Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Spennt að byrja ferilinn

Ungur íslenskur dans­ari, Kristín Marja Ómars­dóttir, hefur verið ráðin að ball­ett­flokknum við Óperu­húsið í Graz. Hún segir mik­inn heiður að vinna með flokknum enda hafi margir af fremstu dönsurum heims sýnt með honum í gegnum tíð­ina.

Spennt að byrja ferilinn
|
Kristín Marja Ómar­dóttir komst inn í ball­ett­flokk­inn við Óperu­húsið í Graz. Hún segir það hafa verið ólýs­an­lega til­finn­ingu. „Stjórn­and­inn þurfti að segja mér það tvisvar svo ég tryði því.“

„Það verður gaman að fá að dansa í þessu sögu­fræga húsi þar sem margir af fremstu dönsurum hafa stigið sín fyrstu skref. Svo er þetta auð­vitað heil­mik­ill heiður líka því eftir því sem ég best veit þá er ég ekki bara sú eina úr minni kyn­slóð af dönsurum á Íslandi sem hafa dansað með þessum ball­ett­flokki, heldur líka ein fárra á Íslandi sem hafa á síð­ustu árum fengið tæki­færi til að ger­ast atvinnu­dans­ari hjá klass­ískum ball­ett­dans­flokki,“ segir Kristín Marja glöð í bragði.

Fyrsta verk­efni Krist­ínar Marju með ball­ett­flokknum verður upp­setn­ing hans á dans­verk­inu Sandman eftir Andreas Heise í októ­ber. „Verkið byggir á hinni frægu sögu „Der Sandmann“ eftir ETA Hoffmann og er neó-klass­ískt. En neó-klassík er form sem mér finnst vera mjög heill­andi af því að það er mitt á milli þess að vera klassík og nútíma­dans og ég æfði klassík lengi og lang­aði prófa eitt­hvað nýtt án þess þó að vilja víkja alveg frá henni,“ útskýrir hún.

Hefur gengið vel erlendis
Kristín Marja er ein­ungis tví­tug að aldri en á engu að síður „langan“ feril að baki sem dans­ari. Fjögurra ára byrj­aði hún að æfa ball­ett í Ball­ett­skóla Eddu Scheving og fimm árum síðar lá leiðin í List­dans­skóla Íslands þaðan sem hún útskrif­að­ist átján ára af klass­ískri fram­halds­braut. Meðan á nám­inu í skól­anum stóð keppti hún í þrí­gang fyrir Íslands hönd í ball­ett­keppni í Svíþjóð og sótti nám­skeið hjá Kon­ung­lega danska ball­ett­inum og í Palluca-dans­há­skól­anum í Dresden í Þýska­landi. Þá var hún í fámennum hópi sem komst inn í Konug­lega sænska ball­ett­skól­ann og hefur eftir nám meðal ann­ars dansað í Óperu­draugnum, Rauðu myll­unni og á Vín­ar­tón­leikum Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands í Hörpu.

„Það verður gaman að fá að dansa í þessu sögu­fræga húsi þar sem margir af fremstu dönsurum hafa stigið sín fyrstu skref.“

Spurð hvað sé ólíkt með dans­heim­inum hér heima og erlendis segir hún að stærðin sé án efa einn helsti mun­ur­inn. „Dans­heim­ur­inn er miklu minni á Íslandi. Við erum með einn dans­flokk sem leggur áherslu á nútíma­dans en úti eru alls konar flokkar með ólíkar áherslur. Það sorg­lega er að dans­listin gæti verið miklu stærri á Íslandi ef við settum bara meira fjár­magn í hana, því við eigum góða kenn­ara og efni­lega dans­ara sem myndu gjarnan vilja dansa á Íslandi ef aðstæður væru ekki þannig þeir þyrftu að fara út. Ég skil ekki af hverju þetta þarf að vera svona því Íslend­ingar hafa greini­lega áhuga á dans­list eins og sést bara af því hvað selst vel á sýn­ingar erlendra dans­flokka á Íslandi.“

Harður heimur
En dans­heim­ur­inn úti, er hann ekki harður líka? „Jú, rosa­lega,“ játar hún. „Til dæmis vorum við rúm­lega 100 krakkar sem sóttum um að kom­ast í ball­ett­flokk­inn við Óperu­húsið í Graz og danspru­fan tók tæpa átta tíma. Þegar upp var staðið vorum við ell­efu. Þannig að kröf­urnar eru strangar og sam­keppnin mikil. Maður er alltaf að berj­ast um besta hlut­verkið og stöð­una. Til dæmis veit ég ekk­ert hvernig hóp­ur­inn í Óperu­hús­inu í Graz verður, hvort hann verður sam­held­inn eða ekki. Ég kynnt­ist nokkrum krökkum í pruf­unni og þau virt­ust öll vera indæl, en ann­ars á bara eftir að koma í ljós hvernig mórall­inn verður. Auðvitað vonar maður samt að hann verði góður.“

Þú virð­ist ekk­ert stressuð. „Nei, alls ekki. Það þýðir ekki neitt. Þá skemmir maður bara fyrir sjálfum sér. Ég er búin að fara í svo margar prufur að ég veit núna að eina sem virkar er að reyna að hafa gaman og það ætla ég að reyna að gera eftir fremsta megni í Aust­ur­ríki og er með góðan stuðn­ing frá vinum og vanda­mönnum. Svo minni ég mig líka á hvað mig hefur lengi dreymt um að kom­ast inn í dans­flokk af þessu tagi og fá að prófa mörg og ólík verk og von­andi dansa út um allan heim. Þannig að núna ég er bara spennt fyrir þessu og að byrja þennan feril,“ segir hún glöð.

Hægt er að fylgj­ast með ævin­týrun Krist­ínar á Instagram, hún er með not­enda­nafnið krist­in­marja

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi