Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Aldrei litið á okkur sem poppstjörnur“

Bjarni Lárus Hall, söngv­ari hljóm­sveit­ar­innar Jeff Who? segir með­limi sveit­ar­innar aldrei hafa ætlað sér að leggja Ísland að fótum sér, þrátt fyrir miklar vin­sældir á sínum tíma, og að end­ur­komu­tón­leik­arnir um helg­ina séu alls ekki til­raun til að reyna að slá í gegn að nýju.

„Aldrei litið á okkur sem poppstjörnur“

Hljóm­sveitin Jeff Who? var geysi­vin­sæl fyrir ára­tug eða svo en hvarf síðan alfarið úr sviðs­ljós­inu. Nú blása með­limir hljóm­sveit­ar­innar til tvennra tón­leika um helg­ina þar sem söngv­ar­inn Bjarni Lárus Hall verður auð­vitað í for­grunni. Hann segir þó mark­miðið ekki vera að slá í gegn á ný. Þetta séu bara sex vinir að skemmta sér saman.
„Ekki spila, ég er í við­tali,“ er það fyrsta sem ég heyri Bjarna Lárus Hall segja þegar ég hringi í hann. Hann er sem sé staddur á æfingu með hljóm­sveit­inni Jeff Who? þar sem verið er að fín­pússa prógram­mið fyrir tón­leika helg­ar­innar.

Auk Bjarna skipa þeir Ásgeir Valur Flosason, Elís Pét­urs­son, Valdimar Krist­jóns­son, Þormóður Dagsson og Þorbjörn Sig­urðs­son hljóm­sveit­ina en þeir hafa allir verið nánir vinir síðan á mennta­skóla­ár­unum í MR. Þeir slógu óvænt í gegn um miðjan síð­asta ára­tug, gáfu út tvær plötur og áttu hitt­ar­ann Barfly sem tröll­reið útvarps­stöðvum mán­uðum saman en síðan hvarf hljóm­sveitin nán­ast af yfir­borði jarðar og hefur ekki heyrst síðan. Nú skella þeir á tvennum end­ur­komu­tón­leikum, í kjöl­far tón­leika Írafárs og nýs lags frá Stjórn­inni. Hvað er í gangi, er end­ur­koma hljóm­sveita frá síð­ustu ára­tugum það heitasta í dag? „Ha, nei, við vorum nú ekk­ert að pæla í því,“ segir Bjarni gátt­aður. „Mér hafði ekki dottið það í hug einu sinni að við fylgdum ein­hverju trendi.“
Er hugs­unin kannski sú að nú eru þeir sem voru aðdá­endur á sínum tíma orðnir mið­aldra, stöndugt fólk sem hefur efni á að sækja tón­leika? „Ja, það hjálpar auð­vitað,“ svarar Bjarni og hlær. „Við erum samt alls ekki að þessu fyrir pen­ing­inn. Þetta var bara hug­mynd sem kom upp hjá okkur Þorra trommara yfir bjór­glasi þegar við fórum að ræða það að okkur lang­aði til að fara að spila aftur saman. Við drifum í því að tala við hina strák­ana og þeir voru allir til í slag­inn, þannig að hér erum við í dag, sex vinir í góðum fíl­ing að und­ir­búa tón­leika.“

„Mér finnst að ef við viljum mót­mæla fram­göngu Ísra­els­manna eigi að banna þeim að taka þátt í keppn­inni, ekki snið­ganga keppn­ina þótt hún sé haldin í þeirra landi. Það er ein­hver hræsni í því.“

Aldrei verið svona góðir
Spurður hvort með­limir hljóm­sveit­ar­innar séu í jafn­góðu formi og þeir voru á vel­mekt­ar­dög­unum fyrir rúmum ára­tug full­yrðir Bjarni að þeir séu ennþá betri. „Ég get svarið það,“ segir hann. „Ég held ég hafi aldrei heyrt okkur svona góða.“
Hafið þið allir verið í tón­list­ar­iðkun síðan þið hættuð? „Já, já, við höfum verið að gera alls konar hluti í tón­list,“ segir Bjarni. „Allir að spila hingað og þangað. Við höfum bara ekki spilað saman sem band und­an­farin tíu ár. Ég og Valdimar höfum verið að spila dálítið saman og erum meira að segja búnir að taka upp plötu. En við höfum alltaf hist reglu­lega allir saman og rætt málin.“

Þannig að vin­áttan hefur hald­ist? Hvers vegna hættuð þið þá að spila saman á sínum tíma? „Eig­in­lega bara vegna þess að við vorum alltaf að spila fyrir sama fólkið og vorum orðnir svo­lítið leiðir á því,“ útskýrir Bjarni. „Við spil­uðum bara saman af því að okkur þótti það svo ógeðs­lega gaman. Þannig að við hættum því bara þegar það hætti að vera gaman. Það var engin drama­tík í kringum það.“

Spreng­ing í hlust­enda­hópnum með Barfly
Voru það ekki svaka­leg við­brigði að fara úr því að vera hljóm­sveit skóla­fé­laga í MR sem fannst bara gaman að spila saman í það að verða ein vin­sælasta hljóm­sveit lands­ins? „Jú, þetta gerð­ist frekar hratt,“ við­ur­kennir Bjarni. „Við áttum tvö lög sem voru mikið spiluð á X-inu og svo þegar Barfly kom út varð spreng­ing í hlust­enda­hópnum á nokkrum dögum.“
Bjarni vill alls ekki gang­ast við því að hinar skyndi­legu vin­sældir og nán­ast stöðugt tón­leika­hald hafi haft mikil áhrif á þá félaga. „Við ákváðum bara að gera þetta vel,“ segir hann. „Og ef ein­hver hringdi og bað okkur að spila sögðum við bara já. Við pældum ekki mikið í því að við værum vin­sælir. Vorum bara band sem spil­aði á tón­leikum þegar við vorum beðnir um það. Við litum aldrei á okkur sem ein­hverjar popp­stjörnur og það var aldrei mark­miðið að leggja Ísland að fótum okkar. Lífið breytt­ist í raun­inni voða­lega lítið, nema bara að við spil­uðum miklu oftar en við höfðum gert áður.“
Spurður hvort end­ur­komu­tón­leik­arnir um helg­ina séu upp­hafið á nýrri til­raun til að slá í gegn og hvort plata sé í und­ir­bún­ingi segir Bjarni að þeir séu bara ekki farnir að hugsa svo langt. „Við erum ekk­ert að pæla langt fram í tím­ann,“ full­yrðir hann. „En það hefur verið ógeðs­lega gaman hjá okkur og gengið mjög vel, þannig að maður veit aldrei hvað ger­ist. Hins vegar er það alveg á hreinu að þetta er alls ekki með­vituð til­raun til að reyna að slá í gegn aftur, við ætlum bara að hafa gaman að þessu.“

Hræsni gagn­vart Ísrael
Árið 2015 tók Bjarni þátt í und­ankeppni Eurovision með lag sitt Brotið gler og fékk tvo félaga sína úr Jeff Who? til að spila það með sér. Hann vill þó und­ir­strika að það sé mik­ill mis­skiln­ingur að Jeff Who? hafi ætlað sér að taka þátt í Eurovision. Það myndi aldrei ger­ast. En hvað finnst honum um kröf­una um að snið­ganga Eurovision í Ísrael á næsta ári vegna fram­göngu Ísraela gagn­vart Palest­ínu­mönnum? „Æ, ég veit það ekki,“ segir hann þreytu­lega. „Ég er ekki hlynntur því sem Ísrael er að gera gagn­vart Palest­ínu­mönnum, en þetta er samt bara söngvakeppni og þeir taka þátt í henni. Mér finnst að ef við viljum mót­mæla fram­göngu Ísra­els­manna eigi að banna þeim að taka þátt í keppn­inni, ekki snið­ganga keppn­ina þótt hún sé haldin í þeirra landi. Það er ein­hver hræsni í því.“
Ætlar þú að senda lag í und­ankeppn­ina fyrir næsta ár? „Ég bara veit það ekki,“ segir Bjarni hugsi. „Núna hugsa ég bara um æfing­una sem er að byrja og tón­leik­ana um helg­ina. Ég fer ekk­ert að pæla í Eurovision fyrr en þessir tón­leik­arnir eru búnir. Þeir eru það sem skiptir máli núna. Allt annað kemur bara í ljós.“

Fyrri tón­leikar Jeff Who? eru á Græna hatt­inum á Akureyri í kvöld, 21. sept­em­ber, og þeir seinni í Bæj­ar­bíói í Hafn­ar­firði annað kvöld.

Mynd / Lilja Jóns

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi