Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Fólk getur ekki meir“

Sífellt fleira ungt fólk og fólk á miðj­um aldri leitar til Heilsu­stofn­unar Nátt­úru­lækn­inga­fé­lags Íslands (NLFÍ) í Hvera­gerði vegna kuln­unar í starfi.

„Fólk getur ekki meir“
|
Haraldur Erlends­son, for­stjóri og fram­kvæmda­stjóri lækn­inga á stofn­un­inni.

Áður voru eldri borg­arar og fólk sem glímdi við ofþyngd í meiri­hluta þeirra sem þangað leit­uðu. Fyrir um sex árum tók með­al­ald­ur­inn að lækka hratt og er nú svo komið að eldra fólk er um þriðj­ungur þeirra sem dvelja á Heilsu­stofn­unni. Nýjasta breyt­ingin á sam­setn­ingu sjúk­linga á stofn­un­inni er fólk á miðjum aldri sem er útbrunnið í starfi.

„Við sjáum mikið um kulnun í starfi hjá fólki á miðjum aldri, á milli fer­tugs og upp í sex­tugt. Það eru íslensku vinnu­hest­arnir, góð­borg­arar sem hafa afrekað tvö lífs­verk á hálfri starfsævi. Þegar þeir eru komnir á miðj­an aldur þá kannski lenda þeir í sam­skipta­erf­iðleikum eða áföllum. Og þá geta þeir bara ekki meir og kulna,“ segir Haraldur Erlends­son, for­stjóri og fram­kvæmda­stjóri lækn­inga á stofn­un­inni, og leggur áherslu á að skoðað sé hvaða und­ir­liggj­andi þættir valdi því að ein­stak­ling­arnir eru komnir í þessa stöðu. „Stundum er þetta áfallastreita, kvíði eða sam­skipta­vandi.“

„Stundum er þetta áfallastreita, kvíði eða sam­skipta­vandi.“

Hann getur þess að yngstu sjúk­ling­arnir, sem eru 18 ára, glími við kvíða og þung­lyndi og fleiri sjúk­dóma. „Ástæðan fyrir því að svo ungt fólk er farið að leita til stofn­un­ar­innar er sú að Sjúkra­trygg­ingar eru ekki með samn­ing við neinn geð­lækni á Suð­ur­landi og því er eng­inn starf­andi geð­læknir í lands­hlut­anum. Heim­il­is­læknar þar vísa ungu fólki með and­leg heilsu­far­s­vanda­mál til okkar. Til við­bótar erum við í sam­starfi við Virk starfsendur­hæf­ingu á Suð­ur­landi.“

Þá segir Haraldur æ algeng­ara að þeir sem leiti til Heilsu­stofn­unar­innar séu greindir með athyglis­brest með ofvirkni (ADHD). „Þetta er yfir­leitt frekar dug­legt fólk, vinnu­hestar sem fleyta kerl­ingar í líf­inu og þurfa að hafa nóg fyrir stafni, vinnur á við 2­3, og sefur kannski í aðeins fimm til sex klukku­stundir. Á meðan þeir eru ungir og hraustir þá gengur allt vel. En þegar heilsan er aðeins farin að gefa sig þá geta þeir ekki hreyft sig eins mikið. Vinnu­hest­arnir lenda frekar í áföllum, þeir taka áföllin frekar nærri sér en aðrir, lenda þess vegna út á kanti og líður illa. Það skýrir kulnun í starfi. Við greinum mikið af fólki um miðjan aldur með þennan vanda og er það lyk­ill­inn að því að við­kom­andi kemst aftur til vinnu,“ segir hann. Í kjöl­far grein­ingar er mælt með mik­illi hreyf­ingu, kennslu og iðkun núvit­undar og fólki kennt að vinna úr áföllum sínum.

Haraldur segir hins vegar enn mikla for­dóma gagn­vart ADHD á Íslandi. Það skýrist af því að til­tölu­lega stutt sé síðan farið var að greina sjúk­dóm­inn og vinna með hann. Aðeins um 25­30 ár séu síðan farið var að með­höndla börn með ADHD að ráði og aðeins 5­10 ár síðan með­ferð fyrir full­orðna bætt­ist við. „Við eigum þess vegna langt í land með að sinna þessum hópi,“ segir hann og bætir við að miðað við það sem hann sjái sé hóp­ur­inn stærri á Íslandi með athygl­is­brest en talið hafi verið.

„Tíu til fimmtán pró­sent þjóð­ar­innar gætu verið með athygl­is­brest. Það jafn­gildir 30.000­50.000 manns á Íslandi.“

„Land­læknir hefur lýst yfir áhyggjum af því að athygl­is­brestur er greindur í meiri mæli hér en í öðrum löndum og allt að 1% fólks sé á með­ferð. Það er van­með­ferð. Tíu til fimmtán pró­sent þjóð­ar­innar gætu verið með athygl­is­brest. Það jafn­gildir 30.000­50.000 manns á Íslandi. Nýjustu rann­sóknir benda til að þetta sé að verða algeng­asti sjúk­dóm­ur sem geð­læknar sinna og sá dýr­asti fyrir mann­kynið. Þeir sem eru með athygl­is­brest klára ekki nám sitt, lenda oftar í slysum en aðrir, skiln­aði, eru oftar frá vinnu og fara oftar til læknis. Þetta á við um margt ungt fólk hjá okkur. Það kemst ekki í vinnu á morgn­ana, heldur ekki út vinnu­dag­inn og líður illa út af því seinni­part dags,“ segir Haraldur og vill aukna vit­und um athygl­is­brest og með­ferð við honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi