Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Við erum enn í sárum“

Kvik­myndin Utoya 22. juli, sem byggir á frá­sögnum eft­ir­lif­enda voða­verk­anna í Útey, verður frum­sýnd í Bíó Paradís í kvöld. Aðal­leik­konan vonar að myndin verði til þess að atburð­irnir gleym­ist aldrei.

„Við erum enn í sárum“
|
Andrea Berntzen fer með hlut­verk Kaju í mynd­inni en hún verður við­stödd frum­sýn­ing­una í kvöld. Mynd / Agnete Brun

Í ár eru sjö ár liðin frá voða­verk­unum í Ósló og Útey þegar 77 manns féllu fyrir hendi fjöldamorð­ingj­ans og hægri öfga­manns­ins Anders Breivik, átta í sprengju­árás í stjórn­ar­ráðs-hverf­inu í Ósló og 69 í skotárás í Útey, þar sem aðal­skot­mark Breiviks voru sum­ar­búðir ungra jafn­að­ar­manna. Í kvik­mynd­inni Utoya 22. juli eru þessir skelfi­legu atburðir rifj­aðir upp með augum ung­lings­stúlkunnar Kaju sem berst fyrir lífi sínu á eynni um leið og hún reynir að bjarga yngri systur sinni. Mannlíf spjall­aði við Andreu Berntzen sem fer með hlut­verk Kaju í mynd­inni en hún verður við­stödd frum­sýn­ing­una í kvöld.

Utoya 22. juli er fyrsta kvik­myndin sem þú leikur í, hvernig var að taka að sér svona krefj­andi fyrsta verk­efni? „Sko, þetta er svo­lítið flókin spurn­ing, því þar sem þetta er einmitt fyrsta myndin sem ég leik í þá fannst mér það spenn­andi. En út af umfjöll­un­ar­efn­inu var þetta mjög erfitt líka og óhugn­an­legt að átta sig á því að ég er núna á svip­uðum aldri og krakk­arnir voru sem urðu fyrir árásinni. Ég var auð­vitað svo ung þegar atburð­urnir áttu sér stað, bara 12 eða 13 ára.“

„Ef atburðir seinni heims­styrj­ald­ar­innar eru und­an­skildir hefur sjálf­sagt ekk­ert haft jafn­hræði­leg áhrif á okkur Norðmenn sem þjóð og þessi voða­verk.“

Manstu vel eftir þeim? „Já, við fjöl­skyldan vorum að keyra heim úr sum­ar­hús­inu okkar þegar greint var frá sprengju­árásinni í útvarps­fréttum. Ég lagði vel við hlustir þar sem ég kann­að­ist við stað­inn þar sem spreng­ingin varð. Næsta dag kom í ljós að sami maður bar ábyrgð á morð­unum í Útey. Ég var mjög hrædd lengi vel eftir þetta, til dæmis við að vera ein á ferli. Samt er skrítið að segja frá því að þótt ég væri nógu gömul til að átta mig á hvað hafði gerst var það eig­in­lega ekki fyrr en ég lék í mynd­inni sem ég virki­lega skildi hvað þessir atburðir eru skelfi­legir. Ef atburðir seinni heims­styrj­ald­ar­innar eru und­an­skildir hefur sjálf­sagt ekk­ert haft jafn­hræði­leg áhrif á okkur Norðmenn sem þjóð og þessi voða­verk. Við erum enn í sárum.“

Var tví­stíg­andi við að leika í mynd­inni
Kvik­myndin byggir á frá­sögnum eft­ir­lif­enda í Útey og Andrea við­ur­kennir að vegna umfjöll­un­ar­efn­is­ins hafi hún verið tví­stíg­andi gagn­vart því að taka að sér hlut­verkið. Meðal ann­ars af ótta við hvernig unnið yrði úr því og hvaða áhrif það hefði á eft­ir­lif­endur og aðstand­endur. „Þegar ég fór í áheyrn­arprufur vissi ég reyndar ekki um hvað verk­efnið sner­ist. Það var ekki fyrr en í þriðju pruf­unni sem ég fékk að vita það og þá varð ég smeyk; veru­lega efins um að ég vildi leika í mynd sem sner­ist um voða­verkin í Útey. En þegar leik­stjór­inn sendi mér skila­boð þar sem hann útskýrði að hún kæmi til með að ein­blína á fórn­ar­lömbin en ekki ódæð­is­mann­inn þá sner­ist mér hugur. Mér fannst sú nálgun ein­hvern veg­inn vera rétt til að segja þessa sögu.“

Myndin var að mestu leyti tekin í einni töku og að sögn Andreu voru flestir leik­ar­arnir til­tölu­lega óreyndir. Við komum því aftur að spurn­ing­unni í byrjun, það er að segja hvort verk­efnið hafi ekki reynt á? „Jú, við vorum heila tvo mán­uði að æfa og þar sem ég er ekki menntuð leik­kona gat ég til dæmis ekki beitt þeirri tækni sem lærður leik­ari býr yfir og hefði getað nýtt sér til að nálg­ast hlut­verk Kaju. Þess í stað reyndi ég að setja mig í hennar spor og ímynda mér hvernig ég brygð­ist við ef alvöru­árás yrði gerð. Sumt í tök­unum var reyndar óhugn­an­lega raun­veru­legt, þótt það sé auð­vitað ekk­ert í lík­ingu við það sem gerð­ist í alvör­unni.“

Andrea seg­ist einmitt vona að myndin eigi eftir að fá áhorf­endur til að skilja betur hvaða hel­víti raun­veru­legu fórn­ar­lömbin upp­lifðu á Útey og sýni þeim í kjöl­farið meiri skiln­ing og samúð en hefur verið gert síð­ustu ár. „Það eru fórn­ar­lömb sem eru enn að díla við áfallastreituröskun eftir þetta. Krakkar sem er verið að segja við að þau verði að fara að herða sig og lifa eðli­legu lífi, sem er ótrú­lega grimmd­ar­legt að segja. Ég vona að myndin breyti því. Að hún opni augu fólks og verði kom­andi kyn­slóðum áminn­ing um það sem gerð­ist, rétt eins og seinni­heim­styrj­ald­ar­myndir veita okkur inn­sýn í hroða­lega hluti. Atburð­irnir í Útey mega alls ekki gleym­ast.“

Mynd / Ole Garbo

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi