Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Styðja sína menn í blíðu og stríðu

6-0 tap gegn Sviss minnkar ekki vonir íslensks fót­bolta­á­huga­fólks.

Styðja sína menn í blíðu og stríðu
||||

Íslenska karla­lands­liðið í fót­bolta mætir Belgum, bronslið­inu af HM í sumar, á Laug­ar­dals­velli í kvöld í þjóða­keppni UEFA. Fyrsti leikur liðs­ins í keppn­inni, þegar þeir töp­uðu 6-0 fyrir Sviss um helg­ina, gaf ekki ástæðu til bjart­sýni um gengi liðs­ins í þjóða­kepnn­inni. Spark­spek­ingar hafa keppst við að úthúða lið­inu fyrir lélega frammi­stöðu og eru ekki von­góðir um góða nið­ur­stöðu í leiknum í kvöld. En hvað finnst hinum almenna stuðn­ings­manni liðs­ins um frammi­stöðu þess og hvaða vænt­ingar hefur fólk til leiks­ins í kvöld? Mannlíf sló á þráð­inn til nokk­urra eld­heitra aðdá­enda liðs­ins og for­vitn­að­ist um hvaða vænt­ingar það fólk hefði til frammi­stöðu þess í kvöld.

Álfrún Pálsdóttir, ritstjóri Glamour

Álfrún Páls­dóttir, rit­stjóri Glamour.

Hvernig líst þér á möguleika íslenska liðsins í kvöld?

„Þetta snýst allt um vænt­inga­stjórnun og eftir laug­ar­dag­inn hef ég stillt þeim alger­lega í hóf. En fyrir mér snýst fót­bolti um að styðja í blíðu og stríðu þó 6-0 tap sé erfitt að kyngja. Ég hef trú á því að strák­arnir gíri sig í gang.“

Heldurðu að þeir eigi möguleika á sigri?

„Það er alltaf mögu­leiki – eigum við ekki að segja það bara? Það getur vel verið að Belgarnir hafi horft á síð­asta leik Íslands og talið sér trú um að þetta verði léttur leikur í kvöld – og strák­arnir geta þá strítt þeim og sýnt úr hverju þeir eru gerðir. Er ekki ágætt að vona það bara?“

En ef þeir tapa stórt aftur hefur það áhrif á stuðning þinn við liðið?

„Nei, það gerir það ekki. Auðvitað er skemmti­legra að halda með liði sem vinnur og það er meiri stemn­ing. En ég per­sónu­lega þoli ekki stuðn­ings­menn sem sitja bara og tuða í stúkunni. Stuðn­ingur er ekki stuðn­ingur nema hann sé í blíðu og stríðu.“

________________________________________________________________

Páll Valsson, útgáfustjóri Bjarts

Páll Valsson, útgáfu­stjóri Bjarts.

Hvernig líst þér á möguleika íslenska liðsins í kvöld?

„Ég lít svo á að við eigum sæmi­lega mögu­leika á að halda jöfnu. En þá þarf allt að ganga upp og það væri mik­ill sigur.“

Setti frammistaðan í Sviss ekkert strik í reikninginn í trú þinni á liðið?

„Fallið í Sviss var kannski óhjá­kvæmi­legt og hlaut að koma, þótt það væri meira og hærra en maður reikn­aði með. En hafa ber í huga að þetta er ein erf­ið­asta próf­raun sem hægt er að hugsa sér, að mæta einu albesta lands­liði heims strax eftir þetta feikn­ar­lega tap.“

En þú hefur trú á að strák­arnir rífi sig upp og nái jafn­tefli við bronsliðið af HM í sumar?

„Ég get ekki sagt að ég sé bjart­sýnn og kalt mat segir mér að Belgarnir vinni öruggan sigur. En ég von­ast auð­vitað eftir betri frammi­stöðu en í Sviss og við megum ekki gleyma því að það er engin skömm að tapa fyrir Belgum, síður en svo.“

________________________________________________________________

Alexandra Briem, varaborgarfulltrúi Pírata

Alex­andra Briem, vara­borg­ar­full­trúi Pírata.

Hvernig líst þér á möguleika íslenska liðsins í kvöld?

„Þetta verður erfitt, en Íslenska liðið er öfl­ugt og hefur oft sýnt það að það getur vel keppt við öfl­ug­ustu fót­boltalið í heimi. Það kannski bara veltur mest á því hvernig liggur á þeim. Spurning um að trúa á sig­ur­inn.“

En ef þeir tapa stórt aftur hefur það áhrif á stuðning þinn við liðið?

„Nei, fjanda­kornið, þetta er okkar lið og þarf einmitt mest á stuðn­ingi og til­trú að halda þegar illa gengur. Það er auð­velt að halda með liði þegar allt gengur eins og í draumi. Ef við stöndum ekki með þeim þegar illa gengur, getum við þá einu sinni sagt að við séum alvöru stuðn­ings­fólk?“

Viltu spá um lokatölur?

„Ég segi 2-1 fyrir Ísland.“

________________________________________________________________

Anna Lea Frið­riks­dóttir, útgef­andi hjá Sölku.

Anna Lea Friðriksdóttir, útgefandi hjá Sölku

Hvernig líst þér á möguleika íslenska liðsins í kvöld?

„Ég er, til að orða það pent, hæfi­lega bjart­sýn. Belgar eru með svaka­legt lið – ég spáði þeim sigri á HM í sumar. En svo er það nú oft þannig að íslenska liðið stendur sig best á móti sterkum and­stæð­ingum. Og þeir ættu nátt­úru­lega að koma snar­vit­lausir í þennan leik eftir síð­ustu úrslit.“

Heldurðu að þeir eigi möguleika á sigri?

„Já, það er alltaf mögu­leiki á sigri í fót­bolta­leik!“

En ef þeir tapa stórt aftur hefur það áhrif á stuðning þinn við liðið?

„Nei, alls ekki. Í blíðu og stríðu er það ekki?“

Viltu spá um lokatölur?

„Helst ekki! En segjum 1-1 fyrir Ísland.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi