Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Við munum þig Stefán Karl

Við munum þig Stefán Karl

Þær fregnir bár­ust um mið­bik vik­unnar að einn ást­sæl­asti leik­ari lands­ins, Stefán Karl Stef­áns­son, væri lát­inn eftir tveggja ára bar­áttu við ill­vígt gall­ganga­krabba­mein.

Það má með sanni segja að Stefán Karl hafi barist hetju­lega við meinið, með eig­in­konu sína, stór­leikkon­una Stein­unni Ólínu Þor­steins­dóttur, sér við hlið. Hann greind­ist með krabba­mein í bris­höfði haustið 2016 og fór í kjöl­farið í nokkrar aðgerðir og krabba­meins­með­ferð. Ári síðar leit út fyrir að Stefán Karl væri laus við meinið. Fyrr á þessu ári var það síðan reið­ar­slag fyrir fjöl­skyldu leik­ara­hjón­anna þegar ný mein­vörp greindust í Stefáni Karli, mein­vörp sem ekki væri hægt að fjar­lægja með skurð­að­gerðum.

Íslend­ingar, sem og aðdá­endur Stefáns Karls um heim allan, hafa fylgst agn­dofa með bar­áttu leik­ar­ans, enda hafa þau hjónin ávallt barist með jákvæðni og bjart­sýni að vopni. Steinunn Ólína raunar kom þessum bar­áttu­vilja hvað best í orð í pistli sem hún skrif­aði á vef sinn kvenna­bla­did.is fyrr á árinu:

„Ég mun aldrei bjóða þér að búa hjá mér því það er nákvæm­lega ekk­ert varið í þig, Dauði. Vægð­ar­leysi og grimmd þín er fyr­ir­lit­leg. Fokkaðu þér, Dauði.“

Að ósk Stefáns Karls verður engin jarð­ar­för, en ösku hans verður dreift í kyrr­þey á úthafi fjær. Auk eig­in­konu lætur Stefán Karl eftir sig fjögur börn; Elínu Þóru, Júlíu, Þorstein og stjúp­dótt­ur­ina Bríeti Ólínu.

„Ekki gráta af því þessu er lokið. Brostu yfir því að það gerðist“

Stefán Karl var inn­fæddur Hafn­firð­ingur og hóf leik­li­st­ar­fer­il­inn með leik­fé­lagi Hafn­ar­fjarðar þegar hann var þrettán ára. Þá steig hann einnig reglu­lega á svið í Öldutúns­skóla þegar hann stund­aði þar nám. Þjóðin tók fyrst eftir Stefáni Karli í Ára­mótaskaupi Sjón­varps­ins árið 1994 þar sem hann lék frétta­mann, á móti óheið­ar­legri sendi­ráðs­frú sem leikin var af gam­an­leikkon­unni Eddu Björg­vins­dóttur.

Fimm árum síðar útskrif­að­ist Stefán Karl úr Leik­list­ar­skóla Íslands. Sama ár land­aði hann því hlut­verki sem hann er hvað þekkt­astur fyrir – hins óborg­an­lega, upp­á­tækja­sama og sein­heppna Glanna glæps í Latabæ. Um fram­haldið þarf varla að fjöl­yrða en Latibær náði heims­at­hygli þegar þætt­irnir hófu göngu sína á banda­rísku stöð­inni Nickelodeon árið 2004. Í fram­hald­inu flutti Stefán Karl ásamt fjöl­skyldu til Kali­forníu.

https://www.youtube.com/watch?v=4BIpDIelf8s

Í kjöl­far vin­sælda Lata­bæjar land­aði Stefán Karl hlut­verki Trölla í sam­nefndum söng­leik byggðum á bók Dr. Seuss um hvernig Trölli stal jól­unum. Hann lék Trölla í fjöl­mörgum borgum í Banda­rík­unum og Kanada, alls sex hund­ruð sinnum fyrir um tvær millj­ónir aðdá­enda. Til marks um vin­sældir leik­ar­ans hafa fjöl­margir erlendir miðlar minnst hans, meðal ann­ars BBC, CNN og Daily Mail. Hann var samt ekki aðeins fjöl­hæfur leik­ari, heldur ötull bar­áttu­maður gegn ein­elti og rak góð­gerða­sam­tökin Regn­boga­börn um ára­bil. Hann var sæmdur ridd­ara­krossi hinnar íslensku fálka­orðu þann 17. júní á þessu ári fyrir fram­lag sitt til íslenskrar leik­listar og sam­fé­lags.

Þótt Stefán Karl hafi heillað íslenska aðdá­endur í ýmsum verkum á stóra svið­inu er þó eitt verk sem stendur upp úr – Með fulla vasa af grjóti. Það verk var fyrst sett upp árið 2000 og sló ræki­lega í gegn. Það fór aftur á fjal­irnar árið 2012 og í þriðja sinn í fyrra. Þá hafði Stefán Karl nýlega lokið sterkri geisla­með­ferð. Við skulum leyfa leik­ar­anum sjálfum að eiga loka­orðin úr við­tali Morg­un­blaðs­ins við hann eftir síð­ustu sýn­ingu Með fulla vasa af grjóti – til­vitnun sem ein­kenndi lífs­speki leik­ar­ans:

„Já, núna er þessum kafla lokið. Eins og Dr. Seuss sagði: „Ekki gráta af því þessu er lokið. Brostu yfir því að það gerð­ist.““

Minning um mann

Fjöl­margir hafa minnst Stefáns Karls á sam­fé­lags­miðlum síð­ustu daga. Leyfum minn­ing­unum um merkan mann að tala sínu máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi