar hvarfið upp­götv­að­ist. Drengirnir fund­ust, fimm klukku­stundum síðar.
Helgi Grímsson, sviðs­stjóri skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­víkur, segir að lögð sé áhersla á að hafa góða yfir­sýn yfir barna­hóp­inn. Byggðir hafi verið upp verk­ferlar í kringum skil skóla­dags og upp­haf frí­stunda­starfs, innan frí­stunda­tím­ans, frá frí­stund og á íþrótta­æf­ingar og svo um heim­ferðir. „Vissu­lega koma upp til­vik þar sem barn skilar sér ekki í frí­stund og eru skýr­ing­arnar marg­vís­legar. Í þessum fáu til­vikum er sjald­gæft að barnið finn­ist ekki innan stundar. Í öllum til­vikum er staðan rýnd, hvað fór úrskeiðis og hvernig megi koma í veg fyrir að þetta end­ur­taki sig,“ segir Helgi þegar hann er spurður út í stöðu þessa mála hjá Reykja­vík­ur­borg.

„Enginn af starfs­mönn­unum hafði gert sér grein fyrir hvarfi barns­ins, hvað þá hversu langur tími hafði liðið frá því barnið fór.“

Sími um háls­inn örugg­ari en vistun
Miklar umræður spunn­ust um börn á frí­stunda­heim­ilum í kjöl­far þess­arar fréttar og í ljós kom að for­eldrar í Kópavogi eru síður en svo ánægðir með þjón­ustu bæj­ar­fé­lags­ins í frí­stunda­málum. „Þegar dóttir mín var í fyrsta bekk og vistuð á frí­stunda­heim­ili eftir skóla kom það margoft fyrir að ég fékk sím­töl frá nágranna­konu minni sem var í fæð­ing­ar­or­lofi, þess efnis að dóttir mín væri heima hjá henni með dóttur hennar, hvort það væri með mínu leyfi,“ segir móðir í Kópavogi. „Mér brá auð­vitað því ég taldi mig vera að borga fyrir þjón­ustu sem reynd­ist vera falskt öryggi. Ef þessi móðir hefði ekki verið heima veit ég ekki hvar barnið mitt hefði endað, síma- og lykla­laust og eng­inn starfs­maður sem veitti því neina eft­ir­tekt hvort hún væri á staðnum eða ekki. Auk þess að fá end­ur­tekin sím­töl frá móð­ur­inni í fæð­ing­ar­or­lof­inu kom líka fyrir að ég mætti í skól­ann til að sækja dóttur mína sem var þá ein­fald­lega ekki á staðnum. Enginn af starfs­mönn­unum hafði gert sér grein fyrir hvarfi barns­ins, hvað þá hversu langur tími hafði liðið frá því barnið fór. Þá höfðu vin­kon­urnar ýmist farið í ævin­týra­ferðir, heim­sótt vin­konur sem voru eft­ir­lits­lausar heima eða ein­fald­lega gleymt stað og stund í úti­vist og ekki verið sóttar inn af eft­ir­lits­að­ilum. Það sem olli mér hvað mestum von­brigðum voru við­brögð starfs­fólks­ins sem reyndi ekki einu sinni að þykj­ast kann­ast við nafnið á barn­inu mínu. Það tekst illa að manna þessar stöður og því er hægt að ráða hvern sem er til þess að sinna því sem ætti að vera ábyrgð­ar­hlut­verk en er síður en svo litið slíkum augum.“

Konan segir að lítið hafi lag­ast þrátt fyrir ítrek­aðar kvart­anir og á end­anum hafi hún skráð barnið úr frí­stunda­heim­il­inu. „Í fram­hald­inu fékk barnið takka­síma og var skráð úr dægradvöl, ég áleit öryggi hennar vera meira heima­fyrir en þarna. Sömu sögu er að segja af minnst sex vin­konum hennar sem ég veit um.“

Önnur móðir í Kópavogi sem Mannlíf ræddi við hafði svip­aða sögu að segja. Eitt sinn hafi hún farið að sækja barn sitt á frí­stunda­heim­ili en þá hafi það ekki verið á staðnum og eng­inn vitað hvar það var nið­ur­komið. Eftir smá­spjall hafi komið í ljós að barnið hafi í nokkur skipti ekki mætt í frí­stund eftir skóla en eng­inn hafi haft fyrir því að láta for­eld­rana vita. „Ég varð svo hissa og svo reið. Svona myndi aldrei ger­ast í heima­landi mínu, Litháen, þar sem öryggi barna er alltaf í fyrsta sæti og faglært fólk sem hugsar um börnin. Ég þakka bara guði fyrir að hafa fundið barnið mitt heima hjá bekkj­ar­systk­ini eftir stutta leit,“ segir hún en vert er að taka fram að ekk­ert af for­eldr­unum sem Mannlíf ræddi við vildi koma fram undir nafni að ótta við að það kynni að bitna á börnum þeirra eða yngri systk­inum sem ættu jafn­vel eftir að þurfa á þjón­ust­unni að halda.

„Við þekkjum dæmi þess að börn hafi farið heim án þess að láta vita af sér.“

Sigríður Björg Tóm­as­dóttir, almanna­teng­ill Kópa­vogs­bæjar, seg­ist ekki vita til þess að börn hafi farið ítrekað úr frí­stunda­heim­ilum bæj­ar­ins án þess að umsjón­ar­fólk veitti því eft­ir­tekt eða léti for­eldra við­kom­andi vita. „Við þekkjum dæmi þess að börn hafi farið heim án þess að láta vita af sér. En það er sam­kvæmt okkar vit­neskju afar sjald­gæft og litið mjög alvar­legum augum. Frí­stunda­heim­ili grunn­skóla í Kópavogi starfa sam­kvæmt stefnu­mörkun sem sam­þykkt var fyrir nokkrum árum. Einnig hefur verið gefin út Handbók frí­stunda­starfs sem er ætlað að vera leið­bein­andi og upp­lýsandi fyrir for­stöðu­menn og starfs­fólk. Þá hafa örygg­is­ferlar verið sér­stak­lega útfærðir en í þeim er sér­stak­lega fjallað um hvernig bregð­ast á við ef barn mætir ekki eða týn­ist,“ segir Sigríður Björg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi