Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Níu af hverjum tíu sem fremja sjálfsmorð eru karlar“

Atli Óskar Fjal­ars­son og Viktor Sig­ur­jóns­son vinna að nýrri mynd um stöðu stráka í sam­fé­lag­inu. Myndin kall­ast Lífið á eyj­unni og er mark­mið hennar að vekja athygli á geð­heilsu drengja.

„Níu af hverjum tíu sem fremja sjálfsmorð eru karlar“
OLYMPUS DIGITAL CAMERA

„Við Viktor kynnt­umst á kvik­mynda­setti í fyrra. Þá var ég nýbú­inn að stofna hóp sem heitir Stráka­hitt­ingur í kjöl­far #metoo-bylt­ing­ar­innar þar sem karlar geta rætt til­finn­ingar og hluti sem yfir­leitt er ekki leyfi­legt að tala um ef maður er strákur og ég var eig­in­lega í sjokki yfir því hvað margir við­ur­kenndu að þeir ættu erfitt með að tjá til­finn­ingar sínar og opna sig um erf­iða hluti eins og til dæmis kyn­ferð­is­of­beldi. Við Viktor fórum að ræða þetta og þá kom í ljós að hann var búinn að skrifa upp­kast að stutt­mynd um einmitt svip­aða hluti. Við vorum sam­mála um svo margt og það varð til þess að hann bauð mér að vera með sér í gerð mynd­ar­innar. Í fram­hald­inu skrif­uðum við saman hand­ritið,“ lýsir Atli, þegar hann er spurður að því hvernig hug­myndin að mynd­inni hafi kviknað.

Að hans sögn fjallar hún um 12 ára strák úti á landi, Braga, sem er frjór og skemmti­legur en á erfitt með nám og er félags­lega ein­angr­aður. Hann tekur upp á því að stofna hljóm­sveit með strák sem er nýfluttur í bæinn og upp­götvar við það kraft tón­listar og vin­áttu. Atli segir mynd­ina end­ur­spegla stöðu margra í dag þar sem sífellt erf­ið­ara sé fyrir stráka og karl­menn að fóta sig í sam­fé­lag­inu.

„Leiðin sem við förum til að segja sög­una á eftir að vekja þörf til að tala um hlut­ina og það er það sem við viljum. Við viljum skapa umræðu.“

„Staðan er verri. Sjáðu bara mennta­kerfið, hvað mikið brot­fall er hjá strákum í mennta­skóla og hvað miklu færri strákar en stelpur eru skráðir í háskóla og sem ljúka háskóla­námi. Þá sýna rann­sóknir að einn af hverjum fimm körlum á ekki náinn vin, sem segir okkur að ef við­kom­andi á engan að sem hann getur leitað til þegar eitt­hvað bjátar á þá eru auknar líkur á að hann leiti „ann­arra lausna“. En þegar ég tala um aðrar lausnir þá meina ég sjálfs­víg en níu af hverjum tíu sem fremja sjálfs­morð eru karlar.“

Gat ekki tjáð sig um eigin líðan

Sjálfur seg­ist Atli hafa upp­lifað það að koma að luktum dyrum í mennta­kerf­inu og ekki fund­ist hann getað tjáð sig opin­skátt um eigin líðan. „En sem betur fer á ég góða vini og fjöl­skyldu sem hafa stutt við bakið á mér ef lífið hefur verið erfitt. Því miður eru ekki allir strákar svo heppnir og að mínu mati verðum við að brúa bilið á milli þess­ara eyja sem þeir búa á. Þess vegna heitir myndin okkar Lífið á eyj­unni.“

Hann segir að mark­miðið með gerð hennar sé að vekja fólk til umhugs­unar um þessi mál. Hann og Viktor stefni að því að sýna hana í skólum lands­ins og fylgja því eftir með fyr­ir­lestrum eða mál­þingum. „Leiðin sem við förum til að segja sög­una á eftir að vekja þörf til að tala um hlut­ina og það er það sem við viljum. Við viljum skapa umræðu. Að fólk ræði þessi mál opin­skátt. Þá er mark­mið­inu náð.“

Tökur á mynd­inni standa nú yfir á Seyð­is­firði þar sem hún kemur til með að verða frum­sýnd í nýupp­gerðu kvik­mynda­húsi bæj­ar­ins seinna á árinu en alls er myndin búin að vera átta mán­uði í vinnslu. Að sögn Atla hefur sá tími m.a. farið í hand­rita­skrif, fjár­mögnun og fram­leiðslu. Töluverð vinna hafi líka farið í við­ræður við ýmis ráðu­neyti um aðkomu þeirra að verk­efn­inu og miðað við góðar við­tökur Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins seg­ist hann vona að fleiri ráðu­neyti komi til að með styrkja það. „Stuðn­ing­ur­inn skiptir bara svo miklu máli, því þetta er mynd og umræða sem á erindi við alla,“ segir hann og getur þess að þeir Viktor séu líka með söfnun í gangi vegna mynd­ar­innar á Karolina Fund.

Mynd að ofan: Atli Óskar Fjal­ars­son, annar hand­rits­höf­unda og fram­leið­andi stutt­mynd­ar­innar Lífið á eyj­unni, seg­ist vona að myndin muni skapa umræður um bág­lega stöðu drengja á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi