Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Veit að þetta er mitt síðasta tækifæri“

Á yfir­borð­inu virð­ist hinn 24 ára gamli Rík­harður Þór Guð­finns­son hafa allt sem ungan mann gæti dreymt um. Hann er í góðri vinnu, á fal­legt heim­ili og tvö heil­brigð börn. Í frí­stundum finnst honum fátt skemmti­legra en að spila golf og stunda veiði. Líklega myndu fáir giska á að aðeins eru rúmar tvær vikur frá því að Rík­harður, eða Rikki eins og hann er alltaf kall­aður, útskrif­að­ist af geð­deild.

„Veit að þetta er mitt síðasta tækifæri“
24.tbl.2018

Rikki dvaldi á geð­deild í kjöl­far fíkni­með­ferðar á Vogi, eftir að hafa fallið fyrir freist­ingum Bakkusar, ekki í fyrsta, annað eða þriðja sinn. Reyndar er sann­leik­ur­inn sá að með­ferð­irnar eru orðnar of margar til að hann hafi tölu á þeim. Rikki er einn af fjöl­mörgum ung­mennum sem glímt hafa við fíkni­vanda um ára­bil, en hann gagn­rýnir rétti­lega skort á úrræðum og þá bar­áttu við kerfið sem fólk sem kallar á hjálp þarf að heyja. Þegar hann komst á botn­inn í sumar og leit­aði sér hjálpar á geð­deild, end­aði hann í fanga­geymslum lög­regl­unnar.

Rikki lýsir neysl­unni sem skyndi­lausn við hverskyns vanda­málum. „Neyslan er leið til að flýja veru­leik­ann. Ef maður er að takast á við ein­hverja erf­ið­leika getur maður frestað þeim með því að taka nokkrar töflur. Ég var einn af þeim sem fannst ég aldrei eiga við neitt vanda­mál að stríða, ég stund­aði mína vinnu og var bara í góðum gír, að mínu mati, þrátt fyrir að fá mér öðru hvoru. En smátt og smátt fór fíknin að taka yfir allt. Hún yfir­gnæfði allar til­finn­ingar þar til allt fór að snú­ast um að redda sér næsta skammti. Nú síð­ast var ég far­inn að taka hvað sem ég komst í, en mest af lyf­seð­il­skyldum lyfjum. Það er lygi­legt hversu auð­velt er að verða sér úti um efni í dag, það þarf bara eitt sím­tal og því er reddað.“

Missti tökin í sumar

Í sumar tók að halla hratt undan fæti og Rikki fór að missa tökin á neysl­unni. Skuldir voru farnar að hlað­ast upp og hann missti meðal ann­ars umgengni við son sinn. Fjöl­skyldu og vini Rikka fór að gruna að ekki væri allt með felldu þegar hann fór að mæta illa í vinnu og sýna breytta fram­komu. „Ég var mjög ör og reiður, var snöggur upp og þoldi ekki að fólk væri að skipta sér af mér. Mér fannst ég ekki þurfa á neinni hjálp að halda og ætl­aði bara að díla við þetta sjálfur. Það sýnir sig hversu veru­leikafirrtur ég var orð­inn þegar amma mín lést í sumar, og í kistu­lagn­ing­unni og jarð­ar­för­inni var ég útúrkók­aður. Ég var með stæla við fólk og þegar systir mín sagði mér að haga mér hót­aði ég að berja hana. Þarna átt­uðu allir sig á hvað var í gangi og lágu í mér að leita mér hjálpar, fara í með­ferð. En ég sá ekk­ert vanda­mál. Helgina eftir fór ég svo á djam­mið upp á Skaga þar sem mamma mín býr, það end­aði með því að ég lagði allt í rúst heima hjá henni og lenti í slags­málum.“

Það sýnir sig hversu veru­leikafirrtur ég var orð­inn þegar amma mín lést í sumar, og í kistu­lagn­ing­unni og jarð­ar­för­inni var ég útúrkók­aður.

Endaði í fangageymslu eftir kall á hjálp

Á þessum tíma­punkti var fjöl­skyldan orðin örvænt­ing­ar­full og ráða­laus. Engin úrræði voru í boði þar sem Rikki var ekki til­bú­inn að gang­ast við vanda­mál­inu. Umræður voru hafnar um að svipta hann sjálf­ræði, en eftir helg­ina á Akranesi seg­ist Rikki sjálfur hafa fengið nóg. „Ég var kom­inn á botn­inn, og vissi að ef ég fengi ekki hjálp væri þetta hrein­lega bara búið. Ég gat ekki meira. Bróðir minn hringdi nokkur sím­töl og reyndi koma mér inn ein­hvers staðar, en það var hvergi pláss. Það er alltaf erfitt að kom­ast inn, en sér­stak­lega á sumrin vegna sum­ar­leyfa starfs­fólks. Honum var sagt að ég gæti komið í við­tal á Vog tveimur vikum seinna, en það var ekki mögu­leiki að ég gæti beðið svo lengi. Pabbi og konan hans ákváðu því að keyra mig niður á geð­deild og reyna sitt besta til að útskýra fyrir þeim ástandið.“

Þar komu þau að lok­uðum dyrum. Rikki var undir áhrifum en slíkt er undir engum kring­um­stæðum leyfi­legt á geð­deild­inni. Honum var vísað út, en var allt annað en sáttur. „Ég reidd­ist við þessa lækna sem ætl­uðu að henda mér út, með engin önnur úrræði fyrir mig. Ég sagði við þá að ef ég kæm­ist ekki þarna inn myndi ég fara bein­ustu leið upp í Heiðmörk, setja pústið inn í bíl­inn og enda þetta allt.“

Atburða­rásinni eftir það mætti helst líkja við atriði úr bíó­mynd. Tveir lög­reglu­bílar renndu í hlað, Rikki var hand­járn­aður og leiddur út í bíl. Eftir stóðu pabbi hans og stjúp­móðir, sem vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Útskýr­ing­arnar sem þau fengu voru að ástandið hefði verið metið sem svo að Rikki væri of hættu­legur sjálfum sér, en þetta væri eina úrræðið í boði, að vista hann í fanga­geymslu. „Mér var hent inn í klefa, í ein­angrun á Hverf­is­göt­unni. Ég var algjör­lega brjál­aður, og heimt­aði að þeir hleyptu mér út en fékk engin við­brögð. Eftir að hafa staðið og öskrað á verð­ina í marga klukku­tíma logn­að­ist ég út af og sofn­aði, en vakn­aði fljót­lega aftur í svita­baði og brjál­uðum frá­hvörfum,“ segir Rikki þegar hann er beð­inn um að lýsa aðstæðum. „Ég var ekki undir neinu eft­ir­liti, fjöl­skyldan fékk ekki að hafa sam­band við mig og eng­inn vissi hvað væri í gangi. Þetta var mjög slæm og nið­ur­lægj­andi upp­lifun.“ Lögum sam­kvæmt má ekki halda ein­stak­lingum í fanga­geymslu lengur en í sól­ar­hring án úrskurðar dóm­ara, og þessi sól­ar­hringur var nýttur til hins ýtrasta í til­felli Rikka. Eftir 24 klukku­stundir í ein­angrun var hann hand­járn­aður á ný og fluttur í lög­reglu­fylgd aftur niður á geð­deild. Hann seg­ist ekki hafa fengið neinar skýr­ingar á þessum atburðum eða hvort þetta telj­ist eðli­legir verk­ferlar, en telur þetta lýsandi fyrir ástandið í geð­heil­brigð­is­málum á Íslandi. „Það vantar klár­lega ein­hver úrræði, það á ekki að líð­ast að fólki á svona við­kvæmum stað sé vísað frá þegar það leitar sér aðstoðar. Hvað þá að vera skellt í hand­járn og hent í fang­elsi. Ég skil ekki að þrátt fyrir alla þá umræðu sem hefur átt sér stað síð­ustu mán­uði virð­ist ástandið aðeins fara versn­andi. Til dæmis var verið að loka geð­heilsu­deild­inni innan Hug­arafls sem ég veit að hefur reynst mörgum af mínum félögum vel. Það er ljóst að miklar breyt­ingar verða að eiga sér stað í þessu ónýta kerfi.“

Ég var algjör­lega brjál­aður, og heimt­aði að þeir hleyptu mér út en fékk engin við­brögð. Eftir að hafa staðið og öskrað á verð­ina í marga klukku­tíma logn­að­ist ég út af og sofn­aði, en vakn­aði fljót­lega aftur í svita­baði og brjál­uðum frá­hvörfum.

Byrjaði að drekka í 8. bekk

Rikki er fæddur árið 1994. Hann ólst upp í Grinda­vík og er yngstur í hópi fjög­urra systk­ina. Skóla­gangan gekk vel framan af, hann æfði fót­bolta frá unga aldri og var tal­inn einn efni­leg­asti leik­maður bæj­ar­ins. Þegar hann var 12 ára varð fjöl­skyldan fyrir miklu áfalli þegar mamma hans, stoð og stytta fjöl­skyld­unnar, fékk heila­blóð­fall og var vart hugað líf. Í kjöl­farið tók við erfitt tíma­bil og breyttar heim­il­is­að­stæður sem reyndu mikið á alla fjöl­skyldu­með­limi. „Við systk­inin höfum öll upp­lifað okkar skerf af erf­ið­leikum og þegar ég hugsa til baka eru veik­indi mömmu upp­hafið að mörgum þeirra. Hún var sú sem sá alltaf um allt og hélt öllu gang­andi, svo skyndi­lega var fót­unum bók­staf­lega kippt undan henni, og þar með okkur öllum í fjöl­skyld­unni. Þarna hefði klár­lega þurft að vera eitt­hvað utan­um­hald, eitt­hvert teymi eða ráð­gjöf sem okkur hefði átt að standa til boða. En það var ekk­ert svo­leiðis. Fljót­lega eftir þetta skildu mamma og pabbi, ég hætti í fót­bolt­anum og fór að sækja í verri félags­skap,“ rifjar Rikki upp.
Ekki leið á löngu þar til allt fór úr bönd­unum. „Það var í 8. bekk, rétt eftir að mamma veikt­ist, sem fyrst var komið með mig heim í lög­reglu­fylgd eftir skóla­ball. Ég byrj­aði að drekka áfengi á þessum tíma og fljót­lega fór vina­hóp­ur­inn að fikta við eit­ur­lyf. Um leið og ég próf­aði í fyrsta sinn var ekki aftur snúið.“

„Í byrjun sum­ars tók ég inn of mikið magn af róandi lyfjum, fékk flog og lenti næstum í hjarta­stoppi. Ég fór á spít­ala og þegar fjöl­skylda mín frétti af þessu var þeirra fyrsta hugsun auð­vitað að þetta væri tengt neyslu, en mér tókst að sann­færa þau um að þetta væri eitt­hvað allt annað, flensa eða álíka“

Mætti á 12 spora-fundi í bullandi neyslu

Sumarið eftir útskrift úr grunn­skól­anum fór Rikki í sína fyrstu með­ferð. „Ég fór ekki þangað inn af fullum hug, var í raun að bíða eftir því að kom­ast út til að geta fengið mér aftur. Mér fannst ég ekki eiga við neitt vanda­mál að stríða og hafa fulla stjórn á þessu,“ segir hann.

Næstu árin var Rikki inn og út úr með­ferðum, bæði í styttri og lengri tíma, en tókst inn á milli að halda sér edrú. Á síð­ustu árum hefur hann eign­ast tvö börn, stundað sína vinnu af krafti og fjöl­skyldan stóð í þeirri trú að allt væri í góðu lagi. En reyndin var ekki sú, og að eigin sögn var felu­leik­ur­inn það sem átti eftir að reyn­ast honum verst.

„Mér tókst að að fela þetta fyrir fólk­inu í kringum mig, sem stóð í þeirri trú að ég væri full­kom­lega edrú. Ég mætti jafn­vel á 12 spora-fundi en var samt í bull­andi neyslu. Í byrjun sum­ars tók ég inn of mikið magn af róandi lyfjum, fékk flog og lenti næstum í hjarta­stoppi. Ég fór á spít­ala og þegar fjöl­skylda mín frétti af þessu var þeirra fyrsta hugsun auð­vitað að þetta væri tengt neyslu, en mér tókst að sann­færa þau um að þetta væri eitt­hvað allt annað, flensa eða álíka. Svo hélt ég bara áfram að éta pillur þegar ég var útskrif­aður. Felu­leik­ur­inn er nefni­lega svo hættu­legur. Það er ekki fyrr en allt var í tómu tjóni, ég kom­inn í skuldir og mjög harða neyslu að ég var fyrst til­bú­inn að við­ur­kenna vand­ann og þiggja hjálp. En þá er það oft hæg­ara sagt en gert.“

Færibandavinna á Vogi

Af tveimur slæmum kostum seg­ist Rikki að vissu leyti hafa verið hepp­inn að málin þró­uð­ust á þennan veg. „Ég komst að minnsta kosti inn á geð­deild að lokum og fékk hjálp, ólíkt mörgum sem vísað er frá. Það átti að loka á mig og segja „sorrí, vinur“.

Ég hef ekk­ert út á þá starf­semi að setja sem þar fer fram. Þar er unnið svo mikið með and­legu hlið­ina og farið miklu dýpra. Vogur er meiri færi­banda­vinna, þar koma sjúk­lingar inn og eru allir með­höndl­aðir eins, þetta er í raun afeitr­un­ar­stöð. Ég myndi vilja sjá miklu meira aukið fjár­magn í fíknig­eð­deildir lands­ins og finnst sorg­legt að sjá ástandið í þessum mála­flokki eins og staðan er í dag.“

Rikki var inn á geð­deild­inni í um tvær vikur áður en hann var sendur heim í nokkra daga, þar til hann komst inn á Vog. „Ég var þarna innan um virki­lega veika ein­stak­linga. Einn af sjúk­ling­unum tal­aði sífellt um Díönu prinsessu og var sann­færður um að hún sæti á rúm­inu hjá sér á kvöldin og að hann hefði verið með í bílnum kvöldið sem hún dó. Þetta var ekki sér­stök fíknig­eð­deild heldur almenn geð­deild, og dvölin þar var mér erfið þar sem frá­hvörfin voru svo rosa­leg. Þrátt fyrir það var ég þakk­látur fyrir að hafa fengið þessa hjálp og var og er harð­á­kveð­inn að standa mig. Ég veit að nú þarf ég að leggja öll spil á borðið því þetta er mitt síð­asta tæki­færi. Neyslan og ruglið var orðið svo mikið, að ef ég hætti ekki núna er þetta búið.“

Tilbúinn að takast á við þetta fyrir lífstíð

Eins og áður hefur komið fram á Rikki fjöl­margar með­ferðir að baki, vel á annan tug. Í þetta sinn segir hann hug­ar­farið breytt því sem áður hafi verið. „Áður fyrr leit ég alltaf á edrú­mennsk­una sem eitt­hvað sem yrði aðeins til styttri tíma en ekki lang­tíma­verk­efni. Þetta er í fyrsta sinn sem ég er til­bú­inn að takast á við þetta fyrir lífs­tíð. Áður var ég alltaf með þá hugsun bak við eyrað að ég þyrfti bara að vera edrú í kannski 10 ár, þá yrðu krakk­arnir orðnir eldri og þá væri í lagi að fá sér smá­vegis aftur. Þessi hugs­un­ar­háttur varð mér að falli aftur og aftur, en núna er ég í þessu á breyttum for­sendum. Ég ætla að taka þetta alla leið núna og fylgja prógramm­inu, leggja allt í hend­urnar á æðri mætti. Nú tekur við vinna hjá mér við að koma líf­inu í eðli­legt horf, byggja upp sam­band við börnin mín og vera góður pabbi, mæta í vinnu og standa mína plikt. Það er satt sem sagt er, að þessi sjúk­dómur leiði ekki til neins nema geð­veiki eða dauða. Ég hef fengið annað tæki­færi og ætla mér að nýta það vel,“ segir Rikki að lokum.

Ásgeir Þór Ásgeirs­son, yfir­lög­reglu­þjónn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Við vinnslu frétt­ar­innar hafði Mannlíf sam­band við Lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að fá við­brögð við frá­sögn Ríkharðs. 

„Engin nýlunda að ein­stak­lingar séu vistaðir í fanga­geymslu þegar betur færi á að aðrar leiðir væru mögu­legar“

Ásgeir Þór Ásgeirs­son, yfir­lög­reglu­þjónn, segir mál­efni fólks með geð­rænan eða tví­þættan vanda vera Lög­regl­unni vel kunnug og að emb­ættið hafi áður bent á skort á úrræðum. „Það er heldur engin nýlunda að ein­stak­lingar séu vistaðir í fanga­geymslu þegar betur færi á að aðrar leiðir væru mögu­legar. Lög­reglan getur ekki tjáð sig um umrætt mál, sem er til­efni umfjöll­un­ar­innar, en getur stað­fest að sam­bæri­leg atvik hafa komið upp. Þá er inn­grip lög­reglu oft eina úrræðið, en vistun í fanga­geymslu við þær aðstæður snýr að öryggi við­kom­andi, sem kann að vera hættu­legur sjálfum sér og/eða öðrum,“ segir hann. Varðandi álag á geð­deildum og skort á lang­tíma­úr­ræðum í búsetu­málum fólks með geð­rænan eða tví­þættan vanda telur Ásgeir nægja að benda á orð þeirra sem starfa í heil­brigð­is­kerf­inu og að undir þau megi taka. „Svo virð­ist sem margir lendi utan kerfis, en við það má ekki una og brýnt er að úr því verði bætt.“

/Viðtal: Margrét Björk Jóns­dóttir
/Myndir: Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi