Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Heilræði fyrir fasteignakaupendur

Fast­eigna­mark­að­ur­inn er síbreyti­legur og brýnt að fylgj­ast vel með og leita til ráð­gjafa ef á þarf að halda. Við hittum Lindu Guð­munds­dóttur Lyngmo, vöru­stjóra ein­stak­lings­lána hjá Íslands­banka, sem hefur ýmis góð ráð fyrir fast­eigna­kaup­endur.

Heilræði fyrir fasteignakaupendur
fast­eigna­blað Mannlífs

„Fólk sem er með lán á hús­næð­inu sínu á alltaf að vera með­vitað um stöðu lán­anna og helst að vita hversu hátt hlut­fall þau eru af fast­eigna­mati eign­ar­innar á hverjum tíma. Þetta getur skipt máli þegar kemur að lækkun kostn­aðar, t.d. þegar heild­ar­fjár­mögnun eignar fer undir 70% af fast­eigna­mati, er hægt að óska eftir lækkun vaxta á við­bót­ar­láni, sé það til staðar.

Einnig mælum við með að fólk yfir­fari reglu­lega vexti og afborg­anir lána því mark­aðs­að­stæður breyt­ast, vextir geta breyst og það getur komið sá tíma­punktur að það borgi sig fyrir fólk að end­ur­fjár­magna lánin sín, sem leiðir til lægri kostn­aðar. Mörg lán eru með upp­greiðslu­gjaldi en vegna þess hvað vextir á hús­næð­is­lánum hafa lækkað mikið und­an­farin ár getur samt borgað sig að end­ur­fjár­magna. Mjög fljót­legt er að fara yfir þá mögu­leika með ráð­gjafa bank­ans í hús­næð­is­þjón­ustu,“ segir Linda.

„Síðast en ekki síst er sá mögu­leiki til staðar að greiða auka­lega inn á lánin, það er í raun ekk­ert annað en lang­tíma­sparn­aður. Við hvetjum alla til að kynna sér úrræði rík­is­ins um notkun á sér­eign­ar­sparn­aði hvað þetta varðar og athuga hvort það sé eitt­hvað sem henti þeim, hafi þeir ekki nýtt sér þetta úrræði nú þegar. Ef fólk er í ein­hverjum vafa um sín mál,hvetjum við það ein­dregið til þess að hafa sam­band við ráð­gjafa í hús­næð­is­þjón­ustu bank­anna og fá frek­ari aðstoð og útskýr­ingar.“

Linda segir jafn­framt að varð­andi íbúða­verð séu grein­endur sam­mála um að hækk­un­ar­taktur und­an­far­inna mán­aða sé að ná ákveðnu jafn­vægi. Verð á sér­býlum hækkar meira en verð á eignum í fjöl­býli og verð á eignum úti á landi hækkar meira en verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hvernig þessi þróun komi til með að verða er erfitt að spá fyrir um. Það verði tím­inn að leiða í ljós.

Kjör við kaup á fyrstu eign

Er hag­stætt að kaupa fyrstu eign í dag? „Síð­ast­liðin þrjú ár hefur verið mik­ill upp­gangur á íslenskum hús­næð­is­mark­aði,“ segir Linda. „Eft­ir­spurn eftir hús­næði hefur verið mikil sem hefur orðið til þess að verð hefur hækkað umtals­vert á eignum um allt land. Samkvæmt nýj­ustu tölum frá Hagstofu Íslands og Þjóðskrá Íslands hefur aðeins dregið úr þessum hækk­unum, að minnsta kosti á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Það er erfitt að svara þess­ari spurn­ingu með fullri vissu þar sem ómögu­legt er að spá fyrir um hvernig mark­að­ur­inn muni þró­ast á kom­andi mán­uðum eða árum.

Samkvæmt nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Íbúð­ar­lána­sjóðs um hús­næð­is­mark­að­inn kemur fram að fyrstu kaup hafa ekki verið fleiri innan árs­fjórð­ungs síðan 2008, eða svo langt aftur sem tölur Þjóð­skrár Íslands ná. Fyrstu íbúða­kaupum hefur almennt fjölgað meira en ann­ars konar íbúða­kaupum síðan árið 2010. Mögulega á vaxtaum­hverfið stóran þátt í þess­ari þróun en vextir á íbúða­lánum hafa hald­ist lágir und­an­farin ár í sögu­legu sam­hengi. Verð á íbúðum hefur ekki hækkað jafn­mikið í ár og í fyrra sem gæti haft sitt að segja. Einnig bjóða bank­arnir, sem og hið opin­bera, upp á sér­stök úrræði fyrir fyrstu kaup­endur.

Þegar þetta er allt tekið saman þá verður það von­andi til þess að fyrstu kaup­endur eigi greið­ari aðgang inn á fast­eigna­mark­að­inn heldur en ella.“

Hvernig eru horf­urnar í dag fyrir fast­eigna­eig­endur varð­anda kaup og kjör? „Líkt og fram hefur komið hafa vextir verið frekar lágir í sögu­legu sam­hengi, fast­eigna­mat hefur hækkað umtals­vert und­an­farin ár og hefur kostn­aður við end­ur­fjár­mögnun lækkað umtals­vert miðað við það sem áður þekkt­ist. Þessi atriði, ásamt öðrum, gera það að verkum að það er til­tölu­lega hag­stætt fyrir fólk að hreyfa við lán­unum sínum, end­ur­fjár­magna, lækka vexti á lán­unum sínum og svo fram­vegis.“

Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi