Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nennir ekki að safna óvinum

Rauð síld er nýr hlað­varps­þáttur þar sem þátta­stjórn­and­inn, Heiðar Sum­ar­liða­son, fær til sín gesti og spjallar við þá um nýjar kvik­myndir og sjón­varps­þætti.

Nennir ekki að safna óvinum
|
Heiðar Sum­ar­liða­son, fær til sín gesti og spjallar við þá um nýjar kvik­myndir og sjón­varps­þætti j hlað­varps­þætt­inum Rauð síld.

„Við ræðum það sem er í gangi á vit­rænan og lif­andi máta. Greinum það sem fyrir augu ber með okkar nefi, en ég er sjálfur hand­rits­höf­undur og leik­skáld og tek því mikið hlut­ina fyrir frá því sjón­ar­horni,“ segir Heiðar, spurður út í þátt­inn. „Síðan fer það svo­lítið eftir umfjöll­un­ar­efn­inu hver stemn­ing þátt­ar­ins er hverju sinni þótt ég reyni eftir fremsta megni að hafa hann léttan og skemmti­legan. Til dæmis fjall­aði ég um nýju Mission Impossi­ble-mynd­ina ásamt Hrafn­keli Stef­áns­syni sem er meðal ann­ars höf­undur Borg­ríkis 1 og 2 og við hlógum eig­in­lega svo mikið að það var hálf­vand­ræða­legt.“

Hingað til hafa fjórir þættir litið dags­ins ljós. Þrír helg­aðir nýjum kvik­myndum, The Meg, Her­edit­ary og fyrr­nefndri Mission Impossi­ble-mynd og einn tengdur sjón­varpi, þar sem Heiðar og kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn Kristján Krist­jáns­son tóku fyrir Sharp Objects og Who is America. „Í byrjun sept­em­ber verður í fyrsta skipti við­tal en þá ætla ég að tala við Jóhannes Hauk Jóhann­es­son leik­ara um öll þessi verk­efni hans sem hafa hrúg­ast inn núna á haust­mán­uðum; Alpha, The Innocents og The Sister Brothers,“ segir hann. „Í næstu viku fæ ég síðan til mín Bryndísi Ósk Ingv­ars­dóttur sviðs­lista­konu. Við ætlum að ræða Netflix-þátt­inn Insati­able sem gerði PC-fólkið alveg vit­laust þó að það hafi ekki einu sinni verið búið að sýna þætt­ina. Við ætlum fjalla um hvort allt þetta havarí eigi rétt á sér.“

Spurður að því hvað hafi orðið til þess að hann reið á vaðið með Rauða síld segir Heiðar að til sé fjöldi erlendra hlað­varps­þátta um kvik­myndir og sjón­varp en fátt jafn­ist á við að fá umfjöll­un­ar­efnið á sínu ylhýra og eftir því sem hann veit best, er Rauð síld eini þátt­ur­inn sinnar teg­undar á íslensku sem er í gangi akkúrat núna. „RÚV sinnir svona umfjöllun auð­vitað að ein­hverju leyti og gerir það vel en svo stórt batt­erí er hins vegar því marki brennt að það er ekki hægt að nálg­ast umfjöll­un­ina á marga vegu. Þáttur eins og Rauð síld gæti til dæmis aldrei verið þar á dag­skrá, hann er allt of óform­legur og léttur.“

Þá segir hann áhug­ann á því að fara af stað með þátt­inn hafi líka kviknað eftir að hann fjall­aði reglu­lega um menn­ingu í útvarps­þætt­inum Harma­geddon á X-inu og var með sér­stakan hlað­varps­þátt um íslenska leik­list. „Ég var hins vegar orð­inn svo hræddur um að sá þáttur myndi ekki skila mér neinu nema óvinum að ég ákvað á end­anum að hætta með hann,“ segir hann og hlær. „Kost­ur­inn við Rauða síld er aftur á móti sá að nán­ast eng­inn sem fjallað er um í þætt­inum mun hlusta á hann. Þannig að ég get kannski eytt korteri í að gera grín að Tom Cruise án þess þó að það kippi sér ein­hver upp við það. Í mesta lagi er það mark­aðs­stjóri ein­hvers kvik­mynda­húss sem fer í fýlu.“

Mannlíf spurði Heiðar nokk­urra lauf­léttra spurn­inga í lokin:

Ógleym­an­leg­asta atriði kvik­mynda­sög­unnar?
„Senni­lega þegar geim­veran brýtur sér leið út úr maga Johns Hurt í Alien. Ég var allt of ungur þegar ég sá hana.“

Hvaða kvik­mynd hefur komið mest á óvart?
„Senni­lega Star Wars: The Last Jedi, vegna ótrú­lega lélegs húmors.“

Van­met­inn leikur?
„Ég veit að hún fer í taug­arnar á mörgum, en ég held svo­lítið upp á frammi­stöðu Shelley Duvall í The Shining.“

Mynd byggð á skáld­sögu sem skákar frum­gerð­inni?
„Klárlega The Meg. Djók.“

Ofmetn­asta mynd allra tíma?
„Allt þetta ofur­hetju­mynda-dæmi. Get það engan veg­inn. Kannski bara orð­inn of gam­all.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi