Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Þetta er gargandi þögn“

Sér­fræð­ingur segir íslenskar eft­ir­lits­stofn­anir hafa brugð­ist í plast­barka­mál­inu.

„Þetta er gargandi þögn“

Ástríður Stef­áns­dóttir, læknir og heim­spek­ingur, telur að ekki hafi farið fram nægi­leg umræða um plast­barka­málið svo­kall­aða hér á landi af hendi eft­ir­lits­stofn­ana og eins Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins og heil­brigð­is­mála­ráðu­neytis en einnig Lækna­fé­lags Íslands.

,,Þetta snýr að Land­lækn­is­emb­ætt­inu, Sjúkra­trygg­ingum Íslands og heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu,“ segir hún. „Lækna­fé­lag Íslands hefur heldur ekki lýst yfir neinni skoðun á þessu máli sem mér finnst skrýtið vegna eðli máls­ins, umfangs þess og af þeirri ástæðu að sjúk­lingur í íslensku heil­brigð­is­kerfi er þol­andi í þessu máli. Allar þessar stofn­anir og Lækna­fé­lagið virð­ist ekki hafa nokkurn fókus á sjúk­ling­inn í þessu máli heldur ein­göngu sínar eigin stofn­anir og starfs­menn þeirra. Þetta er garg­andi þögn.“

Var ekki í lífs­hættu
Umrætt plast­barka­mál, sem var til umfjöll­unar í Mannlífi 3. ágúst, lýtur að til­rauna­að­gerð sem gerð var á Andemariam Beyene árið 2011 en hann lést um tveimur og hálfi ári eftir að hafa fyrstur manna und­ir­geng­ist ígræðslu plast­barka á Kar­ólínska háskóla­sjúkra­hús­inu í Svíþjóð.

Árið 2016 skip­uðu Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­ala, og Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, óháða rann­sókn­ar­nefnd undir for­ystu Páls Hreins­sonar, for­seta EFTA-dóm­stóls­ins, til að rann­saka málið og aðkomu þess­ara stofn­ana og við­kom­andi starfs­manna þeirra í mál­inu.

,,Allar þessar stofn­anir og Lækna­fé­lagið virð­ist ekki hafa nokkurn fókus á sjúk­ling­inn í þessu máli heldur ein­göngu sínar eigin stofn­anir og starfs­menn þeirra. Þetta er garg­andi þögn.“

Í Rann­sókn­ar­skýrslu nefnd­ar­innar kemur meðal ann­ars fram að til­vísun hafi verið breytt hér á landi til að rétt­læta aðgerð­ina á Andemariam sem var með hæg­vax­andi æxli í barka. Ekki hafi verið leyfi fyrir aðgerð­inni, hvorki frá vís­inda­siða­nefnd né til að nota gervi­bark­ann og síðar hafi líka komið í ljós að aðgerðir af þessu tagi höfðu aldrei verið próf­aðar á til­rauna­dýrum eins og Paolo Macchiarini, ítalskur pró­fessor sem leiddi skurð­læknateymið í aðgerð­inni, hélt fram.

Þá segir í Rann­sókn­ar­skýrsl­unni að almennu ástandi Andemariam hafi hrakað eftir aðgerð­ina og að krufn­ing hafi leitt í ljós að ígræddi bark­inn hafði losnað. „Að auki fannst krónísk sýk­ing í brjóst­kass­anum og tappi í hægri lungnaslagæð. Hins vegar fannst ekki krabba­mein í lík­ama hans.“

Um and­lát Andemariam og tveggja ann­arra sjúk­linga, sem geng­ust undir plast­barka­ígræðslu í Kar­ólínska háskóla­sjúkra­hús­inu, segir enn fremur: ,,Sjúk­ling­arnir voru ekki dauð­vona. Enginn ígræðslu­sjúk­ling­anna þriggja var í yfir­vof­andi lífs­hættu þegar aðgerð­irnar voru gerðar.“

Enginn talað við ekkj­una
Í til­kynn­ingu um skýrsl­una sem Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­ala, og Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, sendu síðar frá sér segir meðal ann­ars að í skýrsl­unni komi fram að til­teknir starfs­menn við Háskóla Íslands og Landspítala hafi dreg­ist inn í málið á árinu 2011 þegar sjúklingur við Landspítala hafi farið til rann­sóknar í Svíþjóð vegna krabba­meins í barka. Þar hafi hann gefið sænkum lækni sam­þykki til að gang­ast undir aðgerð þar sem græddur var í hann gervi­barki. ,,Sú aðgerð leiddi ekki til bata sjúklings­ins og lést hann á KS í janúar 2014.“ Enn fremur segir að talið sé að að á þeim tíma sem aðgerðin var fram­kvæmd hafi ekki legið fyrir vísinda­legur grundvöllur fyrir gervi­barka­ígræðslum í fólk. Hugmynd um það hafi ekki aðeins stang­ast á við vísindi og reynslu heldur hafi jafn­framt verið of snemmt að gera til­raunir með slíkt á mönnum.

Ein af nið­ur­stöðum í Rann­sókn­ar­skýrsl­unni var að Land­spít­al­inn tæki til athug­unar að ekkju Andemari­ams, Merhawit Bar­ya­mik­ael Tes­faslase, yrði útveguð fjár­hags­leg aðstoð til að hún gæti ráðið sér lög­fræð­ing til að leita réttar síns gangvart Kar­ólínska háskóla­sjúkra­hús­inu. Í fyrr­nefndu við­tali við Mannlíf 3. ágúst upp­lýsti Merhawit hins vegar að hvorki hefði verið haft sam­bandi við hana frá Kar­ólínska háskóla­sjúkra­hús­inu né Land­spít­ala.

Enn hafa engin svör borist frá Embætti land­læknis um hvers vegna stofn­unin hafi ekki stigið inn í þetta mál, en þess má geta að for­stjóri Kar­ólínska háskóla­sjúkra­húss­ins var Birgir Jak­obs­son, sem síðar varð land­læknir hér á landi og gegndi því emb­ætti árið 2016 þegar rektor Háskóla Íslands og for­stjóri Land­spít­ala skip­uðu óháðu nefnd­ina til að rann­saka plast­barka­málið.

Undrast afskipta­leysi Embættis land­læknis
Ástríður er undr­andi á því að Embætti land­læknis hafi ekki haft afskipti að svo alvar­legu máli þar sem Andemariam var í umsjá íslenskrar heil­brigð­is­stofn­unar og segir að það sé í raun fyrir röð til­vilj­ana að málið hafi farið aftur í umræð­una árið 2016.

Hún gagn­rýnir enn fremur fjöl­miðla fyrir að hafa ekki sinnt skyldu sinni í að upp­lýsa almenn­ing um málið, eins og hafi komið í ljós þegar Rann­sókn­ar­skýrslan var kynnt í Norræna hús­inu með blaða­manna­fundi í nóv­em­ber 2017. Fjöl­miðlar hafi ekki gert grein fyrir þeim atriðum sem skiptu máli og dregið upp yfir­borðs­kennda og vill­andi mynd af því sem gerð­ist í mál­inu.

„Segjum að þetta hefði verið íslenskur sjúk­lingur og Ragnar Aðal­steins­son hefði verið lög­fræð­ingur þol­anda, þá hefði hann farið í Kastljós,“ segir hún. „Umfjöll­unin hefði orðið allt önnur og mun sterk­ari mynd hefði verið dregin upp af stöðu sjúk­lings­ins ef þetta hefði ekki verið Erít­remaður með konu sem hefur ekki land­vist­ar­leyfi hér og er ekki með rödd. Það er eng­inn lög­fræð­ingur sem túlkar þessa hlið.“

Ástríður kallar eftir opin­berri umræðu um málið. „Opinber umræða þarf að fara fram,“ segir hún og tekur fram að hún telji enn vera opna enda í mál­inu og það verði svo þar til mál­inu verði lokið erlendis. Málið muni að öllum lík­indum rata í kennslu­bækur og þar verði það gert upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Plastbarkamálið

FréttirPlastbarkamálið

Upp­ljóstr­arar: „Plast­barka­málið er ennþá opið sár“

Tveir af upp­ljóstr­ur­unum í plast­barka­mál­inu svo­kall­aða, Karl Henrik Grinnemo og Oscar Simons­son, lýsa reynslu sinni af því að segja frá því sem gerð­ist á Karol­inska-sjúkra­hús­inu þar sem þeir unnu. Karl Henrik seg­ist hafa verið með sjálfs­vígs­hugs­anir eftir að hann varð fyrir hefnd­ar­að­gerðum innan Karol­inska-sjúkra­húss­ins. Þeir segja að upp­gjör­inu við plast­barka­málið sé hvergi nærri lokið í Svíþjóð og að gera þurfi almenni­lega rann­sókn á því þar.

10 mín. lestur

GreiningPlastbarkamálið

Sjúkra­trygg­ingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plast­barka­mál­inu

Plast­barka­málið hefur verið til umfjöll­unar í íslenskum og sænskum fjöl­miðlum síð­ast­liðin ár. Viss lúkn­ing er komin í málið með end­an­legum fang­els­is­dómi yfir ítalska skurð­lækn­inum Paulo Macchiarini. Þrjár íslenskar rík­is­stofn­anir komu að mál­inu, sem stimplað hefur verið sem lög­brot, en minnst hefur verið fjallað um aðkomu Sjúkra­trygg­inga Íslands að því.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi