Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Tækifæri sem fæst bara einu sinni í lífinu“

Tryggvi Snær Hlinason er á fljúg­andi ferð upp á stjörnu­himin alþjóð­lega körfu­bolt­ans.

„Tækifæri sem fæst bara einu sinni í lífinu“
|
Ferill Tryggva: Janúar 2014 mætir á sína fyrstu körfu­bolta­æf­ingu hjá Þór Akureyri 2014. Spilar sinn fyrsta meist­ara­flokks­leik með Þór Íþrótta­maður Þórs á Akureyri 2015 2015. Valinn í lands­liðsúr­tök: U-18 og A-lands­lið karla 2015. Spilaði með U-18 ára lands­lið­inu bæði Norð­ur­landa­mót­inu og Evr­ópu­mót­inu 2016. Fyrsti leikur með A-lands­lið­inu Valinn í loka­hóp A-lands­liðs­ins fyrir und­ankeppni EM Íþrótta­maður Þórs á Akureyri 2016 og Körfu­bolta­maður Þórs 2016 Júní 2017. Skrifar undir samn­ing við Valencia á Spáni, ríkj­andi meist­ara. Júní 2017. Spilar með A-lands­liði Íslands á smá­þjóða­leik­unum Júlí 2017. Valinn í lið móts­ins í A-deild U-20 ára eftir frá­bæran árangur á mót­inu Ágúst 2017. Valinn í 15 manna æfinga­hóp fyrir EuroBasket 2017 Sept­em­ber 2017. Leikur á EM í Finn­landi, EuroBasket 2017 með lands­liði karla Sumar 2018. Fer í nýliða­val NBA, en er ekki val­inn. Tekur þátt í sum­ar­deild NBA með Toronto Raptors. Tíma­blilið 2018-2019. Er lán­aður tili Monbus Obradoiro í efstu deild til að fá fleiri leikmín­útur. Mynd/ KKI

Tryggvi Snær Hlinason skaust upp á stjörnu­himin alþjóð­legs körfu­bolta með ógn­ar­hraða og erlendir miðlar halda vart vatni yfir ótrú­legri sögu hans. Bónda­son­ur­inn úr Bárð­ar­dal er samn­ings­bund­inn körfu­boltaliði Valencia á Spáni til fjög­urra ára, tók þátt í nýliða­vali NBA-deild­ar­innar í Banda­ríkj­unum fyrr í sumar og er und­an­farnar vikur búinn að vera heima í sveit­inni eftir að hafa leikið með liði Toronto Raptors í sum­ar­deild NBA í Las Vegas og allt þetta aðeins fjórum árum eftir að hann byrj­aði að æfa körfu­bolta norður á Akureyri.

Tryggvi Snær er ekki maður margra orða og lætur sér, að því er virð­ist, fátt um eigin frama finn­ast. Hann segir reynsl­una af því að spila í sum­ar­deild­inni aðal­lega hafa veitt sér inn­sýn í hvernig körfu­bolt­inn gengur fyrir sig í Banda­ríkj­unum.
„Það er í sjálfu sér ekki hægt að bera saman hvernig þetta gengur fyrir sig í Banda­ríkj­unum og Evrópu,“ segir hann. „En það var gaman að kynn­ast þessu og ég er spenntur fyrir fram­hald­inu.“

Spurður hvort hann viti eitt­hvað hvert það fram­hald verður segir Tryggvi Snær svo ekki vera, en hann stefni að því að kom­ast inn í NBA-deild­ina. Hvernig það þró­ist verði bara að koma í ljós. Honum líði vel í Valencia og liggi ekk­ert á.
„Valencia er með gott lið, borgin er mjög fal­leg og veðrið er gott svo ég hef ekki undan neinu að kvarta þar,“ segir hann og hlær.

Ekki hægt að segja nei
Tryggvi Snær hefur oft talað um það í við­tölum að körfu­bolta­fer­ill­inn hafi alls ekki verið það sem hann stefndi að í fram­tíð­inni þegar hann byrj­aði að æfa með Þór á Akureyri eftir að hafa byrjað nám í Verk­mennta­skól­anum þar.
„Ég ætl­aði aldrei svona langt inn í þetta,“ segir hann. „Planið var bara að byrja að æfa körfu­bolta til að halda mér í formi, en það plan breytt­ist mjög hratt og þetta varð mun stærra í sniðum en ég hafði reiknað með.“

„… það að hafa tekið þátt í nýliða­val­inu og spilað í sum­ar­deild­inni eru ákveðin þrep á leið­inni upp í deild­ina og síðan taka bara við samn­inga­við­ræður við þau lið sem sýna manni áhuga.“

Var hann aldrei efins um að halda út á þessa braut?
„Það var ekki hægt að segja nei,“ segir hann ákveð­inn. „Þetta var svo spenn­andi og opn­aði svo marga glugga að það kom ekki annað til greina en að kýla á það.“

Kærasta Tryggva Snæs, Sunneva Dögg Robert­son, er afreks­kona í sundi og er á leið í háskóla­nám í Banda­ríkj­unum í haust eftir að hafa dvalið með honum í Valencia síð­ast­liðið ár. Það er vænt­an­lega enn einn hvat­inn til þess að reyna að kom­ast á samn­ing í Banda­ríkj­unum, eða hvað?
„Já, ég neita því ekki,“ segir hann. „Það væri alla­vega ekki verra.“

Reynir að gera sitt besta
Tryggvi Snær vill ekki gera mikið úr þeim breyt­ingum sem orðið hafa á lífi hans síð­ustu árin, þótt þær hafi vissu­lega verið rót­tækar. „Þetta er bara svo skemmti­legt,“ segir hann bros­andi. „Ég veit að þetta er tæki­færi sem fæst bara einu sinni í líf­inu og ég reyni bara að gera mitt besta og standa mig.“

Tryggvi Snær er ekki beint að falla á tíma með að kom­ast áfram í körfu­bolta­heim­inum, hann er ekki nema tví­tugur og hann segir að það geti þess vegna verið allt að tutt­ugu ár eftir hjá honum í þeim heimi. „Það er reyndar mjög bjart­sýn spá,“ segir hann og hlær. „En það er alltaf séns.“

Tryggvi Snær er búinn að njóta sum­ars­ins heima í Bárð­ar­dal en spurður hvort hann sé ekki nokk­urs konar þjóð­hetja í dalnum vill hann sem minnst úr því gera. „Nei, ég myndi nú ekki segja það,“ segir hann yfir­veg­aður. „Auðvitað er maður vel þekktur, en þegar maður kemur heim fer maður bara í gamla gír­inn og er fljótur að falla inn í mynstrið sem var manni eðli­legt. Ég hjálpa pabba og mömmu við bústörfin og hitti fólk sem ég þekki og svona. Allt voða rólegt. Það er mjög gott að vera kom­inn heim aftur og ég ætla mér að njóta þess.“

Stefnir enn að NBA-deild­inni
Áður en körfu­bolt­inn tók völdin í lífi hans stefndi Tryggvi Snær að því að verða bóndi og taka við búinu af for­eldrum sínum þegar þar að kæmi. Eru þau sátt við að þau plön hafi breyst?
„Þau hafa ekk­ert endi­lega breyst,“ full­yrðir hann. „Það er bara ekki tíma­bært að slá neinu föstu um fram­tíð­ina. Ég veit það af eigin reynslu að við­mið manns geta breyst mjög hratt. Það er ekki eins og það sé tíma­bært að afskrifa for­eldra mína strax, þetta er ekk­ert sem þarf að taka ákvörðun um hér og nú.“

Næstu skref Tryggva Snæs, nú eftir að sum­ar­frí­inu í sveit­inni lýkur, eru að fara aftur til Valencia og halda áfram að spila í Evrópu, en draum­ur­inn er að kom­ast á samn­ing við banda­rískt lið sem leikur í NBA-deild­inni og hann seg­ist munu halda áfram að reyna að koma sér á fram­færi þar.

„Það er harður heimur, mikil sam­keppni og margir sem vilja kom­ast þangað,“ segir hann. „En það að hafa tekið þátt í nýliða­val­inu og spilað í sum­ar­deild­inni eru ákveðin þrep á leið­inni upp í deild­ina og síðan taka bara við samn­inga­við­ræður við þau lið sem sýna manni áhuga. Það kemur allt í ljós. Eins og er tek ég bara einn dag í einu.“

Aðalmynd / Anton Brink

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi