Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fimm ára drengur fann amfetamín á leikskólalóð

Fimm ára drengur í Kópavogi fann á mánu­dag poka með hvítu dufti á lóð leik­skól­ans Fögru­brekku og setti hluta af því upp í sig. Farið var með dreng­inn á Barna­spít­ala Hrings­ins þar sem hann var skoð­aður og efni pokans greint. Efnið í pok­anum reynd­ist vera amfetamín.

Fimm ára drengur fann amfetamín á leikskólalóð
|
„Það var hringt í okkur frá leik­skól­anum um hálf fjögur leytið á mánu­dag og okkur sagt að sonur okkur hefði fundið poka með hvítu dufti á leik­skóla­lóð­inni og sett eitt­hvað af því upp í sig.“

„Það var hringt í okkur frá leik­skól­anum um hálf fjögur leytið á mánu­dag og okkur sagt að sonur okkur hefði fundið poka með hvítu dufti á leik­skóla­lóð­inni og sett eitt­hvað af því upp í sig,“ segir Kristinn Ólafur Smárason, faðir drengs­ins. „Það upp­götv­að­ist þegar hann kom með pok­ann til kenn­ar­ans og bað um vatns­glas því honum fannst inni­haldið svo bragðvont. Starfs­fólk leik­skól­ans hringdi í lög­regl­una og síðan í okkur for­eld­rana í kjöl­farið. Þau ítrek­uðu að það væri allt í lagi með dreng­inn en engu að síður brá mér og ég hljóp út á leik­skóla, en ég bý mjög stutt frá.“

Kristinn seg­ist strax hafa séð að það virt­ist ekk­ert ama að drengnum en hann hafi samt hringt í Eit­ur­efna­mið­stöð Land­spít­al­ans til að leita upp­lýs­inga um hvað hann ætti að gera. Þar fékk hann þær upp­lýs­ingar að hann skyldi fara með barnið á bráða­mót­töku Barna­spít­ala Hrings­ins og taka pok­ann með sér svo hægt væri að greina inni­hald hans. Á bráða­mót­tök­unni var dreng­ur­inn grand­skoð­aður en allar nið­ur­stöður prófa sýndu að engin eit­urá­hrif væru í lík­ama hans. „Sem betur fer hafði svo lítið farið upp í hann að það hafði engin mæl­an­leg áhrif,“ segir Kristinn.

„Ég hef oft séð krakka á mennta­skóla­aldri og grunn­skóla­aldri hanga þarna og reykja og spjalla. En mig grun­aði aldrei að þau væru að neyta fíkni­efna.“

Tvær lög­reglu­konur mættu á bráða­mót­tök­una og tóku pok­ann með sér til grein­ingar inni­halds­ins. Klukku­tíma síðar lá sú nið­ur­staða fyrir að í pok­anum væri amfetamín.

Kristinn segir að lóð leik­skól­ans sé vin­sæll sam­komu­staður ung­linga á kvöldin, en honum hafi aldrei dottið í hug að amast við því þótt hann búi við hlið leik­skól­ans. „Ég hef oft séð krakka á mennta­skóla­aldri og grunn­skóla­aldri hanga þarna og reykja og spjalla,“ segir hann. „En mig grun­aði aldrei að þau væru að neyta fíkni­efna.“

Kristinn seg­ist ekki vita hvert fram­hald máls­ins verður en hann muni alla­vega í fram­tíð­inni láta lög­regl­una vita sjái hann ung­linga á lóð­inni. „Ég geri það í sam­ráði við leik­skóla­stjór­ann sem að sjálf­sögðu harmar atvikið mikið. En ég tek fram að ég sakast ekk­ert við leik­skól­ann út af þessu máli. Ég veit að þau leggja sig fram um að hindra svona upp­á­komur og fara yfir lóð­ina á hverjum á morgni, en það er auð­vitað erfitt að fylgj­ast með öllu.“

Í fram­hald­inu hefur feng­ist leyfi hjá bygg­ing­ar­full­trúa Kópa­vogs­bæjar til að porti á lóð leik­skól­ans verði fram­vegis lokað á kvöldin, en Kristinn seg­ist ekki búast við að aðrir eft­ir­málar verði af mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi