Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gluggarnir síbreytileg listaverk

Sumarhús við Þing­valla­vatn.

Við Þing­valla­vatn er sum­ar­húsa­þyrp­ing sem á sér langa sögu. Húsin eru fjöl­breytt og bera þess merki að hafa vaxið með eig­endum sínum og breyst í tím­ans rás, allt eftir þörfum íbú­anna. Við kíktum í heim­sókn í sum­ar­hús við vatnið og hittum þar fyrir tvær hressar systur sem saman hafa inn­réttað húsið með góðum árangri en húsið er í eigu ann­arrar þeirra og eig­in­manns hennar.

Stofan heillaði mest

Eig­end­urnir heill­uð­ust strax af aðal­rým­inu, stof­unni sjálfri og þar sem afar gest­kvæmt er hjá þeim og fannst þeim mik­il­vægt að eign­ast sum­ar­hús með stórri stofu og var það útgangs­punkt­ur­inn hjá þeim þegar þau hófu leit­ina að sum­ar­hús­inu. Kamínan í stof­unni þótti þeim einnig mikið aðdrátt­ar­afl. Húsið er dæmi­gert sum­ar­hús fyrir þetta svæði að því leyt­inu til að bygg­ing­ar­hlut­arnir eru mis­gamlir. Eldri bygg­ingin hýsir svefn­her­bergið, for­stofu og snyrt­ingu en stofan og eld­húsið er við­bygg­ing sem byggð var árið 2002. Hjónin keyptu húsið í lok sum­ars árið 2015 og hófust þá fram­kvæmdir sem stóðu yfir alla vet­ur­inn. Klæðn­ing­arnar að innan voru ýmist stand­andi pan­ell eða lág­réttur og ákváðu þau að taka hann af og setja upp nýjan til þess að rýmin myndu verða sterk­ari heild. Einnig settu þau upp vegg til þess að skilja að gang­inn aðbað­her­berg­inu svo það blasir ekki lengur við í stof­unni. Með til­komu veggs­ins mynd­að­ist rými sem var til­valið sem lítið sjón­varps­rými og eru þau þar með sjón­varp og svefn­sófa. Gömlu bygg­ing­una þurftu þau að laga tölu­vert en lokað hafði verið fyrir glugga í öðru svefn­her­berg­inu sem þau ákváðu að opna fyrir aftur. Veggirnir voru einnig mál­aðir en höfðu verið ómeð­höndl­aðir áður og það sama á við mig um alla glugga.

Gamlir munir gefa persónulegt yfirbragð

Syst­urnar hafa hjálp­ast að við að inn­rétta húsið og segj­ast hafa átt margar gæða­stundir þar saman. Hlut­irnir koma úr ólíkum áttum og seg­ist hús­móð­irin hafa safnað þeim yfir heilt ár en sumt hafi líka komið frá búi for­eldra þeirra sem gefur bústaðnum per­sónu­legra yfir­bragð. Bækurnar í skápnum í stof­unni eru gamlar bækur frá for­eldr­unum.

„Þegar við vorum að taka þetta í gegn þá flutti pabbi okkar og var að stokka upp sínar eigur. Margt af hlut­unum hér inni eru hlutir sem mamma og pabbi áttu þegar þau voru yngri. Hús­bónda­stóll­inn er til dæmis gjöf sem mamma gaf pabba þegar hann var þrí­tugur,“ segir önnur systirin.

„Það var svo gaman fyrir okkur hinar syst­urnar þegar við vissum að hlut­irnir myndu rata hingað því hér fáum við allar njóta þeirra,“ bætir hin systirin við. Hræri­vélin í eld­hús­inu, köku­keflið, bast­karfan og pott­ur­inn á elda­vél­inni eru hlutir sem minna syst­urnar mikið á móður þeirra enda var hún alltaf í eld­hús­inu að þeirra sögn. Syk­ur­karið í eld­hús­inu minnir þær líka á æsk­una en þá tíðk­að­ist gjarnan á heim­ilum að hafa syk­ur­kör á eld­hús­borð­inu.

Aðspurðar að því hvar þær sóttu inn­blástur áður en þær hófust handa svara þær að sum­ar­hús Rutar Kára­dóttur hafi veitt þeim inn­blástur og gefið margar góðar hug­myndir. Eldhúsið tóku þær í gegn og settu upp nýjar inn­rétt­ingar. Hill­urnar eru borð­plötur sem sag­aðar voru til í réttar stærðir. „Mig lang­aði að hafa opnar hillur og kaupa fal­legt leir­tau og leyfa því að sjást í stað þess að hafa lok­aða skápa,“segir eig­and­inn og þurfti að setja stoðir á bak við vegg­klæðn­ing­una til þess að halda hill­unum uppi. Þær nutu sín vel syst­urnar tvær einar í bústaðnum og að inn­rétta hann saman. Einnig tóku þær í gegn gesta­hús sem var á lóð­inni þar sem svefn­pláss er fyrir fjóra.

„Okkur finnst æðis­legt að koma hérna tvær einar og mála og stilla upp. Svo fórum við og keyptum allt inn saman,“ segir önnur þeirra og hefur þeim tek­ist sér­stak­lega vel til.

Fögur og síbreytileg listaverk

Áður höfðu eig­end­urnir átt sum­ar­hús við Búrfell en heill­uð­ust meira af nátt­úr­unni við Þing­valla­vatn. Úr stof­unni er útsýni út á vatnið og fjall­garð­inn í kring. Glugg­a­rnir eru því fögur lista­verk sem eru síbreyti­leg eftir veðri og árs­tíðum. Syst­urnar sögðu einnig að það væri afar heill­andi og njóta þær þess mjög að sitja og horfa út um glugg­ana. Aðspurðar hvað sé næsta mál á dag­skrá hjá þeim svara þær að það sé að taka húsið í gegn að utan og ætla þær að taka til hend­inni þar nú í sumar. Við kveðjum þessar skemmti­legu systur og þökkum fyrir skemmti­lega stund með þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi