Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ekkert bólar á ársskýrslu

Nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu (NEL) hefur ekki enn gefið út árs­skýrslu fyrir árið 2017, en nefndin tók til starfa 1. jan­úar árið 2017.

Ekkert bólar á ársskýrslu

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, spurð­ist fyrir um skýrsl­una þann 10. apríl síð­ast­lið­inn og fékk þau svör að hún væri vænt­an­leg í lok apríl eða byrjun maí. Blaða­maður Mannlífs spurð­ist fyrir um skýrsl­una þegar hún var enn ekki birt í byrjun sum­ars. Þann 19. júní feng­ust þau svör frá Drífu Kristínu Sig­urð­ar­dóttur, lög­fræð­ingi NEL, að skýrslan væri vænt­an­leg á næstu vikum. Þann 28. ágúst, rúmum tveimur mán­uðum síðar, spurði blaða­maður Mannlífs aftur um skýrsl­una. Tveimur dögum síðar bár­ust þau svör frá Drífu að skýrslan væri vænt­an­leg á næstu vikum. Ástæðan fyrir þess­ari töf segir Drífa vera annir við vinnu ann­arra verk­efna. Helga Hrafni finnst leið­in­legt hve málið hefur taf­ist. Píratar höfðu lagt fram til­lögu um sjálf­stætt eft­ir­lit með starf­semi og starfs­háttum lög­reglu sem hefði mjög víð­femt rann­sókn­ar­hlut­verk. Píratar gagn­rýndu nefnd­ina á sínum tíma og töldu að slík nefnd þyrfti víð­ara verk­svið en það sem NEL hefur, en nefndin fer ekki með ákæru­vald í kæru­málum.

„Nefndin hefur verið að störfum síðan í jan­úar 2017 og á þeim tíma höfum við þurft að halda að okkur höndum. Eina ástæðan fyrir því að við höfum ekki lagt aftur fram til­lögu okkar er að við teljum mik­il­vægt að hún verði byggð á sem mestum og bestum gögnum og að fyrsta árs­skýrsla nefnd­ar­innar sé mjög mik­il­vægt gagn.“

Helgi Hrafn telur ólík­legt að NEL tryggi innra eft­ir­lit með lög­regl­unni. „Ég vona auð­vitað að hún komi mér algjör­lega á óvart, en það er erfitt að full­yrða alveg blákalt um störf nefndar þegar engin gögn liggja enn þá fyrir um reynsl­una af henni. Þó get ég sagt að ég skynja mjög litla trú á núver­andi fyr­ir­komu­lagi af hálfu þeirra borg­ara sem ég hef talað við og telja á sér brotið af lög­reglu, vegna þess einmitt að nefndin sinnir hvorki rann­sóknar- né ákæru­hlut­verki. Fólk sem ég ræði þetta við sér ekki neina sér­staka von í því að kvart­anir og kærur séu flokk­aðar og áfram­sendar, vænt­an­lega oft­ast til lög­regl­unnar sjálfrar. En eins og ég segi, ég vona auð­vitað að van­trú mín og við­mæl­enda minna reyn­ist til­efn­is­laus.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi