Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Það komst ekkert að því ég var alltaf að fá mér“

„Það komst ekkert að því ég var alltaf að fá mér“
||

Rapp­ar­inn Herra Hnetu­smjör prýðir for­síðu Mannlífs sem kemur út á morgun. Hann hefur skot­ist hratt upp á stjörnu­him­in­inn á Íslandi. Hann er 21 árs gam­all og keyrir um á lúxuskerru, í Gucci-úlpu með gull­tennur – alveg eins og banda­rísku rapp­hetj­urnar. Hann telur sig besta rapp­ara á Íslandi og ætlar að búa til stór­veldi úr tón­list­inni.

„Ég held að þú getir ekki verið bestur í neinu ef þú trúir því ekki að þú getir verið bestur. Ég er ekki hér til að taka þátt. Ég er hér til að vinna,“ segir Herra Hnetu­smjör.

Herra Hnetu­smjör byrj­aði ungur að fikra sig áfram í rapp­heim­inum og gaf út sitt fyrsta lag árið 2014 – smell­inn Elías sem vakti mikla athygli.

„Það varð að ein­hverri költ-klassík meðal ung­linga. Í lag­inu rappa ég um Kárs­neskrakk­ana og að við höfum alltaf verið að drekka og halda partí í kjall­ar­anum hjá strák sem heitir Elías. Algjört ung­linga­dót.“

Herra Hnetu­smjör gengur ávallt með sól­gler­augu.

Sumarið 2016 var mjög dimmur tími

Í fram­hald­inu fékk hann sér umboðs­mann og kom fyrsta plata rapp­ar­ans, Flottur skrákur, út á afmæl­is­degi Herra Hnetu­smjörs, þann 31. ágúst árið 2015. Við tóku miklar annir, en árið 2016 reynd­ist honum erfitt.

„Ég var með fullt af lögum í spilun í útvarpi og var til dæmis bók­aður á stórt svið á Secret Solstice. En ég missti mig. Ég fór út af braut­inni og hætti að gera tón­list. Ég var bara að djamma og spila,“ segir Herra Hnetu­smjör og heldur áfram. „Ég var far­inn að missa tökin meira og meira og sum­arið 2016 missti ég þau end­an­lega. Þá var ég í max rugli og á öllu sem hægt er að hugsa sér. Ég týnd­ist bara í sós­unni. Sumarið 2016 var mjög dimmur tími,“ segir Herra Hnetu­smjör. Í fram­hald­inu fór hann í með­ferð á Vogi

„Ég er alkó­hólisti og sama hvað ég var með skýr mark­mið á öllum sviðum og vissi nákvæm­lega hvað ég vildi gera þá tók alkó­hólist­inn alltaf yfir. Það komst ekk­ert að því ég var alltaf að fá mér.“

„Mig langar í mikið af peningum“

Í dag er rapp­ar­inn edrú og eyðir pen­ingum sínum í merkja­vöru í stað­inn fyrir fíkni­efni. Peningar eru honum einmitt mjög hug­leiknir.

„Mig hefur alltaf langað í pen­inga. Mig langar í mikið af pen­ingum. Banda­ríski rapp­ar­inn 21 Savage sagði einu sinni í við­tali að honum væri drullu­sama hver besti rapp­ar­inn væri. Hann vildi ekk­ert vera með í þeim sam­an­burði. Hann var að reyna að vera rík­asti rapp­ar­inn. Ég tengi við það, þó að ég sé mjög stoltur af rapp­inu. Ég trúi því að ég sé lang­besti rapp­ar­inn á Íslandi en ég vil líka græða,“ segir hann.

Takið eftir Gucci gler­aug­unum.

Viðtalið við Herra Hnetu­smjör, ásamt fullt af öðru vönd­uðu efni, má lesa í Mannlífi sem kemur út á morgun, föstu­dag­inn 17. ágúst.

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi